Fréttablaðið - 02.09.2017, Page 18

Fréttablaðið - 02.09.2017, Page 18
Helgin Laugardagur: 08.55 F1: Æfing Sport 11.50 F1: Tímataka Sport 15.50 Georgía - Írland Sport 15.50 Albanía - Liechten. Sport 3 15.50 Serbía - Moldóva Sport 2 18.35 Úkraína - Tyrkland Sport 2 18.35 Króatía - Kósóvó Sport 3 18.35 Spánn - Ítalía Sport 19.00 UFC Fight Night Sport 4 19.00 Dell Championsh. Golfst. 20.45 HM markasyrpa Sport 22.00 Finnland - Ísland Sport 22.30 Cambia Classic Golfst. Sunnudagur: 11.30 F1: Keppni Sport 15.50 Færeyjar - Andorra Sport 3 15.50 H-Rússland - Svíþjóð Sport 2 15.50 Holland - Búlgaría Sport 17.00 Dell Championsh. Golfst. 18.35 Ungverjal. - Portúgal Sport 2 18.35 Grikkland - Belgía Sport 3 18.35 Frakkland - Lúxemb. Sport 20.45 HM markasyrpa Sport 21.00 Cambia Classic Golfst. Gaman að fá smjörþefinn Tryggvi Snær Hlinason hefur slegið í gegn í sumar og margir eru á því að forráðamenn Valencia hafi heldur betur dottið í lukkupottinn þegar þeir treystu góðum ráðum frá Jóni Arnóri Stefánssyni og sömdu við ís- lenska sveitastrákinn fyrir þetta sumar. Jón Arnór er efnilegur umboðsmaður að mati Tryggva. Tryggvi Snær Hlinason með Jóni Arnóri Stefánssyni sem átti hvað stærstan þátt í að koma Bárðdælingnum til Valencia á Spáni. FRéTTABLAðið/eRNiR Úrslit C-riðill Spánn - Svartfjallal. 99-60 Rúmenía - Tékkland 68-83 Ungverjal. - Króatía 58-67 D-riðill Belgía - Bretland 103-90 Serbía - Lettland 92-82 Tyrkland - Rússland 73-76 EM í körfubolta Spánverjar hófu titilvörnina á EM með því að rústa Svartfellingum, 99-60 í C-riðli. Willy Hernangomez var atkvæðamestur Spánverja með 18 stig og níu fráköst og Gasol- bræðurnir, Pau og Marc, skoruðu samtals 19 stig. Spænska liðið var með lygilega þriggja stiga nýtingu í leiknum í gær, eða 64,7%. Körfubolti Miðherjinn Tryggvi Snær Hlinason hefur vakið heims- athygli fyrir frammistöðu sína með íslensku landsliðunum í sumar. Hann var meðal annars valinn í úrvalslið EM 20 ára liða í júlí og skoraði 19 stig á móti NBA-mið- herja Litháens í ágúst. Miðherjinn efnilegi er kominn inn á borð NBA- njósnara og spekúlanta sem sjá hann margir fyrir sér í NBA-deild- inni í framtíðinni. Það er gott að eiga góða að þegar þú ert að stíga fyrstu skrefin í atvinnumennsku og Jón Arnór Stefánsson gefur ekki bara stoð- sendingar á Tryggva inni á vellinum. Hann átti eina frábæra stoðsend- ingu á Bárðdælinginn þegar hann kom honum inn á borð hjá spænska stórliðinu Valencia. „Hann var tæknilega séð auglýs- ingin mín. Hann kom með nafnið mitt þangað inn á borðið, vann í þessu ferli og svo var ég allt í einu kominn þangað,“ segir Tryggvi. Eftir frábært sumar hefur áhugi á strákn- um aukist og Valencia-menn gætu ekki verið ánægðari með samning- inn við Tryggva. „Þeir eru mjög sáttir við sumarið hjá mér og að sjá hvað ég er búinn að breytast mikið síðustu mánuði. Það er geggjað að fá athyglina. Ég var að tala við þá fyrir tveimur dögum og þá voru þeir að segja til hamingju með allt sumarið og hvað er búið að ganga vel,“ segir Tryggvi. Umboðsmaðurinn Jón Arnór Jón Arnór Stefánsson fékk nefnilega aðeins að kynnast mögulegu fram- tíðarstarfi sínu í sumar þegar hann hafði milligöngu um að efnilegasti körfuboltamaður landsins endaði í spænska úrvalsdeildarliðinu Val- encia. „Þeir eru mjög spenntir að fá hann, ég veit það. Þeir fylgjast rosa- lega vel með honum og ég fæ reglu- lega símtöl og skilaboð um hann,“ segir Jón Arnór sem ætti að geta gefið Tryggva dýrmæt ráð. „Það eru spennandi tímar fram undan hjá honum en mikil og hörð vinna líka, fyrst og fremst sem hann þarf að tileinka sér til að ná langt í