Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Page 12
Helgarblað 11.–14. nóvember 201612 Fréttir L aun grunnskólakennara hafa hækkað um 86,7 prósent á síð- ustu tíu árum. Á sama tíma hef- ur launavísitala hækkað um 92,7 prósent. Verulegur hluti hækkunarinnar tengist breytingum sem gerðar voru á vinnufyrirkomu- lagi kennara í kjarasamningi árið 2014. Grunnlaun dæmigerðs grunnskóla- kennara eru í dag um 456 þúsund krónur. Grunnskólakennarar felldu kjarasamningstilboð sveitarfélaganna, fyrst í júní síðastliðnum og svo aftur í september. Kjaradeilu kennara við sveitarfélögin var vísað til ríkissátta- semjara síðastliðinn mánudag. Hækkun kjararáðs „siðferðislega röng“ Gríðarleg óánægja hefur brotist út meðal kennara síðustu daga. Má tengja hana beint við úrskurð kjara- ráðs um launahækkanir kjörinna full- trúa en samkvæmt honum hækkuðu grunnlaun þingmanna í 1,1 milljón króna. Þannig hafa Kennarasambandi Íslands borist ályktanir frá kennurum við vel á fjórða tug skóla um land allt síðustu daga. Þar er þungum áhyggj- um lýst af stöðu kjaramála kennara og farið er hörðum orðum um úrskurð kjararáðs. Augljóst er að samtal hef- ur átt sér stað milli kennara mismun- andi skóla því orðalag ályktananna er í mörgum tilfellum svipað. Þannig er ítrekað talað um að úrskurður kjara- ráðs hafi verið kornið sem fyllti mæl- inn, hækkanir þar séu ekki í neinum takti við launaþróun í þjóðfélaginu og séu lítilsvirðing við kennara. Kennarar í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ segja úrskurðinn hafa verið blauta tusku í andlit kennara og kennarar í Rimaskóla í Reykjavík segja að „hin gífurlega launahækkun sem Kjara- ráð hefur ákveðið til handa fulltrúum sveitarstjórna, alþingismanna, ráð- herra og forseta Íslands sé siðferðis- lega röng og ýti undir ójöfnuð í sam- félaginu.“ Samkvæmt upplýsingum frá Félagi grunnskólakennara eru grunnlaun dæmigerðs grunnskólakennara með 15 ára starfsreynslu í dag um 465 þús- und krónur. Í janúar 2006 voru laun- in um 249 þúsund krónur. Árið 2011 höfðu þau hækkað í 321 þúsund krón- ur, um 28,8 prósent. Á sama tíma hafði launavísitala hækkað um 35,5 prósent. Afsöluðu sér réttindum Grunnskólakennarar gerðu kjara- samning árið 2014 þar sem hluti launahækkana var í formi þess að þeim var boðið upp á að afsala sér svokölluðum kennsluafslætti, réttind- um til að kenna færri tíma á viku eftir 55 ára aldur. Langflestir kennarar, um 90 prósent, gengu að því tilboði. Auk þess voru fleiri breytingar á vinnu- fyrirkomulagi hluti af samningnum. Kennarar meta það svo að um 15 pró- sent af þeim hækkunum sem urðu við samninginn séu tilkomnar með því að þeir hafi afsalað sér réttindum. Laun kennara hækkuðu frá árinu 2011 um 44,9 prósent en á sama tíma hækkaði launavísitala um 42,2 pró- sent. Sé hins vegar horft til síðustu tíu ára hafa laun kennara hækkað um 86,7 prósent en launavísitala um 92,7 pró- sent. Hefðu grunnskólakennarar sam- þykkt samningstilboðið hefði það skil- að þeim 9,8 prósenta launahækkun til janúar 2019. Kjararáð sprengdi allt í loft upp Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, segir að úrskurður kjararáðs hafi hleypt illu blóði í kennara. „Hann gerir það auð- vitað. Þegar þú ert í þeirri stöðu að vera með tvífelldan kjarasamning og þér er gert að semja í samræmi við SALEK- rammann þá gefur augaleið að þegar þessi sending kemur daginn eftir kosningar springur allt í loft upp.“ Ólafur segir jafnframt að kennar- ar séu orðnir langþreyttir á kjörum sínum og menn óttist að verði ekki gerð bragarbót þar á muni það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir skólastarf. Kennarar muni þá fara úr kennslu í önnur störf. Aðspurður hvaða hækkun þurfi að koma til svo kennarar muni sætta sig við hana segir Ólafur að það snúi bæði að samningstímanum og hvað verði boðið. Ekki sé hægt að svara því beint út hvaða krónutölu- eða pró- sentuhækkun þurfi að koma til. n „Þegar þú ert í þeirri stöðu að vera með tvífelldan kjarasamning og þér er gert að semja í samræmi við SALEK- rammann þá gefur augaleið að þegar þessi sending kemur daginn eftir kosningar springur allt í loft upp. n Laun hafa hækkað minna en launavísitala síðasta áratug n Grunnlaun 456 þúsund krónur Kennarar segjast lítilsvirtir Gríðarleg óánægja Gríðarleg óánægja er meðal grunnskólakennara eftir að kjara- ráð hækkaði laun kjörinna fulltrúa ansi hressilega á kjördag. Mynd SiGtryGGur Ari Ólafur Loftsson Formaður félags grunnskólakennara. Freyr rögnvaldsson freyr@dv.is Bjarni vildi stjórn með VG og Framsókn Neyðist líklega til að skila umboðinu H ugmyndir um stjórnar- samstarf Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins gengu út á að Framsóknar- flokkurinn ætti aðkomu að þeirra stjórn einnig. Ekki var til umræðu að Vinstri græn kæmu að borðinu í hugsanlegum stjórnar- myndunarviðræðum Sjálfstæðis- flokks, Viðreisnar og Bjartrar fram- tíðar samkvæmt heimildum DV. