Fréttablaðið - 02.09.2017, Page 92
Elskulega móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hrefna Steinunn
Kristjánsdóttir
Njarðarvöllum 6,
Njarðvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
þriðjudaginn 29. ágúst. Útförin fer fram frá
Keflavíkurkirkju, föstudaginn 15. september kl. 13.
Eiríkur Þorbjörnsson Svanhildur Þengilsdóttir
Hulda María Þorbjörnsdóttir Bergþór Sigfússon
Kristbjörn Þorbjörnsson Guðríður Ingvarsdóttir
Birna Rut Þorbjörnsdóttir Sverrir Þorgeirsson
Ágúst Þorbjörnsson Ragnhildur Geirsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hildur Davíðsdóttir
verður fimmtug þann 2. september
2017.
Eiginmaður Hildar er Hreinn Hafliðason,
fæddur 25. ágúst 1970, og búa þau að
Háteigsvegi 6, 105 Reykjavík.
Foreldrar Hildar voru Jenný Haraldsdóttir húsmóðir, fædd
12. ágúst 1928, og Davíð Kr. Jensson húsasmíðameistari,
fæddur 8. apríl 1926.
50
ára afmæli
Ástvinir þakka auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Jófríðar Kristjönu
Sigurðardóttur
frá Hoftúnum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Brákarhlíðar í Borgarnesi.
Ingólfur Narfason
Helga Steina Narfadóttir
Kristján Narfason
Sigurður Narfason
Veronika Narfadóttir
Snæbjörn Viðar Narfason
tengdabörn, ömmu- og langömmubörn.
Bróðir okkar og frændi,
Jónas Haukur Björnsson
Gullsmára 7, Kópavogi,
andaðist á Skjóli 28. ágúst sl.
Útförin fer fram frá Áskirkju
þriðjudaginn 5. september kl. 13.00.
Guðbjörn Björnsson
Kristján Helgi Björnsson
Björn Guðbjörnsson
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þórarinn Ingi Jónsson
skrúðgarðyrkjumeistari,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
þriðjudaginn 29. ágúst. Útförin fer fram frá
Lindakirkju fimmtudaginn 7. september klukkan 15.00.
Smári Þórarinsson
Rósa Þórarinsdóttir Magnús Andrésson
Kristinn Pétursson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra er sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og sonar,
Guðna Magnússonar
húsasmiðs,
Seiðakvísl 4, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á Hlíðabæ, deild L4,
Hjúkrunarheimilinu Mörk og Alzheimersamtökin fyrir
umönnun og stuðning.
Alma Bergsveinsdóttir
Janus Freyr Guðnason Nanna Ýr Arnardóttir
Magnús Már Guðnason Þórunn Sigurðardóttir
Kári Guðnason Sigurrós B. Sigvaldadóttir
barnabörn
Margrét Magnúsdóttir
Faðir okkar og tengdafaðir,
Guðjón Hansen
tryggingafræðingur,
lést 22. ágúst 2017.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Kristján Guðjónsson Eva Dagmar Steinsson
Birgir Guðjónsson Guðrún Þórhallsdóttir
Hildur Guðjónsdóttir Ólafur Th. Jónsson
Steinunn Guðjónsdóttir Michael Bown
Guðjón Ingvi Guðjónsson Ulrika Paija
Hafnarfjarðarklerkurinn Jón Helgi Þórarinsson er í fjallgöngu með frúnni þegar í hann næst í síma. „Við erum á leið upp á Spákonufell
ofan við Skagaströnd. Það er heiðskírt
en smá þokubakki yfir Húnaflóa,“ segir
hann léttur og kippir sér ekkert upp við
það þó að áratugaafmæli sé að skella
á honum. „Mér líst vel á að verða sex-
tugur. Er þakklátur fyrir árin að baki og
fólkið sem ég hef kynnst. Svo eru svona
tímamót hvatning til að nýta vel hverja
stund, vera glaður og reyna að miðla því
í kringum sig,“ segir hann.
Séra Jón Helgi hefur þjónað söfnuði
Hafnarfjarðarkirkju í fjögur ár og kveðst
vel í sveit settur, umhverfi og aðstaða
eins og best verður á kosið og samstarfs-
fólkið yndislegt. Hvað varð einkum til
þess að hann fór í prestskap upphaflega?
„Ég er alinn upp við að fara í kirkju. For-
eldrar mínir sungu áratugum saman í
kirkjukór í Lögmannshlíðarkirkju fyrir
ofan Akureyri og við systkinin fylgdum
þeim oft. Smám saman fórum við að
taka þátt í unglingastarfi í Akureyrar-
kirkju og bróðir minn Pétur varð prest-
ur. Ég var í tónlistarnámi, lærði á orgel
og var að hugsa um að fara þá leiðina
á tímabili en eftir stúdentspróf togaði
guðfræðin meira í mig. Ég sé ekki eftir
því, það er yndislegt og skemmtilegt
starf að vera prestur. Í gegnum það hef ég
líka fengið að taka þátt í alls konar tón-
listarstarfi, syngja í kórum, spila á hljóð-
færi og leika mér.“
Tónlistin er sem sagt aðal áhugamál
séra Jóns Helga. „Svo hef ég líka áhuga á
sporti og útivist og hef gaman af að
ganga um í íslenskri náttúru eins og ég er
að gera núna. Það er bara stórkostlegt.“
Þótt þau hjón séu í góðum gír á
Norðurlandi þá er aðalafmælisferðin
að baki að sögn séra Jóns Helga. „Við
flugum til München í sumar, tókum þar
bíl og keyrðum um Ítalíu og Austurríki .
Vorum fjórtán daga í ferðinni og fórum
víða. Við lentum í hitabylgju en nutum
ferðarinnar þrátt fyrir það og þó gaman
sé að fara til suðlægra landa og skoða
heiminn þá er alltaf gott að koma heim
í tæra loftið á Íslandi.“
gun@frettabladid.is
Sextugsafmælið hvatning
til að nýta hverja stund
Séra Jón Helgi Þórarinsson, prestur í Hafnarfjarðarkirkju, fagnar sextugsafmæli sínu í dag.
Í huganum lítur hann með þakklæti til baka og bjartsýni fram á við. Hann er staddur á
Norðurlandi núna en er nýlega kominn úr skemmtilegri reisu um sunnanverða Evrópu.
Hjónin Sólveig Sigríður Einarsdóttir, organisti í Digraneskirkju, og séra Jón Helgi.
Svo hef ég líka áhuga á
sporti og útivist og hef
gaman af að ganga um í íslenskri
náttúru eins og ég er að gera
núna.
2 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r40 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
0
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
A
5
-B
5
8
0
1
D
A
5
-B
4
4
4
1
D
A
5
-B
3
0
8
1
D
A
5
-B
1
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
0
s
_
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K