Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Page 4
Helgarblað 11.–14. nóvember 20164 Fréttir B enedikt Gíslason, fyrrver- andi ráðgjafi fjármála- og efnahagsráðherra við fram- kvæmd áætlunar íslenskra stjórnvalda um losun fjár- magnshafta, verður annar af tveimur nýjum stjórnarmönnum sem verða kjörnir í stjórn Kaupþings á sér- stökum hluthafafundi félagsins síð- ar í þessum mánuði. Þá mun Ítalinn Piergiorgio Lo Greco, sem starfaði um árabil sem vogunarsjóðstjóri í London, sömuleiðis taka sæti í stjórn Kaupþings, samkvæmt heimildum DV. Ákveðið var að boða til hlut- hafafundarins aðeins fjórum dögum eftir að tilkynnt var um að Jóhannes Rúnar Jóhannesson, fyrrverandi for- maður slitastjórnar Kaupþings, hefði sagt sig úr stjórn eignarhaldsfélags- ins 3. nóvember síðastliðinn. Verð- mætasta eign Kaupþings er 87% eignarhlutur í Arion banka. Benedikt, sem situr einnig í stjórn tryggingafélagsins VÍS, hefur á undanförnum mánuðum verið einn helsti ráðgjafi Kaupþings við undir- búning að sölu á eignarhlutnum í Arion banka. Þannig hefur hann leitt viðræður félagsins við fulltrúa þeirra íslensku lífeyrissjóða sem skoða nú þann möguleika að kaupa hlut í bankanum af Kaupþingi. Piergiorgio Lo Greco hefur hins vegar frá 2013 verið framkvæmdastjóri og einn af eigendum ítölsku sælkeraverslunar- keðjunnar La Bottega í London en þar áður vann hann um tíu ára skeið í fjármálageiranum í London. Starf- aði hann meðal annars hjá sjóða- stýringarfyrirtækinu Arcapita Group á árunum 2004 til 2008, rétt eins og John P. Madden, stjórnarmaður í Arion banka og framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi frá því í ársbyrjun 2016. Hluthafafundur Kaupþings, þar sem eina málið á dagskrá er að kjósa Benedikt og Lo Greco í stjórn félags- ins, mun fara fram 23. nóvember næstkomandi, samkvæmt upplýs- ingum DV. Í kjölfarið verður stjórn Kaupþings skipuð fimm manns. Fyrir eru í stjórninni þeir Alan J. Carr, bandarískur lögmaður og stjórnar- formaður félagsins, Óttar Pálsson, hæstaréttarlögmaður og einn eigenda að LOGOS, og Bretinn Paul Copley, sem gegnir jafnframt starfi forstjóra Kaupþings. Áhrifalítill stjórnarmaður Jóhannes Rúnar tók sæti í fjögurra manna stjórn Kaupþings um miðj- an marsmánuð á þessu ári þegar fyrsti hluthafafundur eignarhalds- félagsins Kaupþings fór fram í kjölfar þess að slitabúið hafði lokið nauða- samningum og formlegt eignarhald færðist á hendur kröfuhafa gamla bankans. Var Jóhannes Rúnar, líkt og aðrir stjórnarmenn Kaupþings, kjör- inn í stjórn félagsins til tveggja ára og nam þóknun hans fyrir stjórnar- setuna 250 þúsund evrum, jafnvirði um 30 milljóna króna, á ári. Þrátt fyrir að hafa verið kjörinn í stjórn Kaupþings fram í mars árið 2018 þá kveða samþykktir félagsins á um að heimilt sé „að víkja manni úr stjórn eða skipta um stjórnarmann hvenær sem er“ með ályktun hluthafafund- ar sem er samþykkt með einföldum meirihluta. Kaupþing féllst ekki á að greiða Jóhannesi Rúnari þóknun út tveggja ára kjörtímabilið þegar hann sagði sig úr stjórninni, samkvæmt heimildum DV. Brotthvarf Jóhannesar Rúnars úr stjórn félagsins kom þeim sem þekkja vel til innan Kaupþings fæst- um á óvart. Hann hafði um tals- vert skeið ekki notið trausts sumra af stærstu kröfuhöfum Kaupþings, meðal annars vogunarsjóðsins Taconic Capital, langsamlega áhrifa- mesta eigenda félagsins, sem á orðið um 40% hlut í Kaupþingi. Til marks um aðþrengda stöðu Jóhannesar Rúnars þá