Fréttablaðið - 02.09.2017, Blaðsíða 60
Utanríkisráðuneytið auglýsir laust
til umsóknar embætti skrifstofustjóra
rekstrar- og þjónustuskrifstofu á
aðalskrifstofu ráðuneytisins.
Helstu verkefni skrifstofunnar eru:
• Fjárlagagerð og fimm ára fjármálaáætlun fyrir
utanríkismál samkvæmt lögum um opinber fjármál.
• Rekstraráætlanir og eftirlit með þeim, þ.á.m. fyrir
sendiskrifstofur Íslands erlendis.
• Fjármál þróunarsamvinnu.
• Húsnæðismál og öryggismál utanríkisþjónustunnar
á Íslandi og erlendis.
• Mötuneyti og móttaka aðalskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins.
• Eftirlit með og stjórn á innkaupum utanríkis-
þjónustunnar.
• Tölvu- og upplýsingatækni í allri utanríkisþjónust-
unni.
• Þátttaka í norrænu samstarfi um rekstur utanríkis-
þjónusta.
Hlutverk skrifstofustjóra er að leiða starf skrifstofunnar
undir yfirstjórn ráðuneytisstjóra. Skrifstofustjóri ber
ábyrgð á stefnumótun og því að framfylgja mark-
miðum og stýra daglegum störfum skrifstofunnar að
öðru leyti. Hann stuðlar að faglegri og metnaðarfullri
starfsemi í almannaþágu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf á sviði viðskipta- og/eða hagfræði
eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
• Víðtæk þekking og reynsla á sviði fjármálaáætlana
og rekstrar.
• Stjórnunarreynsla.
• Reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar, þekking
á utanríkisþjónustunni er kostur.
• Góð íslensku- og enskukunnátta, kunnátta í Norður-
landamáli kostur.
• Góð reynsla og færni í notkun töflureikna (Excel)
og hæfni til að greina og setja fram tölulegar
upplýsingar með skilmerkilegum hætti.
• Forystu-, samskipta- og skipulagshæfni.
• Frumkvæði, samskiptalipurð, hæfni í teymisvinnu
og geta til að vinna undir álagi.
• Hæfni til að setja fram mál og upplýsingar í ræðu og
riti.
Að auki skulu umsækjendur fullnægja almennum
starfsgengisskilyrðum skv. 6. gr. laga nr. 70/1996 um
réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Framlengdur umsóknarfrestur er til og með
13. september nk.
Umsóknir ásamt ferilskrám og kynningarbréfi skal
senda til Capacent: capacent.is/s/5523
Í kynningarbréfi skulu umsækjendur m.a. lýsa hvernig
þeir uppfylla menntunar- og hæfniskröfur.
Í samræmi við 19. gr. laga nr. 115/2011 um Stjórnar-
ráð Íslands verður skipuð ráðgefandi hæfnisnefnd
til að mæta hæfni umsækjenda, sbr. einnig reglur
nr. 393/2012.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um
stöðuna. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
sem fyrst. Launakjör eru í samræmi við kjarasamninga
ríkisins og FHSS. Skipað er í embættið til 5 ára.
Nánari upplýsingar veitir Auður Bjarnadóttir
hjá Capacent, audur.bjarnadottir@capacent.is,
s: 540-1000.
Hæfniskröfur
Framhaldsskólapróf/iðnmenntun eða reynsla
sem nýtist fyrir starfið
Almennur áhugi og þekking á bílum
Gilt bílpróf
Framúrskarandi þjónustulund
Almenn tölvuþekking
Stutt lýsing á starfi
Ráðgjöf til innri og ytri
viðskiptavina varðandi kaup á
varahlutum og þjónustu
Móttaka viðskiptavina í sal,
síma og á vef
Brimborg er í hópi stærstu og mest vaxandi bílaumboða landsins þar sem fást nýir og notaðir bílar
frá Ford, Volvo, Mazda, Citroën og Peugeot auk Volvo vörubíla, vinnuvéla, hópferðabíla og bátavéla.
Uppítaka býðst á öllum tegundum bíla og að sjálfsögðu er bílafjármögnun í boði. Brimborg rekur
verkstæði fyrir bíla og tæki og kappkostar að veita þar framúrskarandi þjónustu. Bílaleiga er hluti af
þjónustuframboði Brimborgar þar sem hægt er að leigja bíla til styttri eða lengri tíma.
Vinnutími kl. 7.45-17.00 virka daga.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Sæktu um á brimborg.is fyrir 7. september næstkomandi.
RÁÐGJAFI VARAHLUTA OG ÞJÓNUSTU
FYRIR Mazda, Citroën og Peugeot
Brimborg óskar eftir að ráða starfsmann í þjónustumóttöku fyrir
Mazda, Citroën og Peugeot að Bíldshöfða 8 í Reykjavík
Raðgjafi varahluta og þjónustu Mazda 4x18 atvinnuaugl 20170829.indd 1 29/08/2017 11:59
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Umsóknarfrestur er til og með 13. september 2017.
Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir
hæfni í starfið skulu berast á netfangið mos@mos.is. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhanna B. Hansen, framkvæmda-
stjóri umhverfissviðs, í síma 525 6700. Um framtíðarstarf er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt
kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um
starfið.
Verkefnastjóri á umhverfissvið
MOSFELLSBÆR LEITAR AÐ ÖFLUGUM VERKEFNASTJÓRA Á UMHVERFISSVIÐ
Umhverfissvið annast allar verklegar framkvæmdir, rekstur og viðhald fasteigna Mosfellsbæjar og rekstur og
viðhald gatnakerfis og veitna. Verkefnastjóri umhverfissviðs annast umsýslu fasteigna í eigu bæjarfélagsins og
ber ábyrgð á að framkvæmdir séu innan heimilda gildandi fjárhagsáætlunar. Helstu verkefni eru að hafa
umsjón með hönnun og eftirlit með verklegum framkvæmdum, umsjón útboða, útgáfa verkbeiðna og
eftirfylgni verka. Ráðgjöf vegna hönnunar og búnaðarkaupa.
Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru
leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Menntunar- og hæfnikröfur:
Prófgráða í verkfræði, tæknifræði, arkitektúr eða
byggingarfræði skilyrði
Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er æskileg
Reynsla af hönnun og verklegum framkvæmdum
Reynsla af verkefnastjórnun verklegra
framkvæmda
Góð tölvukunnátta skilyrði
Góðir samskiptahæfileikar eru nauðsynlegir
Hæfni til að tjá sig í rituðu og töluðu máli
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
0
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
5
-F
F
9
0
1
D
A
5
-F
E
5
4
1
D
A
5
-F
D
1
8
1
D
A
5
-F
B
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
0
s
_
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K