Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Side 44
Helgarblað 11.–14. nóvember 201628 Heilsa
Skráðu þig í Bed&Breakfast klúbbinn
okkar og fáðu betri kjör
s: 426 5000 — booking@bbkefairport.is — bbkeflavik.com
Ertu á leið í flug?
Við geymum bílinn frítt,
keyrum þig á flugvöllinn og
sækjum þig við heimkomu
Kviðverkir og ýmsar orsakir
n Kviðverkir geta gert fólki lífið leitt n Ýmsir möguleikar í greiningu n Mikilvægt að vera vakandi
H
ver kannast ekki við það að
fá óþægindi í magann eða
kviðarholið líkt og við lækn
ar viljum gjarnan kalla það.
Maginn er nefnilega bara
hluti af meltingarveginum sem aftur
er bara hluti þeirra líffæra sem geta
gefið verki og einkenni frá kviðar
holi. Dæmi um nokkur slík eru lifur,
gallblaðra og briskirtill sem geta
bólgnað og sýkst af ýmsum orsök
um og þannig skapað verulega verki,
jafnvel svo slæma að viðkomandi
sjúklingur getur engan veginn slakað
á. Þeir sem hafa fengið gallsteinakast
þekkja það að engjast um af krampa
kenndum kvölum sem virðast engan
endi ætla að taka.
Stingir, bólgur og magasár
Margs konar stingi er hægt að fá í
tengslum við magann sjálfan, sér
staklega ef um er að ræða maga
bólgu sem veldur oftsinnis brjóst
sviðaeinkennum sem byggja á
bakflæði magasýru upp eftir vél
indanu. Hjá þeim sem eru með
lengra genginn vanda getur myndast
magasár og jafnvel enn frekari vandi
líkt og krabbamein í maga eða vél
inda. Öll þensla á meltingarvegin
um getur ýtt undir óþægindi sem við
þekkjum mætavel þegar við fáum til
dæmis magapestir og slíka óværu og
til að flækja málin enn frekar getur
hægðatregða einnig valdið talsverðri
vanlíðan. Tiltölulega algengt vanda
mál sem við þekkjum að valdi kvið
verkjum eru ristilkrampar, en það
eru endurtekin óþægindi sem geta
komið upp undir álagi, spennu og
kvíða, en einnig tengt mataræði og
geta reynst erfið viðureignar.
Margir möguleikar í greiningu
Ýmsir upplifa óþol eða jafnvel fæðu
ofnæmi sem getur verið vegna
glútens, mjólkur, eggja, geymslu
efna og ýmissa annarra þátta og get
ur reynst þrautin þyngri að greina
slíkt og meðhöndla svo viðunandi sé,
því miður. Það eru þó alltaf að koma
fram nýir möguleikar í greiningu
bæði með blóðrannsóknum, húð
prófunum og svo auðvitað speglun
og sýnatöku úr slímhúð í meltingar
vegi.
Krónískir sjúkdómar
Alvarlegri vandamál í meltingarvegi
eru svokallaðir bólgusjúkdómar sem
eru krónískir og geta komið fram
á hvaða aldri sem er og hjá báðum
kynjum, þótt algengara sé að sjúk
dómarnir stingi sér niður hjá yngri
einstaklingum. Þessum sjúkdómum
er oft ruglað saman en á læknamáli
kallast þeir Crohn's annars vegar og
Colitis Ulcerosa hins vegar. Þeir geta
verið um margt líkir hvað varðar ein
kenni og þá líka að báðir sjúkdóm
arnir eru með sveiflukennda virkni
svo það geta verið miserfið tímabil
hjá sjúklingum. Oftar en ekki fylgja
verkir og óþægindi frá kviðarholi,
niðurgangur, blóð með hægðum,
slappleiki, hiti og megrun svo dæmi
séu tekin.
Sjúkdómarnir eru þó gjörólíkir að
því leyti að Crohn's er ólæknanlegur
og getur verið alls staðar í meltingar
vegi á meðan Colitis er bundinn við
ristilinn og lækningin á þeim sjúk
dómi felst í því að fjarlægja hann.
Slíkt er þó ekki gert fyrr en öll önn
ur meðferð hefur verið reynd. Matar
æði, lífsstíll, reykingar, streita og
álag hafa mikil áhrif á þróun sjúk
dómanna. Meðferð er margbreytileg
og byggir á bæði stuðningi, næring
arráðgjöf, bólgustillandi lyfjum og í
mörgum tilvikum skurðaðgerð.
Nauðsynlegt að greina á milli
Í kviðarholinu eru líka innri líffæri
kvenna sem geta gefið margvísleg
óþægindi, flestar konur þekkja það
að fá verki í kringum blæðingar og
jafnvel egglos, sérstaklega konur
sem eru með blöðrur á eggjastokk
um kannast við það þegar þær rofna
að fá verki sem geta verið afar slæm
ir en ganga svo niður að sjálfu sér
með eða án meðferðar. Nauðsyn
legt er að greina á milli slíkra verkja
sem eru skammvinnir og flestar
konur kannast við og svo hinna
langvinnu óþæginda sem geta staf
að af bólgum, sýkingu og slíku sem
oftsinnis fylgir þá hiti, útferð og
veruleg óþægindi til viðbótar. Mjög
afgerandi skyndilegir verkir, sér
staklega krampakenndir sem ætla
ekki að láta undan ættu að fá fólk til
að leiða hugann að uppásnúningi
á eggjastokka, utanlegsfóstur komi
slíkt til greina og þess háttar alvar
legri vanda.
Þvagvegirnir og nýrun geta til
dæmis við myndun nýrnasteina
skapað mikil veikindi og verki svo
engin leið er að vera kyrr og flestir
leita að lokum á sjúkrahús til með
höndlunar. Sýkingar í blöðru geta
gengið upp í nýrun og valdið veru
legum veikindum hjá báðum kynj
um og svo blöðruhálskirtilsbólga hjá
körlum og því vert að vera vel vak
andi gagnvart öllu slíku. Að öllum
þessum bólgum, steinum og sýking
um í kviðarholi og nánasta umhverfi
þess geta svo sjúkdómar líkt og
krabbamein stungið sér niður og því
nauðsynlegt hið minnsta að stunda
forvarnir gegn þeim sjúkdómi al
mennt, sama hvaða líffærakerfi á í
hlut með því að reykja ekki, stunda
hreyfingu og neyta hollrar fæðu auk
þess að draga úr streitu og álagi sem
mest er hægt. Einungis er hægt að
skima fyrir örfáum þeirra krabba
meina sem geta fundist í kviðarholi
og ætti enginn að gleyma því, þar er
þá fyrst og fremst vert að minnast
á skimun fyrir leghálskrabbameini
kvenna og ristilkrabbameini beggja
kynja. n
Teitur Guðmundsson
læknir
„Mataræði, lífsstíll,
reykingar, streita
og álag hafa mikil áhrif á
þróun sjúkdómanna.
Kviðverkir Geta átt sér
margar orsakir. MyNd 123rf.coM