Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Blaðsíða 34
Jólablað 22. desember 201630 Heilsa
Þ
að er víst aldrei nógu oft
kveðin sú vísa að svefn er
okkur öllum mikilvægur,
bæði andlega og líkam-
lega. Það er á þessum tíma
sem líkaminn endurnærist og hleð-
ur batteríin svo við getum tekist á
við næsta dag full af orku og fagn-
að þeim verkefnum sem hann fær-
ir okkur. Þegar við höfum upplifað
það að vera svefnlaus skiljum við vel
hversu stórt hlutverk í okkar daglega
lífi svefninn leikur og skyldi maður
ekki taka honum sem sjálfsögðum
hlut, sérstaklega þegar við eldumst.
Eitt af stærstu heilsufarsvanda-
málum samtímans eru svefnleysi og
svefntruflanir en við þekkjum ótal-
margar birtingarmyndir þessa. Ef
við reynum að skilgreina svefnrask-
anir almennt þá má segja að það
sé ástand sem hefur áhrif á hversu
mikið og hversu vel einstaklingur-
inn sefur og þar af leiðandi getur
það haft áhrif á hann til skemmri og
lengri tíma. Svefnmunstur og svefn-
venjur eru líklega stærsti þátturinn
í vanda þeirra sem glíma við slíkar
raskanir og oftsinnis gera einstak-
lingar sér ekki grein fyrir því og
þurfa aðstoð til að breyta venjum
sínum.
Fjögur stig svefns
Uppbygging svefns er margslungið
fyrirbæri og skiptist í fjögur dýptar-
stig sem sveiflast frá léttum og yfir í
djúpan svefn auk þess að skilgrein-
ast sem svefn með og án svokallaðs
REM (Rapid Eye Movement) en á
þeim tíma erum við að dreyma. Sá
hluti tímans þar sem okkur dreym-
ir er um fjórðungur af svefni full-
orðinna en allt að helmingur hjá
börnum og eykst jafnan eftir því
sem nær dregur morgni eða vöku-
ástandi.
Það er í hinu NONREM ástandi
sem við hvílumst og endurnærumst
og hafa svefntruflanir alla jafna
mest áhrif á hinn djúpa svefn sem
fer fram á þriðja og fjórða dýptar-
stigi. Þá er mikilvægt að hafa í huga
að eðlilegur svefn breytist með aldr-
inum og er einnig að vissu leyti
einstaklingsbundinn, en fullorðnir
þurfa á bilinu 7–8 klukkustunda
svefn á sólarhring að því talið er.
Veruleg áhrif
Það er hægt að skipta svefnvanda-
málum í tilfallandi vandamál sem
standa í viku eða skemur, bráðan
svefnvanda sem stendur í mánuð
eða skemur og svo krónískar svefn-
truflanir sem standa lengur yfir. Öll-
um er sammerkt að geta haft veruleg
áhrif á andlega og líkamlega líð-
an, en orsakir og meðhöndlun geta
verið mjög mismunandi. Algengar
orsakir sem tengjast vanahegðun
og er tiltölulega auðvelt að breyta
til hins betra eru til dæmis kaffi eða
koffínneysla seinnipart dags eða að
kvöldi, reykingar, áfengis drykkja,
sjónvarpsgláp eða tölvunotkun fyrir
svefn, þungar og kryddaðar mál-
tíðir að kvöldi, að sofna með ljósin
kveikt, lítil eða ónóg líkamleg hreyf-
ing, of mikil líkamsþjálfun sérstak-
lega stuttu fyrir svefn, óreglulegur
háttatími og vaktavinna svo eitthvað
sé nefnt geta haft verulega slæm
áhrif á svefn okkar.
Undirliggjandi sjúkdómar eða
vandamál eru til dæmis kæfisvefn
sem er oft vangreindur, verkjaheil-
kenni ýmiss konar, „restless legs
syndrome“, geð- og kvíðasjúkdómar,
hormónaójafnvægi kvenna í tíða-
hvörfum eða á meðgöngu, skjald-
kirtilstruflanir, brjóstsviði, fíkniheil-
kenni, streita og álag og svona mætti
eflaust lengi telja.
Verri í vinnu
Þeir sem eru vansvefta eru í auk-
inni hættu á að glíma við truflun á
einbeitingu og þannig standa sig
verr í vinnu, þeir geta verið bein-
línis hættulegir við stjórn ökutækja.
Þeir eru líklegri til að eiga í sam-
skiptaerfiðleikum, vera uppstökkir
og með lyndisraskanir. En fyrir utan
þessa upptalningu eru svefntrufl-
anir áhættuþáttur fyrir þróun alvar-
legra sjúkdóma eins og til dæmis
sykursýki, hjarta- og æðasjúkdóma
og heilabilunar.
Kynlíf bætir svefn
Greining á svefnvanda fer fyrst og
fremst fram með svefndagbók til
að átta sig á hegðunar- og neyslu-
mynstri einstaklingsins, undirliggj-
andi sjúkdómum og lyfjanotkun
en einnig með flóknari aðferðum
eins og svefnriti sem getur greint á
milli mismunandi orsaka eins og
til dæmis kæfisvefns. Meðferð við
slíkum truflunum byggir vitaskuld
á eðli þeirra truflana sem við er að
eiga hverju sinni en góður árangur
næst með því að breyta út af slæm-
um venjum, borða léttar á kvöldin
og taka til sín flóknari kolvetni og
prótein svo dæmi séu tekin. Gott er
að stunda slökun og samtalsmeð-
ferð, jafnvel kynlíf sem hefur slak-
andi og svefnbætandi áhrif.
Þá beita margir hugrænni
atferlis meðferð með góðum árangri
og hefur komið á daginn að slík
meðferð getur dugað jafnvel betur
en lyfseðilsskyld svefnlyf sem oftar
en ekki eru ofnotuð og fólk ánetjast
að óþörfu. Sértækar meðferðir eins
og við kæfisvefni eru fjölmargar en
sumir þurfa að sofa með vél til að
hvílast. Ef þú glímir við svefnvanda
ættir þú að skoða vel venjur þínar
og ræða við lækni þinn til að hægt sé
að átta sig á því hvaða úrræði hentar
þér og reyndu að forðast sem lengst
að nota svefnlyf sé það mögulegt. n
Góður svefn gulli betri
n Gott er að stunda slökun og samtalsmeðferð við svefnleysi n Kynlíf getur haft svefnbætandi áhrif
Teitur Guðmundsson
læknir
Útsofin kona Þeir sem sofa vel eiga betra
með að stunda vinnu. Mynd 123rF.coM
ráð sem segir sex
Kynlíf er á meðal þess
sem getur haft slakandi
og svefnbætandi áhrif.