Fréttablaðið - 29.06.2017, Page 58
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Júlíana Hinriksdóttir
Rauðumýri 3,
Akureyri,
lést á heimili dóttur sinnar
miðvikudaginn 14. júní. Útför hennar fer
fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 12. júlí kl. 13.30.
Sigurður Hinrik Hjörleifsson Sjöfn Ragnarsdóttir
Elísabet Hjörleifsdóttir Guðmundur Heiðar
Frímannsson
Hjörleifur Árnason Þórhalla Sigurðardóttir
Kristján Sigurðsson Sandra Dögg Pálsdóttir
Lárus Arnór Guðmundsson Þóra Sif Ólafsdóttir
Jóhann Guðmundsson Ástríður Halldórsdóttir
Valgerður Guðmundsdóttir Karl Reynisson
og langömmubörn.
Ástkær sonur minn, faðir, bróðir og afi,
Finnbogi Steinar
Sigurgeirsson
loftskeytamaður,
Írabakka 32, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans
25. júní. Útför hans fer fram í
Laugarneskirkju fimmtudaginn 6. júlí klukkan 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast
hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Hulda Bertel Magnúsdóttir
Sigurgeir Steinar Finnbogason
Ingólfur Snævar Finnbogason
Ýmir Örn Finnbogason
Orri Freyr Finnbogason
Magnús Líndal Sigurgeirsson
og barnabörn.
Við erum að gera organist-anum svolítinn greiða. Hann vantar nýtt orgel, er orðinn þreyttur á að bíða eftir fjár-veitingu og notar okkur
vini sína,“ segir Kristján Jóhannsson
söngvari (ekki samt tenórinn að norð-
an) um áheitahjólatúr karlakvartettsins
Kónganna milli kirkna á Suðurnesjum á
laugardaginn. Glöggt mé heyra að Krist-
ján er ekki par hrifinn af áreynslunni sem
túrnum fylgir en finnst organistinn alveg
ágætur og málefnið enn betra.
„Organistinn er okkar fimmti með-
limur og undirleikari – en hann er mikill
hjólamaður, tímir ekki að eiga bíl og
á hugmyndina að þessu ævintýri. Við
höfum því, í okkar indæla skepnuskap,
látið hann um að skipuleggja þetta allt
saman.“
Hláturinn kraumar í Kristjáni. Hann
tekur þó fram að lagt verði upp í kristi-
legum anda og öllum sé velkomið að
slást í för. „Við erum búnir að neyða
alla nákomna til að vera með okkur og
vonandi koma einhverjir af fúsum og
frjálsum vilja,“ tekur hann fram og segir
„ábyrga aðila“ hafa farið yfir planið hjá
organistanum.
„Við komumst fljótt að því að ef við
ætluðum að dobla fólk með okkur yrði
að gera ráðstafanir. Einn af kóngunum
á gamlan hertrukk og ef einhver vill
henda hjólinu sínu upp á hann má það,
svo erum við líka með strætó. Þannig
getur fólk verið með og hvílt sig á milli.
Að sjálfsögðu verða þrír af kóngunum
að hjóla en við hinir, ábyrgu aðilarnir í
hópnum, ætlum að keyra vörubílinn og
strætóinn. Svo syngjum við alltaf saman.
Það er punkturinn.“
Þið tveir puðið þá ekki eins mikið og
hinir, bendir blaðamaður á. „Heldur þú
að það sé ekki puð að keyra strætó og
halda uppi stuði þar með einhverju liði
allan daginn? Svo þarf að róta fyrir þetta
lið, setja upp nóturnar og svona,“ segir
Kristján og þykist hneykslaður.
En hvað eru kirkjurnar margar og
hversu löng er vegalengdin? „Þetta er hell-
ingur af kirkjum og enn fleiri kílómetrar.
Við byrjum í Keflavík klukkan níu, þaðan
verður haldið í Útskálakirkju í Garði,
svo út að Hvalsnesi, þaðan út í Hafnir,
úr Höfnum í Grindavík, frá Grindavík í
Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd, í Innri-
Njarðvíkurkirkju, Ytri-Njarðvíkurkirkju
og endað í Keflavík. Alls eru þetta 113
kílómetrar og við reiknum með hálf-
tímastoppi á hverjum stað því Kóngarnir
syngja alls staðar. Þetta er alveg þokka-
lega erfitt. Þeir hinir fóru í æfingaferð
um daginn, ég var svo heppinn að vera á
Akureyri þá, og þeir eru enn að tala um
hvað hún hafi verið strembin.
