Fréttablaðið - 29.06.2017, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 29.06.2017, Blaðsíða 40
Elín Albertsdóttir elin@365.is Heilsubælið í Gervahverfi eru einhverju vinsælustu íslensku grínþættirnir sem gerðir hafa verið. Á þessu ári eru 30 ár síðan þeir fóru í loftið. Þættirnir voru teknir upp í stúdíói Stöðvar 2 á Lynghálsi 5 og voru átta þættir gerðir. Allir þeir sem eru komnir til vits og ára muna eftir Saxa lækni, dr. Sigríði, Hallgrími matsveini sem elskaði hvítlauk, dr. Adolf, Steina og Olla og öllum þessum skemmtilegu karakterum. Edda Björgvinsdóttir leik­ kona skrifaði handrit ásamt Gísla Rúnari Jónssyni og Ladda. Heilsu­ bælið í Gervahverfi var framleitt af Gríniðjunni og Íslenska sjónvarps­ félaginu fyrir Stöð 2. Fyrstu þættirnir fóru í loftið árið 1987 og Edda Björgvins minnist þeirra með gleði. Hún rifjar upp að þetta hafi verið ofboðsleg vinna, dag og nótt. „Allir þættirnir voru teknir upp á Lynghálsinum í þessu fína stúdíói að undanskildum útisenum og þetta var krefjandi vinna,“ segir hún. „Þetta var mjög magnað ævintýri. Þættirnir hafa lifað alveg ótrúlega vel með þjóð­ inni. Við vildum gera fleiri þætti á sínum tíma en það var sífellt verið að skipta um stjórnendur hjá Stöð 2 svo það varð aldrei úr því,“ segir hún. Hvítlaukurinn varð eiginlega landsfrægur í þessum þáttum og undir það tekur Edda. „Þarna fékk hann uppreist æru í Hálsa­ hverfinu,“ segir hún og hlær. „Sparaðu hvítlaukinn, Hallgrímur minn, hann kæfir mann út úr þér óþefurinn,“ er fræg setning Saxa læknis og félaga í þáttunum. „Ég vissi ekki að þættirnir ættu 30 ára afmæli og það er alveg ástæða til að gera eitthvað með það. Heilsubælið vakti gríðarlega athygli, það voru reyndar blendnar tilfinningar, sumum fannst þetta hryllilega gróft og ruddalegt á allan hátt á meðan öðrum fannst þetta stórkostlegt. Það væri gaman að sjá þessa þætti aftur,“ segir Edda. Heilsubælið er þrjátíu ára Edda Björgvinsdóttir og Laddi í hlutverkum sínum í Heilsubælinu. Þetta var mikil og krefjandi vinna, segir Edda en þættirnir voru teknir upp á Lynghálsi. ALHLIÐA ÞJÓNUSTA FYRIR STOÐTÆKI OG SPELKUR. FAGLEG RÁÐGJÖF Össur Stoðtækjaþjónusta Grjótháls 1-3 110 Reykjavík www.ossur.is Sími: 515 1300 innanlandsdeild@ossur.com Stoðtækjaþjónusta Höfuðstöðvar Markmið okkar er að veita faglegar lausnir sem bæta og auka lífsgæði fólks. Auk sérsmíði á gervihöndum, gervifótum og spelkum, eigum við fjölbreytt vöruúrval af spelkum vegna stoðkerfisvandamála, slita í liðum, slysa eða íþróttameiðsla. Ef óskað er eftir sérhæfðum lausnum er mælt með að bóka tíma hjá stoðtækjafræðingi í síma 515 1300 Einfaldari stuðningsvörur eru fáanlegar án tímapantana. Opnunartími er kl. 08:30-16:00 VEISLUR/FYRIRTÆKI 615 3100 rakang@rakang.is Frí sending á mat fyrir fyrirtæki ef keypt er fyrir fleiri en 5 manneskjur SÍMANÚMER 571 3100 RAKANG THAI Rótgróinn veitingastaður á Höfðanum STAÐSETNING Lyngháls 4 110 Reykjavík OPNUNARTÍMAR Mán - Föst 11:00–21:00 Lau - Sun 17:00–21:00 333 krá dag* 365.is Sími 1817 *9.990.- á mánuði. 4 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . j ú n í 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 2 9 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 8 0 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 3 9 -6 A A C 1 D 3 9 -6 9 7 0 1 D 3 9 -6 8 3 4 1 D 3 9 -6 6 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 8 0 s _ 2 8 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.