Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Page 30
Jólablað 22. desember 201626 Skrýtið Sakamál
Á
aðfangadag 2008 klæddi
Bruce Jeffrey Pardo sig í
jólasveinsbúning. Síðan lá
leið hans að heimili fyrr-
verandi tengdaforeldra
hans í Covina í úthverfi Los Angeles
í Bandaríkjunum. En því fór fjarri
að Bruce væri í jólaskapi þegar
hann bankaði á dyrnar klukkan hálf
tólf um kvöldið. Reyndar var hann
með jólapakka í annarri hendi en
í hinni var hann með hálfsjálfvirka
skammbyssu. Að auki hafði hann
þrjár viðlíka byssur í pússi sínu.
Skotið á allt sem hreyfist
Þegar dyrnar opnuðust kom átta
ára stúlka hlaupandi til „jólasveins-
ins“ og skaut Bruce hana í andlitið
(það skal strax tekið fram að stúlk-
an særðist en lifði af). Síðan lét
hann kúlunum rigna yfir allt sem
hreyfðist og var af nógu að taka því
25 manns voru í jólateitinni.
Leiða má líkur að því að Bruce
hafi í sumum tilfellum staðið yfir
sumum fórnarlömbunum og nán-
ast tekið þau af lífi. Þegar Bruce
var búinn að skjóta nægju sína tók
opnaði hann „jólapakkann“ sem
hann hafði komið með.
Banvæn jólagjöf
Jólagjöf Bruce reyndist vera heima-
gerð eldvarpa og þegar hann hafði
beitt henni var húsið alelda. Þegar
upp var staðið höfðu níu manns
misst lífið, annaðhvort vegna
skotsára eða eldhafsins. Þrennt var
sært; átta ára stúlka, sem áður er
getið, 16 ára stúlka, sem hafði verið
skotin í bakið, og 20 ára kona, sem
ökklabrotnaði þegar hún stökk út
um glugga á annarri hæð.
Það tók slökkviliðið hálfan
annan tíma að ráða niðurlögum
eldsins og þurfti að nota tann-
læknaskýrslur til að bera kennsl á
sum fórnarlambanna.
Á meðal hinna látnu voru fyrr-
verandi eiginkona Bruce, Sylvia, og
tengdaforeldrar, Joseph og Alicia
Ortega.
Breytt áform
Að árás lokinni fór Bruce úr jóla-
sveinsbúningnum og íklæddist
venjulegum klæðnaði. Síðan ók
hann sem leið lá heim til bróður
síns í Sylmar í tæplega 50 kílómetra
fjarlægð. Þar fannst hann síðar,
liðið lík eftir að hafa skotið sjálfan
sig, fyrir mistök eða viljandi.
Bruce hafði keypt flugmiða
til Kanada, en reyndar einnig
til Illinois, með millilendingu í
Minnesota. Talið var að hann hefði
með þessu viljað villa um fyrir lög-
reglunni. En Bruce fór sem sagt
hvergi og kann að vera að þriggja
stigs brunasár á handleggjum hans
hafi haft áhrif á fyrirætlanir hans.
Innanklæða á honum fann lög-
reglan 17.000 dali sem verður að
teljast álitleg upphæð.
Gildra í jólasveinsbúningi
Bruce hafði lagt bifreið sinni
skammt frá heimili bróður síns. Í
bílnum var jólasveinsbúningur-
inn sem hann hafði notað. Bruce
hafði búið þannig um hnútana að
ef búningurinn yrðir tekinn yrði
bílinn alelda. Sprengjudeild lög-
reglunnar tók enga áhættu hvað
bílinn áhrærði og sprengdi hann í
loft upp.
Við líkið af Bruce voru fjórar
hálfsjálfvirkar skammbyssur og
að minnsta kosti 200 skot. Heima
hjá Bruce, í Montrose, fann lög-
reglan fimm tómar öskjur utan af
skammbyssum, tvær haglabyssur
og bensín dunk.
Skilnaður og framfærsla
Hvað ástæður ódæðisins varðaði
taldi lögreglan að þær mætti rekja
til hjúskaparvandamála. Fyrrver-
andi eiginkona Bruce hafði sótt um
skilnað eftir eins árs hjónaband og
töldu sumir að orsökin hefði verið
barn Bruce frá fyrra sambandi, sem
hann hafði þó ekki séð ástæðu til að
upplýsa eiginkonu sína um.
Bruce hafði einnig krafist þess
að hann og Sylvia hefðu aðskil-
inn fjárhag og til að kóróna allt fór
hann fram á að hún notaði eigin fé
til að sjá þremur börnum hennar
farborða.
Við skilnaðinn var úrskurðað
að Bruce skyldi greiða 1.784 dali
mánaðarlega í framfærslu auk þess
sem Sylvia fékk 10.000 í sinn hlut.
Hafði Bruce á orði, við vin sinn, að
Sylvia væri að blóðmjólka hann.
Með einhverjum hætti varð ljóst
að Bruce ætlaði einnig að bana
sinni eigin móður því hún hafði
hallast um of á sveif með Sylviu
þegar skilnaðurinn var að ganga í
gegn. En það gekk ekki eftir. n
Uppgjör
á aðfangadagskvöld
n Það var ekki vingjarnlegur, þriflegur jólasveinn sem knúði dyra hjá Ortega-fjölskyldunni
Í ljósum
logum Bruce
Pardo notaði
heimagerða
eldvörpu við
morðin.
„Bruce ætlaði
einnig bana sinni
eigin móður því hún
hafði hallast um of á
sveif með Sylviu.
Sylvia Ortega Pardo Fyrrverandi eigin
kona Bruce var á meðal fórnarlambanna.
Bruce Pardo Íklæddur jólasveinsbúningi lét hann kúlum rigna yfir fyrrverandi tengda
fjölskyldu sína.