Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Síða 13
Jólablað 22. desember 2016 Fréttir 13
Stáltech ehf. - tunguhálSi 10, Reykjavík - S: 5172322
CNC renniverkstæði
Fæst í helstu apótekum og Eyesland gleraugnaverslunum
Frábær
jólagjöf!
Augnhvílan getur minnkað þreytu í augum,
hvarmabólgu og haft jákvæð áhrif á augn-
þurrk, vogris, rósroða í hvörmum/augnlokum
og vanstarfsemi í fitukirtlum.
Augnhvílan
Dekraðu við augun
desember nk. Bregðist Alþingi ekki
við úrskurðinum er því beint til for
sætisnefndar að gera breytingu á
samþykkt um kjör og starfsaðstöðu
kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkur
borg.“ Á fundi forsætisnefndar borg
arinnar 16. desember síðastliðinn
var síðan samþykkt að framlengja
þessa ákvörðun til 31. janúar 2017.
Í minnisblaði fjármálaskrifstofu
sem að framan er nefnt er miðað við
launakjör eins og þau eru nú, hlutfall
af þingfararkaupi áður en til hækkun
ar kjararáðs kom. Kostnaður vegna
launa borgarfulltrúa mun aukast um
rúmar 92 milljónir króna á ári við
fjölgun þeirra eftir næstu kosningar,
sé miðað við þá útreikninga. Verði
ekki gerðar breytingar á þingfarar
kaupi og laun borgarfulltrúa reiknuð
út frá þeim munu laun þeirra hækka
um komandi áramót í 856.949 krón
ur á mánuði og heildarlaunakostn
aður því aukast í samræmi við það
en ekki liggur fyrir hversu mikið. Í
grunnlaunum borgar fulltrúa felast
greiðslur fyrir setu í nefndum og ráð
um borgarinnar, þar með talið for
mennsku í nefndum, innkomu borg
arfulltrúa sem varamanna í nefndir
og setur þeirra sem áheyrnarfull
trúa í nefndum. Gert er ráð fyrir að
borgarfulltrúar sitji að lágmarki í
einni eða tveimur nefndum, eftir
vægi þeirra. Laun skerðast uppfylli
borgarfulltrúar ekki þær skyldur en
aukast sitji þeir í fleiri nefndum.
Launakostnaður gæti lækkað
Fyrstu varaborgarfulltrúar hvers lista
fá í dag greidd föst laun sem nema 70
prósentum af grunnlaunum borg
arfulltrúa, eða 415.604 krónum á
mánuði. Hækki laun borgarfulltrúa
í samræmi við hækkun þingfarar
kaups líkt og rakið er hér að fram
an munu laun fyrstu varaborgar
fulltrúa einnig hækka, í rétt tæpar
600 þúsund krónur á mánuði. Í dag
nemur kostnaður vegna fastra launa
fyrstu varaborgarfulltrúa, sem eru
sex talsins sem stendur, rúmum 47
milljónum króna á ári. Kostnaður
vegna þóknana til annarra kjör
inna fulltrúa vegna setu þeirra í
fastanefndum borgarinnar nemur
tæpum 78 milljónum króna á ári.
Samkvæmt annarri sviðs
myndinni sem unnið er með munu
föst laun fyrstu varaborgarfulltrúa
verða felld niður sem og föst þóknun
annarra sem sitja í fastanefndum
borgarinnar. Þess í stað yrði tekin
upp þóknun fyrir hvern fund sem
nefndarmenn myndu sitja og er
reiknað með að hver nefnd fundi að
meðaltali tvisvar sinnum í mánuði.
Heildarkostnaður vegna fundarsetu
er metinn 4,6 milljónir króna á ári
miðað við þessar forsendur. Yrði
þessi sviðsmynd að veruleika er gert
ráð fyrir að launakostnaður borgar
innar vegna starfa kjörinna fulltrúa
myndi lækka um rúmar 28 milljón
ir króna.
Sé hins vegar gert ráð fyrir að
fyrstu varaborgarfulltrúar fá áfram
greidd föst laun, líkt og nú er, er gert
ráð fyrir að launakostnaður muni
hækka um tæpar 19 milljónir á ári.
