Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Blaðsíða 6
Jólablað 22. desember 20166 Fréttir
Bláuhúsin v. Faxafen
s: 568 1800 s: 588 9988 s: 511 2500
Kringlunni Skólavördustíg 2
Bestir í sjónmælingum
Tímapantanir í síma
M
egn óánægja er meðal
Austfirðinga, og þá ekki
síst sveitarstjórnarmanna
á Austurlandi, með fjar-
veru Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar, þingmanns Fram-
sóknarflokksins, frá þingstörfum í
upphafi þings eftir kosningar. Vegna
þessa sé Austurland, og raunar
Norðausturkjördæmi allt, hreinlega
manni undir í vinnu við fjárlaga-
frumvarp. Óttast menn að það muni
koma niður á hagsmunum svæðisins
við afgreiðslu endanlegra fjárlaga.
Formaður Sambands sveitarfélaga
á Austurlandi telur að hagsmunum
fjórðungsins hefði verið betur borg-
ið hefði Sigmundur kallað inn vara-
mann fyrir sig.
Aðeins tveir af tíu þingmönnum
Norðausturkjördæmis eru með
lögheimili á Austurlandi. Það eru
fyrrnefndur Sigmundur, sem hefur
lögheimili á Fljótsdalshéraði, og Þór-
unn Egilsdóttir, sem einnig er þing-
maður Framsóknarflokksins, en hún
er búsett í Vopnafirði. Fyrsti vara-
þingmaður flokksins er Líneik Anna
Sævarsdóttir, fyrrverandi þingmaður,
en hún býr á Fáskrúðsfirði.
Óánægja með fjarveru Sigmundar
Alþingi kom saman 6. desember síð-
astliðinn en Sigmundur sat ekki fundi
þess fyrr en síðastliðinn mánudag, 19.
desember, þegar hann mætti í þingsal
og var kosinn varamaður í allsherjar-
og menntamálanefnd. Hefur fjarvera
Sigmundar vakið mikla athygli og
úlfúð en einnig viðbrögð Sigmundar
við spurningum blaðamanna um
hverju fjarveran sætti.
DV ræddi við sveitarstjórnar-
menn á Austurlandi sem lýstu
óánægju sinni með fjarveru Sig-
mundar. Þeir vildu þó fæstir láta
hafa nokkuð eftir sér opinberlega en
bentu á að með fjarveru Sigmundar
væri enginn þingmaður sem hefði
lögheimili allt frá Djúpavogi, á öllum
fjörðunum og á Héraði. Með fjarveru
Sigmundar stæði landsfjórðungur-
inn einfaldlega höllum fæti í fjár-
lagavinnunni.
Austurland ekki verið
efst í forgangsröðinni
Sigrún Blöndal, bæjarfulltrúi Héraðs-
listans á Fljótsdalshéraði og for maður
Sambands sveitarfélaga á Austurlandi,
segir að vissulega sé bagalegt að þing-
menn kjördæmisins séu ekki til stað-
ar í fjárlagavinnunni. Hún viti þó ekki
hvort fjarvera Sigmundar muni skipta
sköpum. „Ég verð að segja eins og er
að ég veit ekki hverju það hefði breytt
ef Sigmundur Davíð hefði mætt í
þingið. Ég veit það ekki, jú, kannski
ef hann hefði tekið þátt í því af fullum
krafti að sinna hagsmunum kjördæm-
isins. En mér hefur nú ekki fundist
það hafa verið fremst í forgangsröð-
inni hjá honum,“ segir Sigrún en bæt-
ir við að á síðasta kjörtímabili hafi
Sigmundur vitanlega setið í stól for-
sætisráðherra og kannski erfitt að gera
þá kröfu að hann hafi á þeim tíma get-
að sinnt kjördæminu með sama hætti
og almennir þingmenn. „Ég held þó
að það hafi nú aðrir þingmenn verið
í því frekar en hann, að styðja okkar
málstað, Austfirðinga.“
Hefði viljað hafa Líneik
Varamaður Sigmundar er Líneik
Anna Sævarsdóttir, fyrrverandi
þingmaður.
Telur þú að hagsmunum Aust-
firðinga hefði verið betur borgið hefði
Sigmundur kallað hana inn sem
varamann nú í þingbyrjun, í fjár-
lagavinnunni?
„Já, það held ég, það væri nú yfir-
höfuð fengur að því að hafa Líneik
á þingi. Hún er mjög duglegur og
samviskusamur þingmaður sem
mætir alla daga í vinnuna. Auðvitað
eiga þingmenn að mæta í sína
vinnu og sinna sínum skyldum eins
og aðrir, alltaf.“
Þú myndir þá þiggja að hafa fleiri
þingmenn í að gæta hagsmuna ykkar
Austfirðinga?
„Við þurfum ekki fleiri þingmenn
fyrir kjördæmið, það er ekki þannig,
en það þurfa allir þingmenn að vera
meðvitaðir um að eigi að halda úti
byggð í landinu þá kostar það pen-
inga.“
Spurð hvort hún hafi áhyggjur
af stöðu Austurlands í fjárlaga-
vinnunni svarar Sigrún því til að
hún hafi áhyggjur af landsbyggð-
inni í heild. „Það er sérkennilegt
hvernig menn virðast ekki taka
mið af aðstæðum í hinum dreifðari
byggðum þegar verið er að deila
út fjármagni. Það er enginn að tala
um að ausa fé þangað sem ekki þarf
en það þarf að fjármagna grunn-
þjónustu eins og heilbrigðiskerfið,
löggæslu og annað þvíumlíkt.“ n
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is
AustfirðingAr
n Óttast um hag sinn í fjárlagavinnu
n Hefðu viljað fá inn varaþingmann
óánægðir
með fjArveru
sigmundAr
„Auðvitað eiga
þingmenn að
mæta í sína vinnu.
Hefði viljað fá Líneik Sigrún Blöndal,
formaður Sambands sveitarfélaga á Austur-
landi, hefði viljað sjá Sigmund Davíð kalla inn
varamann sinn, Líneik Önnu Sævarsdóttur.
Austfirðingar óánægðir
Austfirðingar hafa áhyggjur
af því að fjarvera Sigmundar
Davíðs komi niður á hagsmun-
um landshlutans í fjárlaga-
vinnunni. Mynd SigtRygguR ARi