Fréttablaðið - 02.09.2017, Blaðsíða 102

Fréttablaðið - 02.09.2017, Blaðsíða 102
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Forsýning í Gallerí Fold alla helgina laugardag kl. 11–16, sunnudag kl. 12–16, mánudag kl. 10–17 Listmunauppboð í Gallerí Fold mánudaginn 4. september, kl. 18 Fyrsta uppboð haustsins Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna ásamt fjölda frábærra verka gömlu meistaranna. Svavar G uðnason Hátíðin í ár saman-stendur af fastri sýn-ingu út mánuðinn og lifandi dagskrá í Gerðarsafni sem stendur í þrjár vikur. Í dag verður hér fjölskylduhátíð með skákmóti, dansi og pylsupartíi,“ segir Sara Öldudóttir sem er sýningarstjóri listahátíðarinnar Cycle í Kópavogi, ásamt Guðnýju Þóru Guðmunds- dóttur. Yfirskrift hátíðarinnar er Fullvalda | Nýlenda í tilefni aldarafmælis full- veldis Íslands á næsta ári en miðast við Grænland, Færeyjar og Ísland og tengsl þeirra við Danmörku í nútíð og fortíð. „Við nálgumst efnið eftir mörgum leiðum í því augnamiði að örva samskiptin milli lista, fræða og samfélags og styrkja vestnorræn menningartengsl,“ tekur Sara fram. Fyrst minnist Sara á nokkur verk- anna sem verða til sýnis í Gerðar- safni. Eitt þeirra nefnist Stjórnarskrá er ferli og er eftir listamennina Libiu Castro og Ólaf Ólafsson. Þar verða handrit að fimm íslenskum stjórnar- skrám til sýnis opinberlega í fyrsta skipti. „Við erum með nýtt verk eftir Darra Lorenzen og eldra verk eftir Ragnar Kjartansson. Svartigaldur í hvíta húsinu er verk eftir dönsku listakonuna Jeannette Ehlers og einnig er áhrifamikið fánaverk eftir Andrew Ranville sem er byggt á áhugaverðri rannsókn.“ Sara segir líka verða efnt til sam- tals um fullveldið. „Markmið okkar er að fá alla áhugasama um það mál- efni til leiks, listafólk, fræðafólk og almenna borgara. Við höfum bæði haft samband við fólk sem hefur verið að fást við þetta málefni á lista- og fræðasviði auk þess sem við auglýstum eftir tillögum frá listafólki og fengum góð viðbrögð. Sumt af því fólki verður inni á gólfi hjá okkur í samræðunni.“ Hundrað ára afmæli fullveldis Íslands á næsta ári er stórt tækifæri til sjálfsskoðunar, rýni og sköpunar að mati Söru og annarra stjórnenda Cycle. „Áherslan verður á hug- myndir um þjóðerni og sjálfsmynd og hvernig þær mótast á sjálfstæðis- baráttutímanum. Líka hvernig þær hugmyndir hafa þróast hér á Íslandi, hverjar hefur verið haldið í og hversu vel þær falla að nútímasamfélaginu,“ segir Sara og heldur áfram: „Þar að auki er okkur mikilvægt að tengja umræðuna við Grænland og Færeyjar út frá sameiginlegri sögu, þó að hin löndin séu á allt öðrum tímapunkti í sínu sjálfstæðisferli. Það býður upp á spennandi samræðufleti.“ Sara segir bæði tónlistarmenn og Fullveldið í orðum, myndum og athöfnum Listahátíðin Cycle hefur rúllað af stað í Kópavogi þriðja árið í röð. Yfirskrift hennar er Fullvalda | Nýlenda. Hátíðin stendur allan september og Gerðarsafn – Listasafn Kópavogs er heimili hennar. Darri Lorenzen myndlistarmaður og Sara Öldudóttir sýningarstjóri utan við Gerðarsafn í Kópavogi FréttabLaðið/ViLheLm Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Cycle út um allt hjarta hátíðarinnar Cycle hefur verið í Kópavogi en hún hefur einnig verið í samstarfi við im­ port Projects í berlín. hún er því að hluta til rekin frá berlín og hefur verið með viðburði þar líka, auk þess sem hún er nýlega komin í tengingu við menningarstofnanir í hong Kong og hélt vinnustofur þar á vordögum. Það verður samræming á því samstarfi og þessum nýja fasa sem er fullveldisafmæli Íslands á næsta ári. rannsakendur frá Færeyjum, Græn- landi og Danmörku verða virka þátt- takendur í hátíðinni í Gerðarsafni. „Við lítum á þetta sem upphafspunkt og viljum rækta frá þessum vettvangi samstarf sem við ætlum að leiða áfram,“ segir hún. Nú langar mig að vita eitthvað um Söru sjálfa. „Minn bakgrunnur er í félagsvísindum. Ég hef stundað nám og rannsóknir við Háskóla Íslands og í Bretlandi á sviði mannfræði, stjórnmála alþjóðahagkerfisins og félagsfræði en þetta er fyrsta list- verkefnið mitt. Guðný Þóra stofnaði Cycle ásamt Tinnu Þorsteinsdóttur og Fjólu Dögg Sverrisdóttur en ég gekk til liðs við verkefnið í upphafi þessa árs,“ tekur hún fram og vísar til þess að þetta er þriðja Cycle hátíðin á jafn mörgum árum. „Stundum finnst mér fólk vera ein- angrað á sínum vettvangi en ég hef mikinn áhuga á þverfaglegri nálgun og samræðu milli mismunandi þekk- ingarheima. Ég hef líka sterka trú á því að listræn aðferð geti haft mikið að segja í samfélaginu,“ segir Sara og bendir á að dagskrá hátíðarinnar sé á ww.cycle.is ÁHersLaN verður Á HuGmYNdir um þjóðerNi oG sjÁLFsmYNd oG HverNiG þær mótast Á sjÁLFstæðisbarÁttutím- aNum. LíKa HverNiG þær HuGmYNdir HaFa þróast Hér Á ísLaNdi, Hverjar HeFur verið HaLdið í oG Hversu veL þær FaLLa að Nútímasam- FéLaGiNu 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r50 m e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ð menning 0 2 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 1 2 0 s _ P 1 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D A 5 -B 0 9 0 1 D A 5 -A F 5 4 1 D A 5 -A E 1 8 1 D A 5 -A C D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 2 0 s _ 1 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.