Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Page 39
Jólablað 22. desember 2016 Menning 35 dottið úr vösum hans þegar við vor- um á hlaupum eftir hrjúfum ísnum. Stormurinn var að koma æðandi niður fjöllin og á heimleið þurft- um við að berjast á móti veðrinu. Hjelmer nefndi við mig hvort ég væri tryggður ef ske kynni að við þyrftum að hringja á þyrlu ef ske kynni að ís- inn myndi brotna og við fljóta á haf út á ísjaka. Ég sagði honum að ég hefði gleymt að tryggja mig. „Þeir myndu bjarga okkur veiðimönnun- um en þú myndir þurfa að borga fyrir björgun,“ sagði hann. Ég horfði á hann og sagði: „Ég geng heim, þið farið bara í þyrlunni.“ Hann þagði, horfði á mig smástund, leit svo upp til fjalla og sagði: „Ég geng með þér.“ Þegar við komum til baka í þorpið tók Hjelmer brosandi utan um mig og sagði: „Þú veist að þú ert alltaf velkom- inn heim til mín. Ég vissi ekki að þú gætir verið svona mikill töffari.“ Eftir 30 ára góða vináttu hafði ég loksins stað- ist prófið. En ég var enginn töffari, ég var skíthræddur. Ég átti bara ekki þrjár milljónir fyrir þyrlunni.“ n„Ég nýt þagnarinnar en ég óttast hana einnig. Þegar maður er einn lengi, kannski í hálfan mánuð til þrjár vikur, og veit ekki hvort ein- hver annar er á lífi í heiminum þá þarf maður að hugsa allt upp á nýtt. Í þögninni sér maður stundum kján- ann í manni sjálfum og öðrum. Við nútímamennirnir erum alltof stress- aðir og megum alveg slaka aðeins á. Ég get ekki farið í jóga eða hugleiðslu í borgarsamfélaginu, ég myndi ekki virka þar, en það gerist alveg sjálf- krafa þarna úti í náttúrunni.“ Hefurðu lent í lífshættu á ferðum þínum? „Ég hugsa eiginlega aldrei um það. Auðvitað er hættulegt að hoppa á milli ísjaka í stormi úti á ballarhafi en um leið treysti ég veiðimönnunum sem eru með mér í för. Ég hef lent í aðstæð- um sem hafa virkilega reynt á mig. Ég hef samt aldrei hugsað með mér að ég væri í lífshættu, ég vil ekki hugsa þannig. Ég fer alltaf varlega og mun meir nú en þegar ég var yngri. Mér hef- ur líka oft fundist að yfir mér sé vernd. Ég veit ekki alveg af hverju ég hef þörf fyrir að fara á afskekkta staði með myndavél. Það er eins og ég þurfi að gera þetta. Ég veit ekkert af hverju en ég ræð ekkert við þetta. Þetta er mín köllun.“ Fólk með sögu í andlitinu Hefur konan þín aldrei áhyggjur af þér á þessum ferðalögum? „Hún er mjög róleg og treystir því að ég komi aftur. Ég held að krakkarnir mínir hafi stundum haft áhyggjur.“ Hvenær eignaðistu fyrstu mynda- vélina? „Ég fékk fyrstu myndavélina í fermingargjöf frá pabba og mömmu en var byrjaður að taka myndir átta ára gamall. Ég var í sveit á Kvískerj- um í Öræfum og fékk þá lánaða vél- ina hans pabba. Þarna bjuggu sjö syst kini, fimm bræður og tvær systur sem báðar hétu Guðrún í höfuðið á sitt hvorri ömmunni. Þær týpur sem ég hitti í dag og ljósmynda eru týpurnar sem voru þar, fólk með sögu í andlitinu. Ég hlustaði á þetta fólk og lærði af því. Af þessum systkinum lærði ég til dæmis að sýna eldra fólki virðingu og meta þekkingu þess. Í dag finnst mér oft skorta á að yngra fólk sýni þeim eldri virðingu.“ Þú hittir merkilegt fólk á ferðum þínum, hvað hefurðu lært af því? „Þetta er fólk sem heyr lífsbaráttu sem er allt öðru vísi en við eigum að venjast. Við Íslendingar erum stundum að kvarta og kveina. Ég þegi í þannig aðstæðum. Erfiðleikar okkar eru ekki neitt miðað við erfiðleika þessa fólks. Ég á marga vini meðal veiði- manna. Einn þeirra er grænlenskur, Hjelmer sem er yfirburða greindur. Hann kann á náttúruna, er orðinn eins og hluti af henni og útskýrir fyrir manni á hógværan þátt hvernig hún virkar. Þegar vísindamenn eru að skoða það sem er að gerast þá vantar alveg þennan kafla í þekkingu þeirra. Þeir ættu að ræða við þessa veiði- menn því það myndi bæta miklu við þekkingu þeirra. Ég á marga fína vini, vísindamenn, sem ég hef sagt þetta við og þeir hafa sumir farið á þessar slóðir og viðurkennt seinna að það hafi verið það eina rétta. Mér finnst mikilsvert þegar menn eru að fjalla um norðurslóðir eða rannsaka þær að þeir fari á staðina og upplifi ver- una þar. Eftir að hafa verið þarna í 30 ár þá líður mér, þegar ég geng á ísn- um, eins og ég sé að ganga á bráðn- uðum blaðsíðum í heimssögunni.“ Rétta hugarfarið Þú hlýtur að þola kulda vel, annars værirðu ekki á þessum ferðalögum. „Ég þoli kulda nokkuð vel og fer í sjósund í öllum veðrum. Grænlenskur veiðimaður sagði einu sinni við mig: „Þú hefur val. Þú getur valið að þér verði kalt vegna þess að þú ert stöð- ugt að hugsa um það og hefur áhyggj- ur af því. Eða þú hugsar sem svo að þú sért að fara að sjá eitthvað það stór- kostlegasta sem hægt er að sjá og um leið verður þér heitt.“ Ég ákvað að vera glaður og kátur og mér leið miklu bet- ur. Maður hefur val og ef maður er með rétta hugarfarið þá verður ferðin fín. Ég var á Grænlandi fyrir fjórum árum með nokkrum veiðimönnum, þar af Hjelmer vini mínum sem ég hef þekkt í 30 ár. Þeir höfðu komið auga á fjóra ísbirni og ætluðu sér að fanga einn þeirra. Ég sagðist ætla með en var sagt að það væri bannað. „Þú veist að ég ætla með,“ sagði ég við Hjelmer og sá í augunum á hon- um að hann gaf mér leyfi. Það var stormviðvörun þennan dag. Ég elti veiðimennina nokkra kíló- metra eftir ísröndinni. Þeim tókst að veiða einn ísbjörn en einhvers staðar voru þrír ísbirnir sem við sáum ekki. Hinir veiðimennirnir voru skammt frá með byssur en Hjelmer var skot- færalaus, byssukúlurnar höfðu „Ég nýt þagnar- innar en ég óttast hana einnig Ísbjörn Myndina tók Rax á Grænlandi. Alltaf á vaktinni Við Grænlandsstrendur. Mynd StinniFoto Vinnum fyrir öll tryggingafélög Skútuvogi 12h, Reykjavík S: 568-9620 - bilaretting.is Útvegum bifreið meðan á viðgerð stendur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.