þessu. Þetta er bara byrjunin á þessu öllu saman og hann þarf að vera duglegur,“ segir Jón Arnór. En er hann sjálfur að detta inn í umboðs- mannastarfið á næstunni? „Þú þarft að vera mjög óeigin- gjarn til að taka að þér svoleiðis starf. Ég er ennþá bara að spila en ég hefði alveg áhuga á því að stíga skrefið í átt að einhvers konar umboðsmennsku eftir að ferlinum lýkur,“ segir Jón Arnór en það gæti leynst umboðsmaður í honum. „Það var gaman að fá smjörþef- inn af því með Tryggva. Ég hjálpaði honum og kom honum í samband við mína umboðsmenn á stórri umboðsskrifstofu í þessum bransa, sem er mikilvægt að hafa. Þetta er ákvörðunartaka allan tímann og þú tekur annaðhvort réttar eða rangar ákvarðanir og það getur mótað það algjörlega hvert þú ferð og hvernig ferillinn mun líta út,“ segir Jón. ég var lánsamur Jón Arnór á að baki flottan atvinnu- mannsferil en er nú kominn heim og spilar með KR. Á hans síðasta tímabili úti í Evrópu spilaði hann með Valencia veturinn 2015-16. Síð- asta tímabilið var hans fjórtánda í annaðhvort Evrópu eða NBA og alls lék hann í fimm löndum á þessum tíma. „Ég var lánsamur að taka réttar ákvarðanir og það væri æðislegt að geta hjálpað einhverjum öðrum að gera slíkt hið sama,“ segir Jón. Tryggvi hefur trú á því að Jón geti fundið sig vel í þessu umboðs- mannastarfi í framtíðinni. „Ég myndi segja að hann væri besti Íslendingurinn í það í dag. Ég þekki umboðsheiminn samt svo lítið að ég þori ekki að gefa neina almenni- lega skýrslu um það. Hann er með mjög flottan og stígandi feril eins og maður vill hafa. Ferill hans hefur líka verið frekar stöðugur,“ segir Tryggvi. Ísland mætir Póllandi í dag og Frakklandi á morgun á Evrópumót- inu í Helsinki. Þetta eru mjög sterkir mótherjar en fyrir fram eygja menn aðeins meiri möguleika á móti Pól- landi í dag. ooj@frettabladid.is Ætlum að reyna að sækja hratt á þá Baráttuhundurinn Hlynur Bæringsson er klár í leikinn gegn Pólverjum í dag og löngu búinn að hrista af sér vonbrigðin gegn Grikkjum. „Pólverjarnir eru með öðruvísi lið. Ekki eins sterkt lið og Grikkir þó svo þeir séu mjög góðir. Við ætlum að reyna að sækja hratt á þá. Koma sumum leikmönnum þeirra í vandræði með því að keyra upp hraðann,“ segir Hlynur en að sama skapi verður íslenska liðið að þétta varnarleik- inn. „Við megum alls ekki fá mikið af stigum á okkur úr hraðaupphlaupum. Við verðum að passa það. Þetta pólska lið hentar okkur ágætlega. Þetta eru miklir íþróttamenn í bland við hæga stóra menn. Við förum nokkuð brattir í þennan leik og fullir sjálfstrausts.“ Hann kom með nafnið mitt þangað inn á borðið, vann í þessu ferli og svo var ég allt í einu kominn þangað. Tryggvi Snær Hlinason óLAFÍA KoMST ÁFRAM ólafía Þórunn Kristinsdóttir komst í gegnum niðurskurðinn á Camb ia Port land Classic-mót inu sem er hluti af LPGA-mótaröðinni. ólafía lék annan hringinn á pari vallarins en hún var á tveimur höggum undir pari eftir fyrsta daginn. ólafía byrjaði ekki vel og fékk skramba á 4. holu. Hún var hins vegar fljót að rétta sig af með þremur fuglum í röð. ólafía fékk alls fjóra fugla, tvo skolla, einn skramba og 11 pör á hringnum í gær. Keppni heldur áfram á morgun. 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 l A u G A r D A G u r18 s p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð sport 0 2 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 1 2 0 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D A 5 -A 1 C 0 1 D A 5 -A 0 8 4 1 D A 5 -9 F 4 8 1 D A 5 -9 E 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 2 0 s _ 1 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.