En tilgangur ferðarinnar nú er að safna
í orgelsjóðinn og þeir sem vilja styðja
kóngareiðina geta lagt inn á reikning
0121-15-350005, kt. 680160-5789. Fólk
sem sagt heitir á Kóngana – hvort þeir
geti hjólað þetta eða ekki – það er sama
upphæðin!“ gun@frettabladid.is
Kóngar hjóla milli kirkna
Karlakvartettinn Kóngar mun hjóla í allar kirkjur Suðurnesja á laugardaginn og hefja
upp raust sína. Markmiðið er að safna áheitum í orgelsjóð Keflavíkurkirkju.
Kóngarnir Sveinn Sveinsson, Sólmundur Friðriksson, Kristján Jóhannsson, Elmar Þór Hauksson og Arnór B. Vilbergsson, kantor
Keflavíkurkirkju og stjórnandi.
Merkisatburðir
Árlegur barnadagur verður haldinn í
Viðey á sunnudaginn frá klukkan 13
til 16. Eins og nafnið bendir til er hann
helgaður börnum og fjölskyldum þeirra
enda er Viðey með sín fallegu tún og for-
vitnilegu fjörur kjörinn staður til að njóta
ævintýra. Útileikirnir verða á sínum stað
og fólki er bent á að hafa með sér háfa og
fötur fyrir rannsóknarleiðangur í fjöruna.
Sirkus Íslands skemmtir börnunum
með kúnstum, furðuverur heilsa upp á
krakkana í eyjunni og Húlladúllan kennir
þeim listina að húlla. Arnbjörg Kristín
jógakennari verður líka á staðnum með
fjölskyldujóga og slökun.
Hægt verður að kaupa grillaðar pylsur
við Viðeyjarstofu allan daginn og ókeypis
ís verður í boði á meðan birgðir endast.
Einnig geta krakkar spreytt sig á því að
poppa yfir opnum eldi.
Ferjurnar fara frá Skarfabakka yfir
sundið samkvæmt áætlun, eða eftir
þörfum. Oft myndast langar biðraðir í
ferjuna og því er nauðsynlegt að mæta
tímanlega til að ná fyrsta atriði dagsins.
Hægt er að kaupa miða í ferjuna daginn
áður í miðasölu Eldingar á Skarfabakka
í Sundahöfn. – gun
Furðuverur heilsa upp á börnin
Viðey er notalegur staður til að njóta útivistar og leikja.
1762 Katrín mikla tekur við keisaratign í Rússlandi eftir lát
eiginmanns síns Péturs 3.
1840 Hátíðahöld eru í Reykjavík í tilefni krýningar Kristjáns
VIII Danakonungs og drottningar hans.
1863 Fyrsta kirkjan er vígð á Akureyri.
1867 Grímur Thomsen, skáld og alþingismaður, kaupir
Bessastaði, þar var hann fæddur og upp alinn.
1912 Fyrsti leikurinn á fyrsta Íslandsmóti í knattspyrnu er
milli KR og Fram og endar 1-1.
1914 Fyrri heimsstyrjöldin hefst þegar Frans Ferdinand
erkihertogi er myrtur í Sarajevó.
1941 Hestamenn fjölmenna til Þingvalla sér til
skemmtunar.
1947 Landbúnaðarsýning er haldin í Reykjavík sem yfir
60.000 manns mæta á, eða hátt í helmingur landsmanna.
1973 Aðalfundir Flugfélags Íslands og Loftleiða samþykkja
báðir að félögin skuli sameinuð.
1952 Fyrsti þáttur Leiðar-
ljóss fer í loftið í Banda-
ríkjunum.
2006 Sigurbjörg
Sandra Pétursdóttir,
12 ára, bjargar ófleyg-
um erni úr Kirkjufells-
lóni við Grundarfjörð.
Hann hafði lent í grút
og misst stélfjaðr-
irnar en var fluttur
í Húsdýragarðinn í
Reykjavík til tíma-
bundinnar dvalar
og þar fékk hann
nafnið Sigurörn.
2 9 . j ú n í 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R34 T í M A M ó T ∙ F R É T T A B L A ð I ð
tímamót
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
2
9
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
3
9
-7
E
6
C
1
D
3
9
-7
D
3
0
1
D
3
9
-7
B
F
4
1
D
3
9
-7
A
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
0
s
_
2
8
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K