Ekki verið tekin ákvörðun
Þá eru einnig lagðar fram þrjár mis
munandi tillögur um breytingar á
hverfisráðum borgarinnar. Er þar
fjallað um nokkurn veginn óbreytt
ástand, fækkun ráða ásamt því að
fækka þeim sem fá greitt fyrir setu
í þeim. Er kostnaður vegna tillagn
anna metinn frá því að hafa í för
með sér tæplega fjögurra milljóna
kostnaðarauka og upp í ríflega 31
milljónar króna sparnað.
Sé horft á þær mismunandi sviðs
myndir sem birtar eru í minnisblaði
fjármálaskrifstofu, bæði hvað varð
ar launagreiðslur fyrstu varaborgar
fulltrúa og varðandi breytingar á
hverfisráðum, eru niðurstöðurn
ar þær að mögulegt er að lækka
launakostnað um 59,5 milljón
ir króna á mánuði með ýtrustu
sparnaðartillögunum. Hins
vegar, ef fyrstu varaborgarfulltrú
ar fá enn greidd föst laun og fjöldi
hverfisráða helst óbreyttur, myndi
það þýða kostnaðaraukningu upp á
22,7 milljónir króna á mánuði. Allt
miðast þetta þó við laun sem taka
mið af þingfararkaupi áður en kjara
ráð hækkaði það í lok október. Ekki
liggja fyrir heildarútreikningar á því
hvað það myndi hafa í för með sér ef
laun borgarfulltrúa myndu hækka í
samræmi við þá hækkun en ljóst er
að við það myndu forsendur breytast
nokkuð. Tillögurnar eru sem stendur
til umræðu í forsætisnefnd borgar
stjórnar. n
Kostnaður gæti lækkað eða hækkað Launakostnaður kjörinna fulltrúa gæti hækk-
að en eins lækkað eftir því hvaða tillaga verður ofan á í borgarstjórn. Mynd Bragi Þór
Bíða ákvörðunar alþingis
Borgarstjórn, undir forystu
Dags B. Eggertssonar, sam-
þykkti að bíða með hækkun
launa borgarfulltrúa í tengsl-
um við ákvörðun kjararáðs þar
til Alþingi hefði tekið ákvörðun
um sín viðbrögð. Mynd Sigtryggur ari
S
áralitlar líkur eru til þess að
takast muni að mynda ríkis
stjórn fyrir áramót. Bæði er
það vegna þess að mikil orka
fer nú í að afgreiða fjárlög en eins
telja forystumenn flokkanna ekki
liggja jafn mikið á nú og skömmu
eftir kosningar. Þótt ný ríkisstjórn
næði saman myndi hún ekki geta
sett mark sitt á fjárlög að neinu ráði
og því liggur ekki lífið á. Náist hins
vegar ekki saman um ríkisstjórnar
myndun fljótlega á nýju ári má fast
lega gera ráð fyrir að boðað verði til
kosninga í vor.
Þetta herma heimildir DV og eins
er þetta skoðun stjórnmálafræðinga
sem blaðið hefur rætt við. Stefanía
Óskarsdóttir, dósent í stjórn
málafræði við Háskóla Íslands, segir
að hugsanlega muni einhverjar lín
ur skýrast í fjárlagavinnunni og ein
hver bandalög myndast. „Það gefur
kannski einhverjar vísbendingar að
fjórir flokkar skuli standa saman að
meirihluta í lífeyrissjóðamálinu. Það
er einmitt draumaríkisstjórn Bjarna
Benediktssonar, sem að samanstæði
af Sjálfstæðisflokki, Framsóknar
flokki, Viðreisn og Bjartri framtíð.“
Grétar Þór Eyþórsson, prófessor
í stjórnmálafræði við Háskólann
á Akur eyri, segir að samkomulag
flokkanna fjögurra sýni ekkert annað
en að Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn
og Björt framtíð séu á sömu línu og
það þurfi ekki að koma á óvart. Óvar
legt sé hins vegar að lesa út úr stöð
unni að mynduð verði ríkisstjórn
allra þessara flokka. „Þeir hafa talað
nokkuð afdráttarlaust, Óttarr og
Benedikt, um að þeir hafi ekki áhuga
á stjórnarsetu með Framsóknar
flokknum. Ég get ekki séð hvað ætti
að hafa breyst í því.“ n
Ríkisstjórn vart mynduð á árinu
Kosningar líklegar ef stjórnarmyndun tekst ekki fljótt á nýju ári