gegndi hann ekki neinni stjórnunarstöðu innan Kaupþings og hefur jafnframt ekki haft neina aðkomu að vinnu stjórnenda og ráðgjafa félagsins síðustu mánuði í tengslum við söluferlið á Arion banka, samkvæmt heimildum DV. Áður en ný stjórn og forstjóri tóku við Kaupþingi fyrr á þessu ári hafði ver- ið áformað að Jóhannes Rúnar yrði aðal lögfræðingur eignarhaldsfélags- ins þar sem hann myndi hafa umsjón með svonefndum vandræðaeignum (Non-operating assets, NOA) Kaup- þings en bókfært virði þeirra nemur samtals um 26 milljörðum króna. Af því varð hins vegar aldrei. Ríkið á mikið undir Heildareignir Kaupþings námu um mitt þetta ár samtals um 475 milljörðum króna og er 87% eignarhluturinn í Arion banka sem fyrr segir verðmætasta einstaka eign félagsins. Miðað við eigið fé bank- ans um mitt þetta ár er sá hlutur metinn á 173 milljarða. Vegna af- komuskiptasamnings sem stjórn- völd gerðu við kröfuhafa slitabúsins þá mun stærstur hluti söluandvirð- is Arion banka falla í skaut ríkisins. Þannig myndi ríkið fá um 122 millj- arða króna í sinn hlut ef allur hlutur- inn yrði seldur í samræmi við bók- fært virði en eigendur Kaupþings myndu á móti fá um 51 milljarð. Auk þess að vera stærsti hluthafi Arion banka er Kaupþing jafnframt helsti lánveitandi bankans vegna skuldabréfs í erlendri mynt til þriggja ára sem var gefið út í tengsl- um við þau stöðugleikaskilyrði sem Kaupþing þurfti að uppfylla. Sam- kvæmt síðustu viðskiptaáætlun stjórnenda Kaupþings er stefnt að því að búið verði að umbreyta öllum óseldum eignum félagsins í laust fé og greiða út til hluthafa og skulda- bréfaeigenda á næstu tveimur til þremur árum. n brotthvarf Jóhannesar n Benedikt Gíslason og ítalskur sjóðstjóri í stjórn Kaupþings n Naut ekki trausts hluthafa Hörður Ægisson hordur@dv.is Benedikt í stjórn eftir Seðlabankinn seldi allan hlut sinn í Kaupþingi Seðlabanki Íslands er ekki lengur einn af stærstu hluthöfum Kaupþings eftir að ESÍ, dótturfélag bankans, ákvað að selja fyrir skemmstu alla eignarhluti og kröfur sem það átti í eignarhaldsfé- laginu. Samkvæmt heimildum DV, eins og greint var frá í forsíðufrétt blaðsins síðastliðinn þriðjudag, þá var það bandaríski vogunarsjóðurinn Taconic Capital, stærsti hluthafi Kaupþings, sem keypti megnið af rúmlega sex prósenta hlut Seðlabankans. Már Guð- mundsson seðlabankastjóri hefur sagt að Seðlabankinn hafi fengið um 20 milljarða króna fyrir bréfin í Kaupþingi. Taconic Capital hafði á undanförnum mánuðum reglulega komið á framfæri áhuga sínum, með óformlegum hætti, um að kaupa hlut ESÍ í Kaupþingi samhliða því að sjóðurinn var að auka verulega við eignarhlut sinn með uppkaupum á hlutum annarra í félaginu. Þann 1. nóvember síðastliðinn, áður en vogunarsjóðurinn keypti eignarhluti og tengdar kröfur Seðlabankans vegna Kaupþings, áttu þrír sjóðir í nafni Taconic Capital samtals um 33% hlut í Kaupþingi, samkvæmt hluthafalista sem DV hefur undir höndum. Talið er hins vegar, að sögn þeirra sem þekkja vel til innan eigendahóps Kaupþings, að raunveruleg- ur eignarhlutur Taconic Capital sé nokkuð meiri, líklega yfir 40%. Sá sem stýrir fjárfestingum vogunarsjóðsins hér á landi er Bandaríkjamaðurinn Keith Magliana, sjóðstjóri Taconic Capital í London. Hættur í stjórn Jóhannes Rúnar Jó- hannesson. Nýr í stjórn Piergiorgio Lo Greco. Nýr í stjórn Benedikt Gíslason. í alla bíla Varahlutir Við einföldum líf bíleigandans

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.