Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Side 40
Helgarblað 11.–14. nóvember 201624 Sport Smáralind - S: 578 5075 - www.bjarkarblom.iS Persónuleg og fagleg þjónus ta einstakar skreytingar við öll tækifæri Í sland verður án nokkurra lykil­ manna þegar liðið heimsækir Króatíu í toppslag I­riðils í undankeppni HM á laugardag. Alfreð Finnbogason, markahæsti leikmaður Íslands í undankeppn­ inni, verður ekki með vegna meiðsla og sömu sögu er að segja af Kol­ beini Sigþórssyni sem hefur ekkert komið við sögu í undankeppninni. Þá er Björn Bergmann Sigurðarson meiddur og fjarri góðu gamni. Ísland og Króatía eru bæði með sjö stig í efstu sætum riðilsins, en Króatar eru á toppnum þar sem markatala þeirra er hagstæðari. Leikið verður á tómum Maksimir­ vellinum í Zagreb vegna óláta áhorf­ enda í tveimur vináttuleikjum gegn Ísrael og Ungverjalandi fyrr á árinu. Þetta er því annar útileikur Íslands í riðlinum sem leikinn verður fyrir luktum dyrum en sama var uppi á teningnum í fyrsta leik Íslands gegn Úkraínu í september. Markaþurrð Jóns Daða og Viðars Undanfarin misseri hafa þeir Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck, sem nú er hættur þjálfun íslenska liðsins, nær undantekningarlaust getað valið sína allra bestu leikmenn. Meiðsli hafa sárasjaldan sett strik í reikninginn að undanförnu. Kolbeinn hefur þó ekkert komið við sögu í síðustu landsleikjum sem hefur ekki komið að sök vegna frábærrar frammistöðu Alfreðs Finnbogasonar. Nú brennur svo við að þeir eru báðir meiddir og hafa þeir Arnór Smárason og Elías Már Ómarsson verið kallaðir í hópinn. Nokkuð öruggt þykir að Jón Daði Böðvarsson muni byrja leikinn en spurningin er hver byrjar við hlið hans, að því gefnu að Heimir haldi sig við 4­4­2 leikkerfið. DV leitaði til tveggja álitsgjafa og fékk þá til að leggja mat á hvernig þeir myndu vilja sjá uppstillinguna, fremst á vellinum, gegn Króötum. Bollaleggingar þeirra Magnúsar Más Einarssonar, ritstjóra fotbolti.net, og Ingólfs Sigurðssonar knattspyrnu manns má sjá hér að neðan. Báðir eru þeirrar skoðunar að Viðar Örn Kjartansson eigi að byrja leikinn við hlið Jóns Daða. Jón Daði og Viðar hafa þó glímt við markaþurrð að undanförnu eins og athugun DV leiddi í ljós; Jón Daði hefur spilað 657 mínútur fyrir landslið og félagslið án þess að skora á meðan Viðar Örn hefur ekki skorað í 528 mínútur. Samtals eru þetta því tæplega 1.200 mínútur án marks hjá þeim leikmönnum sem flestir reikna með að byrji í fremstu víglínu á laugardag. Aron kemur aftur inn Ef ekkert óvænt kemur upp mun Hannes Þór Halldórsson byrja í markinu. Ari Freyr Skúlason verður vinstri bakvörður og Ragnar Sigurðs­ son verður í miðri vörninni. Kári Árnason spilaði ekki með Malmö í lokaumferð sænsku deildarinnar um liðna helgi en ætti þó að verða klár í slaginn. Þá hefur Birkir Már Sævarsson glímt við meiðsli en hann ætti sömuleiðis að vera tilbúinn gegn Króötum. Vörnin verður því að líkindum skipuð okkar reynslu­ mestu leikmönnum. Theodór Elmar Bjarnason átti stórleik gegn Tyrkjum í október en þar sem Aron Einar er kominn aftur eftir leikbann má búast við því að Theodór setjist á bekkinn. Birkir Bjarnason og Jóhann Berg Guðmundsson verða væntan­ lega á vængjunum og Gylfi Þór ásamt Aroni á miðri miðjunni. Lykilmenn Króata heilir Króatar eru með feikilega öflugt lið og sitja þeir í 16. sæti á styrkleikalista FIFA. Luka Modric, leikmaður Real Madrid og stórstjarna Króata, er búinn að ná sér eftir hnémeiðsli. Þá eru aðrar stjörnur liðsins, leikmenn eins og Ivan Rakitic (Barcelona), Mario Mandzukic (Juventus), Ivan Perisic (Inter) og Mateo Kovacic (Real Madrid), allar leikfærar og rúmlega það. Dejan Lovren, varnarmaður Liverpool, er þó ekki í hópnum af persónulegum ástæðum. Króatar hafa verið á miklu skriði undanfarin misseri og aðeins tapað einum leik af síðustu fjórtán, gegn Portúgal í 16­liða úrslitum EM í sumar eftir framlengdan leik. n Vilja Viðar Örn inn Hverjir eiga að byrja frammi? Ingólfur Sigurðsson knattspyrnumaður „Selfyssingarnir Jón Daði og Viðar Örn munu leiða sóknarlínuna. Miðað við leikstíl lands- liðsins þarf sá sem er fyrir aftan aðalfram- herjann að geta hlaupið úr sér lungun og unnið návígi. Þar er Jón Daði fremstur meðal jafningja. Viðar Örn mun síðan vera í aftasta varnarmanni hjá þeim, tilbúinn að hlaupa undir línuna og ógna marki Króatanna. Viðar Örn er frábær framherji og það er synd hversu lítið hann hefur fengið að spila fyrir landsliðið. Ég vona innilega að hann komi inn af krafti og tryggi okkur a.m.k. stig.“ Magnús Már Einarsson ritstjóri fotbolti.net „Jón Daði Böðvarsson og Viðar Örn Kjartansson eiga að byrja saman frammi að mínu mati. Eitthvað sem fer þá í sögubækurnar á Sel- fossi. Viðar hefur lengi beðið eftir tækifærinu í byrjunarliðinu og hann er mikill markaskor- ari. Á heilmikið inni með landsliðinu og hefur sagt það sjálfur. Það væri líka hægt að setja Jóhann Berg fram en hann var hins vegar geggjaður á kantinum í síðasta leik gegn Tyrkjum. Einn hans besti landsleikur. Ég vil því halda Jóa á kantinum og hafa Viðar frammi.“ Vilja Viðar Örn inn fyrir meiddan Alfreð n Ísland mætir Króatíu í toppslag á laugardag n 1.200 mínútur án marks hjá Jóni Daða og Viðari Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Viðar Örn Kjartansson Gæti fengið langþráð sæti í byrjunarliði Íslands á laugardag. MynD EPA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.