Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Side 8
Jólablað 22. desember 20168 Fréttir
Héðinsgata 2 . 105 Reykjavík . www.tolli.is
Glæsilegir púðar
Opið alla daga fram að jólum frá kl. 14-17
stærð 52x52 cmVerð kr. 19.300,-
F
innur Reyr Stefánsson, fjár
festir og varaformaður stjórnar
Kviku fjárfestingarbanka, seldi
hluta af bréfum sínum í bank
anum þegar hjónin Svanhild
ur Nanna Vigfúsdóttir og Guðmundur
Örn Þórðarson, fyrrverandi eigend
ur Skeljungs, og fjárfestirinn Sigurður
Bollason keyptu í lok síðasta mánað
ar samanlagt um fimmtán prósenta
hlut í bankanum. Fjárfestingarfélag
ið Snæból ehf., sem er í eigu Finns
Reyrs og eiginkonu hans, Steinunnar
Jónsdóttur, seldi þá 1,87 prósenta hlut
í bankanum. Þau eru hins vegar eft
ir sem áður á meðal stærstu hluthafa
Kviku með 7,32 prósenta hlut í gegn
um eignarhald sitt á félaginu Siglu,
sem er jafnframt í eigu Tómasar Krist
jánssonar, viðskiptafélaga þeirra.
DV greindi frá því 2. desember
síðastliðinn að hjónin Svanhildur og
Guðmundur og Sigurður Bollason,
stærstu einkafjárfestarnir í hluthafa
hópi tryggingafélagsins VÍS, hefðu
fjárfest í bankanum nokkrum dögum
áður en tilkynnt var um að stjórn
ir Kviku og Virðingar hefðu undir
ritað viljayfirlýsingu um að hefja
undirbúning að samruna félaganna.
Samkvæmt uppfærðum hluthafalista
Kviku eru Svanhildur og Guðmundur
nú þriðju stærstu hluthafar bank
ans með 8,06 prósenta hlut í gegn
um félagið K2B fjárfestingar. Félagið
Grandier ehf., sem er í eigu Sigurðar,
er hins vegar sjöundi stærsti hluthafi
Kviku með 7,05 prósenta hlut. Kaup
verð þessara tveggja félaga á ríflega
fimmtán prósenta hlut í bankanum
nam samanlagt um milljarði króna.
Bankinn seldi eigin bréf
Á meðal þeirra sem seldu hluti
sína í Kviku til félags hjónanna og
Sigurðar, eins og áður hefur verið
upplýst um í DV, var eignaumsýslu
félagið Klakki sem átti 3,12 prósenta
hlut auk þess sem ýmsir fyrrverandi
og núverandi starfsmenn Straums
fjárfestingarbanka, sem sameinað
ist MP banka undir nafninu Kviku
sumarið 2015, seldu bréf sín í bank
anum. Sigþór Jónsson, sem gegnir
núna starfi forstjóra Íslenskra verð
bréfa, seldi þannig rúmlega 1,6 pró
senta hlut sinn í Kviku sem hann átti í
gegnum félagið Salvus. Kaupverðið á
bréfunum í Kviku var á genginu rúm
lega einn miðað við áætlað eigið fé
bankans í árslok 2016, sem verður að
óbreyttu um 6,6 milljarðar króna, og
því hefur Sigþór fengið um 110 millj
ónir króna fyrir sinn hlut í bankanum.
Þá sýnir nýr hluthafalisti Kviku
jafnframt að bankinn seldi sín eigin
bréf sem námu um 2,7 prósenta hlut
í bankanum. Fyrir þá sölu átti Kvika
tæplega fjögurra prósenta hlut í
sjálfum sér. Þau bréf höfðu að stærst
um hluta komist í hendur bankans
eftir að samkomulag náðist fyrr á
þessu ári um að Kvika myndi kaupa
samanlagt um 2,5 prósenta hlut sem
var í eigu Haraldar I. Þórðarson
ar, framkvæmdastjóra Fossa mark
aða, og Steingríms Arnars Finns
sonar, forstöðumanns markaða hjá
Fossum. Haraldur og Steingrímur
höfðu áður verið lykilstarfsmenn í
markaðsviðskiptum hjá Straumi fjár
festingarbanka en létu af störfum þar
í ársbyrjun 2015 og stofnuðu í kjöl
farið verðbréfafyrirtækið Fossa.
600 milljónir til hluthafa
Í aðdraganda sameiningar Kviku
og verðbréfafyrirtækisins Virðingar
stendur til að lækka eigið fé Kviku um
600 milljónir og greiða þá fjármuni út
til hluthafa bankans. Eftir samruna
félaganna munu hluthafar Kviku
eiga 70 prósenta hlut í sameinuðu
félagi en hluthafar Virðingar 30 pró
sent. Síðastliðinn mánudag sendi
Kvika síðan frá sér tilkynningu þar
sem sagði að stjórnir félaganna
hefðu náð samkomulagi um helstu
skilmála í tengslum við fyrirhug
aðan samruna með fyrirvara um
niðurstöður áreiðanleikakannana og
samþykki hluthafafunda og eftirlits
aðila. Í byrjun nýs árs hefst vinna við
áreiðan leikakannanir og viðræður
um nánari útfærslu á sameiningu fé
laganna.
Boðaður samruni fjármálafyrir
tækjanna á sér nokkurn aðdraganda
en DV greindi fyrst frá því þann 21.
október að Virðing hefði gert kaup
tilboð, með fyrirvara um fjármögn
un, í hlutabréf í Kviku með það að
markmiði að sameina félögin. Stjórn
Kviku taldi aftur á móti ekki ástæðu
til að koma því tilboði áleiðis til
hluthafa enda væri það fjarri því að
vera nægjan lega hagstætt. Tæplega
mánuði síðar kom Virðing með nýtt
og endurbætt tilboð í allt hlutafé
Kviku. Í bréfi sem stjórn Kviku sendi
til hluthafa kom fram að hún mælti
sömuleiðis ekki með tilboðinu, þar
sem Virðing væri metið alltof hátt í
samanburði við Kviku, heldur taldi
hún réttara að félögin yrðu sam
einuð á grundvelli þess að Kvika
gerði hluthöfum Virðingar kauptil
boð í bréf þeirra. Niðurstaðan var að
lokum hins vegar sem fyrr segir sú
að eigið fé Kviku yrði lækkað um 600
milljónir króna með útgreiðslu til
hluthafa sem myndu í kjölfarið eiga
sjötíu prósenta hlut í sameinuðu fé
lagi.
Stærstu hluthafar Kviku í dag eru
Lífeyrissjóður verslunarmanna með
9,6 prósenta hlut og félagið Brim
garðar ehf. með 8,73 prósenta hlut
en það er í eigu systkinanna Gunnars
Þórs, Guðnýjar Eddu, Halldórs Páls
og Eggerts Árna Gíslabarna. n
Varaformaður stjórnar seldi
tæplega tvö prósent í Kviku
n Finnur Reyr seldi hluta af bréfum sínum n Forstjóri ÍV seldi 1,6% hlut fyrir um 110 milljónir
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
Fjárfestir Eftir að
Snæból seldi hlut
sinn í Kviku eiga
Finnur Reyr og eigin
kona hans, ásamt
Tómasi Kristjáns
syni, 7,32 prósent í
bankanum í gegnum
félagið Siglu.