Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Side 18
Helgarblað 11.–14. nóvember 2016
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7000
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
18 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Hvernig gat þetta gerst?
B
andaríkjamenn hafa löngum
haft á orði að hvaða landi
þeirra sem er geti orðið for
seti Bandaríkjanna. Þetta hef
ur nú sannast. Maður sem hefur ekki
nokkra burði til að takast á við emb
ættið og höfðaði til lægstu hvata kjós
enda hlaut brautargengi og er á leið í
Hvíta húsið. Um allan heim spyr fólk:
Hvernig gat þetta gerst?
Donald Trump mun seint
verða talinn sómi Bandaríkjanna.
Kven fyrirlitning hans er alkunn,
sömuleiðis andúð hans á inn
flytjendum, múslimum og raunar
flestum minnihlutahópum. Í kosn
ingabaráttu sinni ól
hann á hatri og tor
tryggni. Það eru ekki
miklar líkur á að
maður eins og hann
verði til friðs í emb
ætti Bandaríkjafor
seta. Heimurinn er
orðinn enn hættu
legri en hann var.
Engin von er til
þess að sátt verði
um Donald Trump
í Bandaríkjunum.
Stór hópur þjóðar
innar mun aldrei
sætta sig við að
einstaklingur jafn fullur af mann
fyrirlitningu og Donald Trump sitji
í Hvíta húsinu. Bandaríska þjóðin á
heldur ekki að sætta sig við það. Hún
á svo miklu betra skilið. Þjóðir heims
geta ekki heldur klappað upp Donald
Trump sem glæstan fulltrúa Banda
ríkjanna. Þær eiga einnig betra skilið.
Það virðist samdóma álit umheims
ins að það sé hneisa að slíkur ruddi
taki sér bústað í Hvíta húsinu.
Jafn einkennilegt og það er, þá lað
aði Trump til sín fjöldafylgi. Þeir sem
berjast í bökkum kusu auð jöfurinn
og það gerði sömuleiðis milli
stéttin. Þrátt fyrir öll sín andstyggi
legu orð í garð kvenna og misgjörð
ir í þeirra garð kusu konur Trump
í þó nokkrum mæli og sömuleiðis
innflytjendur og blökkumenn. Nú er
keppst við að finna skýringar á fylgi
og sigri Trumps og þær eru víst all
nokkrar. Ótal skýringar breyta samt
engu um þá staðreynd að orð og æði
Trumps er með þeim hætti að hann
er fullkomlega óhæfur til að gegna
valdamiklu embætti Bandaríkja
forseta. Þetta hefði kjósendum átt að
vera ljóst.
Hillary Clinton situr eftir með sárt
ennið. Í augum fjölmargra Banda
ríkjamanna hefði kjör hennar í for
setaembætti verið ávísun á kyrr
stöðu. Hillary Clinton hefur orðið
fyrir afar ómaklegri gagnrýni og
tilefnislausum en heiftarlegum
árásum. Vissulega tilheyrir hún
elítunni í Wash ington og það hefur
sannarlega verið henni fótakefli að
eiginmaður hennar var forseti. Stór
hópur kjósenda er skiljanlega ekki
hrifinn af því að forsetaembættið
verði eign fjölskyldna hvort sem þær
heita Bush eða Clinton. Vissulega
má einnig gagnrýna ýmsar ákvarð
anir í utanríkisráðherratíð hennar.
Hinu verður ekki á móti mælt að
Clinton er afar fær stjórnmálamaður,
þolin og vinnusöm og talsmaður
ýmissa góðra málefna. Það er fárán
legt að tala um hana eins og hún sé
spillingin holdi klædd. Það er sárt
að jafn hæfur einstaklingur og hún
er hafi tapað fyrir orðljótum fauta
sem hefur ekkert fram að færa annað
en niðurrif og mannfjandsamleg
viðhorf. Hann er líklegur til að eyði
leggja góð verk sem unnin hafa verið
í tíð Obamastjórnarinnar, eins og í
loftslagsmálum og heilbrigðismál
um. Kjör hans boðar ekkert gott.
Donald Trump verður ekki forseti
sem umheimurinn ber virðingu fyrir.
Hann verður ekki forseti til að sætta
þjóð sem nú er í sárum. Eins og Ís
lendingur sem hefur búið í Banda
ríkjunum í áratugi sagði svo rétti
lega: „Hér búa tvær þjóðir og eiga
svo til ekkert sameiginlegt.“ n
Svona ógeðslegheit
geta verið særandi.
Kristinn Hrafnsson er ósáttur við forsíðu Séð og heyrt. – Facebook
Samfylking í ríkis-
stjórn?
Samfylkingarfólk horfir nú á
stjórnarmyndunarviðræður
Bjarna Benediktssonar af hliðar
línunni og safnar kröftum. Eftir
áfallið sem úrslit alþingiskosn
inga (sem þó voru alveg fyrirséð)
reyndist flokknum töluðu þing
menn og framámenn flokksins
á þeim nótum að Samfylkingin
hefði ekkert í ríkisstjórn að gera.
Oddný Harðardóttir, þá verandi
formaður flokksins, lýsti því yfir
áður en hún hrökklaðist úr emb
ætti að flokkurinn væri hins vegar
jákvæður fyrir því að verja stjórn
VG, Viðreisnar og Bjartrar fram
tíðar falli ásamt Pírötum. Nú
segir sagan hins vegar að komið
sé annað hljóð í strokkinn, í það
minnsta meðal sumra áhrifa
manna flokksins. Þeir haldi því
fram að eini möguleiki Sam
fylkingarinnar til að ná vopnum
sínum sé með aðkomu að ríkis
stjórn. Jafnvel sé ástæða til að
kosta æði miklu til í þeim efnum.
Hefur þá helst verið talað um
aðkomu þeirra að samstjórn
Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og
Bjartrar framtíðar. Aðrir, þeir sem
bjartsýnni eru, tali um að bíða
lengur því óhjákvæmilega muni
stjórnarmyndunar viðræður reka
upp á sker. Horfa þeir þá til þess
að hægt verði að mynda ríkis
stjórn með Sjálfstæðisflokki og
Vinstri grænum. Hvort slíkt sé
raunhæft á eftir að koma í ljós.
FÁKASEL - FYRIR ALLA
Ingolfshvoll, 816 Ölfus | fakasel@fakasel.is | símI: 483 5050
matur, drykkur
og skemmtun
Það eru ekki allar
ferðir til fjár á netinu.
Elín Fanndal pantaði afleitan kjól á AliExpress. – dv.is
Ég hef hvatt hana
til að hætta.
Eiginkona Bigga löggu er kennari. – Facebook
„Hann er fullkom-
lega óhæfur til að
gegna valdamiklu emb-
ætti Bandaríkjaforseta.
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Myndin Úrslitatilraun Fólk var hóflega bjartsýnt á fundi hjá ríkissáttasemjara í kjaradeilu Sjómannasambands Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á fimmtudag.
Botn hafði ekki fengist í málið þegar blaðið fór í prentun. mynd Sigtryggur Ari