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, lýsti því í viðtali við Ríkisútvarpið að útséð væri með að mögulegt væri að hefja viðræð- ur við Vinstri græn. Það hefði orðið ljóst í samtölum hans við Katrínu Jakobsdóttur, formann flokksins. Í samtali við DV segir Katrín að hún hafi gert Bjarna grein fyrir því að hún teldi afar ólíklegt að viðræður milli flokkanna myndu skila nokkrum árangri. Samkvæmt heim- ildum DV lagði Bjarni ekki fram neinar mótaðar hugmyndir um hvað gæti hugsanlega orðið til við- ræðu milli flokkanna tveggja. Katrín hefur hingað til lagt á það áherslu að langt væri milli flokkanna tveggja í áherslum og forgangsmál í henn- ar huga væri að mynda ríkisstjórn til vinstri. Sjálfstæðismenn þrýstu á VG Mikil og almenn andstaða er í röð- um Vinstri grænna við samstarf með Sjálfstæðisflokki. Þá er sagt úti- lokað að flokkurinn myndi sætta sig við að lappa upp á ríkisstjórnar- samstarf Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks. Hins vegar er vitað að mikill þrýstingur hefur verið á Vinstri græna af hálfu ýmissa nú- verandi og fyrrverandi áhrifamanna í Sjálfstæðisflokknum um að láta reyna á samstarf milli flokkanna. Þvertekur fyrir hótanir ungliða Í Morgunblaðinu í gær, fimmtu- dag, var fullyrt að Katrín hafi legið undir miklum þrýstingi frá gras- rót flokksins og ungliðahreyfingu og því hafi verið hótað að áhrifa- fólk myndi segja sig frá störfum fyrir flokkinn, yrði af samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Katrín kannast sjálf ekki við neinar slíkar hótanir. Ragnar Auðunn Árnason, talsmað- ur Ungra vinstri grænna, þvertekur fyrir að nokkrar slíkar hótanir hafi verið settar fram. „Það hafa engar hótanir átt sér stað. Stjórn UVG hef- ur ekkert ályktað um þessi mál og treystir Katrínu fullkomlega í þess- um efnum.“ Andstaða vegna ESB-mála Heimildir DV herma að andstaða sé innan þingflokks Sjálfstæðisflokks- ins gegn ríkisstjórnarsamstarfi með Viðreisn og Bjartri framtíð. Þar komi nokkur atriði til en einkum þó stefna flokkanna varðandi Evrópu- sambandsumsókn. Raunar er sú afstaða gagnkvæm innan Viðreisn- ar og Bjartrar framtíðar. Þá hugnast Sjálfstæðismönnum lítt að mynda svo veika meirihlutastjórn en sam- stjórn þessara flokka hefði aðeins eins þingmanns meirihluta. treysta ekki Pírötum Líklegt þykir því að Bjarni neyðist til að skila stjórnarmyndunarumboð- inu á næstunni. Ef svo fer má telja líklegast að Guðni Th. Jóhannesson veiti Katrínu umboðið og hún geri tilraun til að mynda ríkisstjórn til vinstri. Líkur á að henni takist það eru hins vegar hverfandi, í það minnsta fyrsta kastið. Ástæðan er einkum sú að ekki ríkir traust í garð Pírata innan hinna flokkanna sem þyrftu að koma að stjórnarsamstarf- inu. Píratar hafa lýst því yfir að þeir vilji ekki koma að ríkisstjórnarsam- starfi en séu reiðubúnir að verja minnihlutastjórn. Raunar er talið að sú afstaða sé ekki alveg heilög. Engu að síður er afar takmarkaður vilji til þess meðal annarra flokka að þurfa að reiða sig á Pírata, hvort sem er í ríkisstjórnarsamstarfi eða til að verja stjórn falli. Því er flest sem bendir til að Katrínu muni ekki takast ætlunarverk sitt, fái hún til þess umboð. Svo gæti farið að enn verði langt í myndun nýrrar ríkisstjórnar. n Gengur lítið Lítið gengur í stjórnarmynd- unarviðræðum Bjarna Benediktssonar. Mynd SiGtryGGur Ari Flókin staða Hverfandi líkur eru á að Katrín Jakobsdóttir geti myndað stjórn til vinstri, fái hún stjórnarmyndunarumboðið. Mynd SiGtryGGur Ari„Það hafa engar hót- anir átt sér stað S HELGASON - Steinsmiðja síðan 1953 Opnunartími Mán - fim 9:00 -18:00 Föstudaga 9:00 - 17:00 Laugardaga 10:00 -14:00 Sími: 557 6677 Netfang: shelgason@shelgason.is www.shelgason.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.