Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Qupperneq 17
Helgarblað 11.–14. nóvember 2016 Umræða 17 utan um; sama sumar las ég líka gamla vininn, Brekku­ kotsannál, og þá fór margt í furðulegum húmor og djúpri speki auðvitað að einhverju leyti framhjá mér þótt ann­ að hafi hrifið, auk þess sem ég hélt einhvern veginn eins og hún væri ekki jafn mik­ ið bókmenntaverk og sumt annað, einfaldlega vegna þess að síðurnar voru færri, en þannig mat hef ég fyr­ ir löngu endurskoðað eins og ég hef sagt frá í grein um síðar nefndu bókina sem birtist fyrir einhverjum misserum hér á þessum vettvangi. Ógleymanleg er svo löng lestarferð í Evrópu þegar ég var nítján ára og í reisu með vinum mín­ um; annar þeirra var með Sölku Völku í fórum sín­ um og meðan þeir hinir sváfu en lestin með okkur innanborðs brunaði norð­ ur eftir Þýskalandi þá las ég bókina frá upphafi til enda. Eins og mig minnti er sumt í þeirri bók dálítið undar­ legt í augum nútímafólks, og ég fer ekki ofan af því að sem heilsteypt listaverk þá standist Salka ekki fylli­ lega samanburð við mestu snilldar­ verk Halldórs, en ég las hana aftur á langri flugferð til Asíu fyrir þrem­ ur árum, og því verður aldrei neitað að hún glitrar af húmor, stílgaldri og meistara frásögn. Líka vitleysan er góð Auðvitað eru bækur Halldórs mis­ jafnar að gæðum, öðruvísi gæti það ekki verið hjá manni sem bjó til jafn víðfeðmt sköpunarverk; heildar­ útgáfan er eitthvað nálægt heilum hillumetra. Fyrstu bækur hans bera að sjálfsögðu ungum aldri og lítilli æfingu vitni. Í rauninni er það eitt af kraftaverkum okkar sögu að úr því fátæka og frumstæða sam­ félagi sem hann ólst upp í skyldi hann fá að þroskast óáreittur sem skáld og heimsborgari, og eins og vitað er þá er móður hans fyrst og fremst svo fyrir að þakka. En það er merkilegt að eftir að hann er kominn til vits og þroska þá er nokkurn veg­ inn sama um hvað hann skrifar, þá verður það merkileg lesning vegna þess hvernig hann kemst að orði; allt var gefið út á bók sem hann páraði niður, líka dægur­ málarabb sem hann skrifaði í blöð­ in, og á sinn hátt ótrúlegt til þess að hugsa að jafnvel kæruleysislegar athugasemdir hans við ræskingar og hósta í Ríkisútvarpinu í árdaga þess skuli enn þann dag í dag vera ánægjulestur. Og þótt ýmsar skoð­ anir hans væru ærið hæpnar, ekki síst í endurliti, þá tókst honum oft­ ast að bera þær fram af sannri snilld; þannig er Gerzka ævintýrið frá 1937 fullkomlega þess virði að lesa enn þann dag í dag. Og það þótt erindi þeirrar bókar, frá pólitísku og sagn­ fræðilegu sjónarmiði sé, til að orða það pent, eiginlega hreinræktað bull. Og glöpin Mín kynslóð missti auðvitað af því að vera á dögum þegar hans stærstu og umdeildustu bókmenntaverk voru að koma út, og maður getur bara ímynd­ að sér og lesið sig til um jarðskjálftana sem útgáfa þeirra kom af stað í samfé­ laginu. Ég man að sjálfsögðu vel þegar síðustu skáldsögur hans voru að koma út, eins og Innan sveitarkronika og Kristnihaldið, og í þá daga voru menn ekki feimnir við að fjalla um það í blöðum og öðrum fjölmiðlum þegar slíkir viðburðir urðu; mig minnir að það hafi verið heill ritgerðaflokkur í Morgunblaðinu þegar Guðsgjafar­ þula kom út. Svo var alltaf jafn hátíð­ legt þegar meistarinn var tekinn tali í sjónvarpinu – þá voru líka um sumt frjálslegri tímar þótt spyrlar væru kannski hátíðlegri í tali en nú tíðk­ ast og væru jafnvel að þéra viðmæl­ andann; hann sat í þá daga stundum með digra vindla í viðtölum og blés frá sér stórum bólstrum; ég held það hafi verið Eiður Guðnason sem spurði hann eitt sinn svo krefjandi spurn­ ingar að þeir hurfu báðir í óveðurs­ ský á meðan skáldið bjó sig undir að svara. Seinustu æviárin var Halldór nokkuð hallur úr heimi eins og all­ ir vita og um hefur verið talað, meðal annars af hans nánustu, eins og í glæ­ nýrri bók sem ég mun segja frá hér í lokin. Það er einkennilegt að í eina skiptið sem ég sat að heitið geti á sama stað og hann fannst mér ég verða var við að honum væri aðeins farið að förlast, án þess ég hefði áður heyrt um slíkt. Þá var hann orðinn 81 árs og kom til Kaupmannahafnar einhverra erinda, og Stúdentafélagið, að mig minnir, fann upp á því að biðja hann að funda með Íslendingum á staðn­ um. Þá hafði hann um hríð verið efins um samband sitt við Hafnarstúdenta, eða frá því fimmtán árum fyrr þegar blásið var til mótmæla þar í borg gegn Sonningverðlaunum sem honum hlotnaðist árið 1968. Halldór tók samt erindinu vel þarna 1983, og sagðist fús til að „skrafla við Hafnaríslendinga yfir ölkrús“ og varð úr að fjöldi manns tróð sér inn í stofuna í Jónshúsi til að hitta höfundinn; ég varð þá var við að hann átti til að tapa þræðinum, sem maður hafði ekki haldið að hann gæti. Með honum í för var æskuvinur hans Jón Helgason, og það fór svo að Hall­ dór gaf honum orðið, og var ógleym­ anlegt að heyra skáldið og prófessor­ inn segja frá. En merkilegt er að elliglöp Halldórs voru á sinn hátt líka eitthvað geníöl, eins og frægar sögur um það bera vitni um; ég heyrði að eitt sinn hafi hann verið spurður hvað sagnfræðingur­ inn ágæti, Einar sonur Halldórs, væri gamall, og þá á aldurhnigið skáldið að hafa svarað: „Ætli hann sé ekki á aldur við mig.“ Eina sögu kann ég um þetta sem ég veit ekki til að hafi verið sögð, en í apríl 1992 var ég formaður Rithöf­ undasambandsins, sem ásamt Banda­ lagi listamanna skipulagði blysför með fánum og skiltum að Gljúfrasteini til heiðurs meistaranum á níræðisafmæli hans. Svo stoppaði fjöldinn á hlað­ inu og þar var sungið og húrrað fyr­ ir skáldinu sem kom með Auði út fyr­ ir dyrnar og þakkaði innilega fyrir sig. Svo fór auðvitað mannfjöldinn heim. Inni á heimili skáldsins var samsæti með ættingjum og vinum, og þar á meðal var Rannveig heitin Ágústsdótt­ ir, sem var framkvæmdastjóri Rithöf­ undasambandsins og þar með sam­ starfsmaður minn á þeim vettvangi. Hún sagði mér að Auður vinkona sín hefði verið því fyrirfram örlítið kvíðin að Halldóri myndi bregða við þessa fólksmergð sem kom steðjandi að húsinu, en það reyndist semsé öðru nær. Og að svona hálftíma seinna, þegar mikil makindi voru yfir kaffi og kökum í stofunni á Gljúfrasteini hafi skáldið staðið upp og sagt: „Ég held ég lalli mér aftur út á hlað, þar er svo mik­ ið af fólki að syngja og skemmta sér.“ „Elsku Drauma mín“ Það sagði við mig góður maður á dögunum þegar fréttist að væntan leg væri bók um eða eftir Sigríði, dóttur skáldsins, hvort það gæti verið eitt­ hvað ósagt um Halldór Laxness, ævi hans og verk, eins margar og marg­ víslegar bækur og ritgerðir og greinar hefðu verið skrifaðar um það efni. En því er hins vegar til að svara að nú er ég búinn að lesa umrædda bók, Elsku drauma mín, sem Vigdís Grímsdóttir skrásetti, og hún á alveg örugglega eftir að verða klassík í íslenskum minningabókum. Hún er full af góð­ um sögum, frábærum pælingum og og snilldarlega frambornu mannviti; ég lagðist með hana upp í sófa um hádegisbil einn daginn þegar eintak hafði slæðst hingað inn og reis ekki á fætur fyrr en að mörgum klukkutím­ um liðnum, og þá búinn með bókina og ríkari í hjarta. n „Við hittu- mst eigin lega aldrei og ég sá hann bara í svip í eigin persónu, en samt sem áður kenndi hann mér flest og fáum hef ég á sinn hátt kynnst betur. Útvarp „Ég man hve áhrifaríkt það var þegar rödd hans barst þaðan.“ Elsku drauma mín „Hún á alveg örugglega eftir að verða klassík í íslenskum minningabókum.“ jólagjöfin í ár! Þráðlausu Touch heyrnartólin fást www.mytouch.rocks Hægt að tengja við síma, ipad og öll bluetooth tæki. Einnig er hægt að svara í símann með þeim. fæst á www.mytouch.rocks

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.