Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Blaðsíða 14
Helgarblað 11.–14. nóvember 201614 Fréttir G iljagaur frá Brugghúsinu Borg hlaut hæstu meðal­ einkunn í árlegri Jóla­ bjórsmökkun DV. Silfur­ verðlaunin komu í hlut Einstök Winter ale og fast á hæla hans fylgdi sjálft Fagnaðarerindið frá Bryggjunni brugghúsi. Þetta var niðurstaða sérskipaðrar dómnefnd­ ar DV en í henni sátu Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar og fyrrver­ andi fjölmiðlakona. Erpur Eyvindar­ son tónlistarmaður, Gunnar Jónsson (Gussi) leikari, Karen Kjartans­ dóttir, samskiptastjóri SFS, og Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir, verk efnastjóri hjá Listaháskóla Ís­ lands og kennari í Bjórskólanum. Það er til marks um gríðar­ lega grósku í bjórgerðinni hér­ lendis að alls voru átján tegundir á boðstólum í smökkuninni, allt innlend framleiðsla. Þar sem sala á jólabjór hefst ekki fyrr en 15. nóvember þá sendu framleið­ endur prufur til DV og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir lið­ legheitin. Þó ber að geta þess að þrjár tegundir til viðbótar, tvær frá Gæðingi brugghúsi og síðan Askasleikir frá Borg, standa bjór­ unnendum til boða fyrir hátíðarnar. Þessar tegundir voru hins vegar ekki tilbúnar í tæka tíð. Smökkunin fór fram í húsnæði Microbar, Vesturgötu 2, sem er eitt af musterum bjórsins í Reykjavík. Fag­ mennirnir á staðnum aðstoðuðu við framkvæmdina þannig að allt færi eftir kúnstarinnar reglum og er þeim hér með þakkað fyrir sinn þátt. Um blindsmökkun var að ræða og var bjórinn framreiddur í handahófs­ kenndri röð. Allar tegund­ irnar voru í glerflöskum og var reynt að gæta þess eft­ ir fremsta megni að hita­ stig veiganna hæfði hverri tegund. Þá fengu nefndar­ menn vatn og brauð til þess að reyna að hreinsa bragðlaukana milli sopa. Einnig var boðið upp á veglega fötu til þess að nefndar­ menn gætu skyrpt veigunum. Sú fata var ekki mikið notuð. Dómnefndin fór á kostum og var glatt á hjalla. Allir þátttakendur eru miklir áhugamenn um bjór og inntu starf sitt af hendi af mikilli fagmennsku. Það mátti glögglega sjá að smekkur manna var misjafn og því ljóst að önnur fimm manna nefnd hefði getað komist að allt annarri niðurstöðu. Smökkunin er því fyrst og fremst til gamans gerð. Gjafmildasti dómarinn var sam­ skiptastjórinn Karen Kjartansdóttir sem gaf bjórunum sínum 7,8 í með­ aleinkunn. Henni fannst í rauninni íslenska framleiðslan eins og hún leggur sig góð. Svanhildur var á svip­ uðum slóðum og Karen en Erpur og Ólöf Hugrún voru talsvert harðari. Grimmasti dómarinn var hins vegar leikarinn og hið annálaða góðmenni Gunnar Jónsson, Gussi, sem gaf sín­ um bjórum að meðaltali 6,1 í meðal­ einkunn. Sumir bjórarnir féllu hon­ um ekki í geð. Þegar smökkuninni var lokið var dómurunum umbunað og fengu þeir að taka með sér tvo bjóra hver og var gert að velja þá blindandi. Niður­ staðan varð sú að allir kusu eina flösku af sigurvegaranum Giljagaur, og sem flösku tvö valdi Gussi Fagn­ aðarerindið frá Bryggjunni, Erpur Frelsarann frá Steðja og Svanhildur Einstök Winter ale, Ólöf Hugrún valdi vetrarölið sömuleiðis en Karen ákvað að kynna sér Fagnaðarerindið eins og Gussi. n GiljaGaur valinn besti jólabjórinn n Einstök Winter ale í öðru sæti og Fagnaðarerindið frá Bryggunni í því þriðja Björn Þorfinnsson Kristín Clausen bjornth@dv.is / kristin@dv.is Sigurvegarar fyrri ára Jólasmökkun DV hefur verið haldin ár- lega frá árinu 2009, ef undan er skilið árið 2015. Fyrir jólin 2014 þá bar Jóla gull sigur úr býtum en sá bjór átti erfitt uppdráttar í ár og lenti í 13–15. sæti. 2014: Jóla gull 2013: Gæðingur 2012: Steðji 2011: Tuborg Julebryg og Einstök 2010: Viking Jóla Bock 2009: Tuborg Julebryg Jólabjórdómnefnd DV Karen Kjartansdóttir, Svanhildur Hólm Valsdóttir, Erpur Eyvindarson, Gunnar Jónsson og Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir skipuðu nefndina í ár. mynDir Sigtryggur Ari Einbeiting Veigarnar voru grandskoðaðar með tilliti til lyktar, útlits og bragðs. Erfitt líf Dómnefndin sinnti störfum sínum af stakri fagmennsku og ástríðu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.