Fréttablaðið - 02.09.2017, Qupperneq 83
Chelsea notaði
aðeins 23 leikmenn í
ensku úrvalsdeildinni á
síðasta tímabili.
Vertu eins og heima
hjá þér í Evrópu
Reiki í Evrópu (EU og EES) er innifalið
í allri farsímaþjónustu Vodafone.
4G í yfir 40 löndum.
Kynntu þér málið
á vodafone.is
Vodafone
Við tengjum þig
Titilvörn Englandsmeistara Chelsea
fór eins illa af stað og mögulegt
var. Liðið tapaði 2-3 fyrir Burnley á
heimavelli og missti tvo leikmenn af
velli með rautt spjald.
Meistararnir sýndu hins vegar
mikinn styrk þegar þeir unnu 1-2
útisigur á Tottenham með frekar
vængbrotið lið. Chelsea vann svo
annan sterkan sigur á Everton, 2-0,
um síðustu helgi. Krísuástandinu
virtist því afstýrt.
Samt sem áður berast reglulega
fréttir af óánægju Antonios Conte,
knattspyrnustjóra Chelsea, með
frammistöðu meistaranna á félaga-
skiptamarkaðinum. Chelsea gerði
lítið framan af sumri en sótti þó
Antonio Rüdiger frá Roma, Tiémoué
Bakayoko frá Monaco og Álvaro
Morata frá Real Madrid. Og á loka-
degi félagaskiptagluggans keypti
Chelsea Davide Zappacosta og
Danny Drinkwater.
Leikmannahópur Chelsea er fyrir
vikið aðeins breiðari en það má samt
ekki mikið út af bera. Conte komst
upp með að spila á fáum mönnum í
fyrra enda var Chelsea ekki í Evrópu-
keppni og slapp vel við meiðsli.
Það verður spennandi að sjá hvað
Chelsea gerir í Meistaradeild Evrópu
undir stjórn Contes. Þrátt fyrir far-
sælan stjóraferil á hann enn eftir að
koma liði langt í Evrópukeppni. Það
er ein helsta áskorun hans í vetur.
Fréttir af dauða meistaranna voru stórlega ýktar
Tottenham teflir fram svipuðu
liði og endaði í 2. sæti í ensku
úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Mauricio Pochettino, knattspyrnu-
stjóri Spurs, hélt öllum leikmönn-
unum sem hann vildi halda og á
lokadögum félagaskiptagluggans
náði hann í nokkra leikmenn sem
ættu að styrkja liðið. Má þar nefna
Davinson Sánchez, Serge Aurier og
Fernando Llorente.
Nýr heimavöllur Tottenham
er í smíðum og því spilar liðið
heimaleiki sína á Wembley í vetur.
Þjóðarleikvangur Englendinga
hefur ekki reynst Spurs gjöfull og
byrjunin á þessu tímabili gefur
ekki góð fyrirheit. Tottenham
tapaði fyrir Englandsmeisturum
Chelsea á Wembley í 2. umferð
ensku úrvalsdeildarinnar og í 3.
umferðinni gerði liðið jafntefli við
Burnley á sama velli. Uppskeran úr
fyrstu tveimur heimaleikjunum er
því aðeins eitt stig.
Tottenham er með þétt og öflugt
lið en það er vandamál ef liðið
getur ekki unnið heimaleikina
sína.
Fá félög gerðu jafn góða hluti á
félagaskiptamarkaðinum í sumar
og West Brom. Liðið hefur líka
byrjað tímabilið vel og er með sjö
stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar.
Tony Pulis fékk alls sjö leikmenn
í glugganum. Einn þeirra, kínverski
framherjinn Yuning Zhang, var
reyndar lánaður strax til Vitesse í
Hollandi. Hinir sex ættu hins vegar
að gera West Brom að betra liði.
Pulis fékk reynsluboltann
Gareth Barry frá Everton, Kieran
Gibbs frá Arsenal, Jay Rodríguez
frá Southampton og egypska
miðvörðinn Ahmed Hegazy að
láni frá Ahly. Þá keypti West Brom
skoska ungstirnið Oliver Burke frá
RB Leipzig og fékk pólska miðju-
manninn Grzegorz Krychowiak að
láni frá Paris Saint-Germain. Hann
gæti reynst algjör happafengur.
Miðað við sumarkaupin ætti
West Brom að verða í efri hluta
ensku úrvalsdeildarinnar í vetur.
Góður gluggi hjá
West Brom
Antonio Conte virðist hafa tekið gleði sína á nýjan leik.
Sárir og svekktir Tottenham-menn.
Tony Pulis má vera kátur með sumarkaupin.
Wembley til
vandræða
KYNNINGARBLAÐ 9 L AU G A R DAG U R 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 eNSKI BoLTINN
0
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
6
-0
E
6
0
1
D
A
6
-0
D
2
4
1
D
A
6
-0
B
E
8
1
D
A
6
-0
A
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
0
s
_
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K