Fréttablaðið - 02.09.2017, Page 46
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
Unga kynslóðin getur látið til sín taka við haustverkin í garðinum. MYND/GETTY
Núna er einmitt rétti tíminn til að setja haustlaukana niður því það er enn hlýtt í
veðri og þá ná þeir að róta sig vel.
Þeir ná því ekki þegar komið er
frost í jörðu. Laukarnir blómstra
svo snemma í vor. Vetrargosar
koma upp í mars-apríl en túlíp-
anar aðeins seinna,“ segir Ágústa
Erlingsdóttir, skrúðgarðyrkju-
meistari og námsbrautarstjóri
skrúðgarðyrkju við Landbún-
aðarháskóla Íslands.
Auðvelt er að gróðursetja
haustlauka en reglan er sú að
dýptin í moldinni samsvari
tvisvar til þrisvar sinnum þykkt
lauksins en þeir geta verið mis-
stórir eftir tegundum. Bilið á milli
þeirra á að vera svipað og betra
er að planta þeim saman í litlar
grúppur í stað þess að setja einn
og einn á víð og dreif um garðinn.
Ágústa segir þennan árstíma
einnig tilvalinn til að planta
út og gróðursetja runna og tré.
„Yfirleitt er rakt í veðri og trén
fá því ágætistíma til að róta sig
fyrir veturinn. Ekki þarf að hafa
miklar áhyggjur af vökvun, nema
það komi óvænt þurrkatímabil.“
Laufin falla
Á næstu dögum og vikum fara
laufin að falla af trjánum og
dreifast yfir gróður og grasflatir.
Ágústa mælir með að raka laufin
af grasflötinni svo hún komi vel
undan vetri. „Laufin má gjarnan
raka saman, mylja niður og setja
í beðin því þau brotna hratt
niður og þau eru góður áburður.
Það má líka nota þau til að hlífa
viðkvæmum gróðri. Grasflötina
Haustverkin í garðinum
Á haustin er að ýmsu að huga fyrir veturinn og garðurinn er þar engin undantekning. Ágústa
Erlingsdóttir garðyrkjufræðingur mælir með að setja niður haustlaukana og raka lauf af gras
flötinni. Hún segir að ekki eigi að klippa tré fyrr en eftir áramótin.
Þessa dagana
freistast margir til
að snyrta trjágróður svo
limgerðin séu bein og
falleg fyrir veturinn. Það
ætti hins vegar ekki að
gera. Ástæðan er sú að á
þessum árstíma er yfir-
leitt rakt í veðri og
sveppagró og ýmis
óværa á ferðinni og meiri
líkur eru á smiti ef trén
eru nýklippt.
Ágústa segir að núna sé ekki rétti tíminn til að klippa runna og tré því
sveppagró og önnur óværa sé á ferðinni og auknar líkur á smiti. MYND/EYÞÓR
á mosa,“ segir hún og bætir við að
mosi vaxi vel þar sem jarðvegur
er blautur eða rakur. „Mosinn
er eilífðarverkefni og sandurinn
eyðir honum ekki en frískar vel
upp á grasflötina.“
Ekki klippa trén
Ágústa segir að ekki eigi að klippa
trjágróður á þessum árstíma
heldur bíða með það fram yfir
áramótin. „Þessa dagana freistast
margir til að snyrta trjágróður
svo limgerðin séu bein og falleg
fyrir veturinn. Það ætti hins vegar
ekki að gera. Ástæðan er sú að á
þessum árstíma er yfirleitt rakt í
veðri og sveppagró og ýmis óværa
á ferðinni og meiri líkur eru á
smiti ef trén eru nýklippt. Lim-
gerði og runna á ekki að klippa
fyrr en búið er að frysta, til dæmis
eftir áramótin eða snemma næsta
vor, fyrir laufgun. Stærri runna og
tré er svo best að klippa snemm-
sumars, eftir laufgun og fram
undir miðjan júlí.“
Ef fólk er með einhverjar sér-
stakar eða viðkvæmar plöntur
sem eru mögulega á mörkum þess
að þrífast hér á landi er skynsam-
legt að skýla þeim til að milda
áhrif frosts og vinda í vetur, að
sögn Ágústu. „Ýmis útbúnaður
til að skýla plöntum fæst í helstu
garðyrkjuverslunum landsins og
er þá helst notast við litla staura
og striga til að tjalda umhverfis
plönturnar sem á að skýla. Þetta
getur gert gæfumuninn hvað
varðar heilbrigði og vöxt við-
kvæmari tegunda í görðum.“
Áburður að vori
Þar sem uppskerutíminn stendur
nú sem hæst segir Ágústa að gott
sé að skilja kálblöð og stöngla
eftir í matjurtabeðum. „Það er
fínt að tæta þetta saman við jarð-
veginn og láta liggja yfir veturinn.
Nema þá helst ef einhverjir
sjúkdómar hafa gert vart við sig
í kálplöntunum í sumar. Rabar-
barablöð má einnig smækka því
þau eru svo stór og blanda saman
við jarðveginn.“
En er gott að bera áburð á til
dæmis rabarbara fyrir veturinn?
„Nei, það er ekki sniðugt að
bera áburð á neinn gróður fyrir
veturinn. Í rauninni eru gróður-
inn byrjaður að undirbúa sig
fyrir dvala í vetur. Um leið og við
setjum áburð á gróður erum við
að hvetja hann áfram í að vaxa og
það viljum við ekki.“
Loks nefnir Ágústa að hægt
sé að nota síðustu þurrkadaga
haustsins til að bera á pallinn,
hafi það gleymst í sumar. „Palla-
olían þarf að ná að þorna vel. Það
stefnir í ágætishita um helgina
og fínt að rumpa því af fyrir
veturinn.“
sjálfa er gott að slá fyrir veturinn
en þó ekki of snöggt, heldur skilja
eftir 4-8 cm gras. Ef ætlunin er að
ráðast gegn mosa í grasflötinni er
ágætt að dreifa þunni lagi af sandi
yfir hana, hvort sem er að hausti
til eða vori. Sandurinn síast niður
í jarðveginn og þá kemur meira
loft í hann sem minnkar líkurnar
HAUST TÍSKAN
Ú T S Ö L U L O K
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . s E p T E M B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
5
-F
5
B
0
1
D
A
5
-F
4
7
4
1
D
A
5
-F
3
3
8
1
D
A
5
-F
1
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
0
s
_
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K