Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Blaðsíða 41
BESTU VINKONUR: Tvíburasystir Möggu, Alexia Erla Hildur, fór með
henni á Siglufjörð. Systurnar eru bestu vinkonur og báðar einstaklega hæfileika-
ríkar, en Alexia vinnur hjá Sign og stefnir á nám í skartgripasmíði.
SÚ
NÝJASTA:
Refurinn er
nýjasta og
sjöunda myndin í
tvímyndaseríunni.
Listakonan Margrét Ósk Hildur Hallgrímsdóttir, eða Magga
eins og hún er oftast kölluð, er ung og upprennandi listakona.
Hún er sjálfmenntuð í myndlistinni og hefur haft nóg að gera
í fjölbreyttum verkefnum. Hún leggur stund á nám í grafískri
hönnun og nýjasta verkefnið er leyndarmál, sem verður af-
hjúpað í sumar.
Mamma segir að ég hafi byrjað að teikna um leið og ég gat haldið á
blýanti,“ segir Magga sem segir
innblásturinn koma alls staðar að.
Hún teiknar mest með penna eða
blýanti, en málar einnig akrýl-
myndir og veggmyndir. „Flestar
hugmyndirnar fæ ég á kvöldin og
nóttunni.“
Nýlega var Magga með mynd-
irnar sínar á sýningunni Hand-
verk og hönnun sem haldin var í
Ráðhúsi Reykjavíkur. „Helgin gekk
mjög vel, betur en ég bjóst við,“
segir Magga hógvær.
Listaverk á hótelveggjum
Magga hefur málað myndir á veggi
hótela og veitingastaða bæði í
Reykjavík og á Siglufirði. „Fyrir
tveimur og hálfu ári síðan fékk
Helgi Tómas Sigurðsson, vinur
minn og eigandi Frederiksen Ale
House í Austurstræti, mig til að
hanna og mála „lógó“ staðarins
auk Íslandskorts og stórrar mynd-
ar sem eru á veggjum staðar-
ins,“ segir Magga. Verkið vakti
athygli og fleiri boð um að mála
komu koll af kolli. Magga málaði
Íslandskort á veggi veitinga-
staðarins Scandinavian sem er á
Laugavegi, íslensku landvættina í
eigin útfærslu í „renaissance“-stíl,
landakort og íslenskt landslag á
Residence hótelinu á Siglufirði og
síðast miðbæjarkort í Kvosin hótel
Kirkjutorgi.
Hannar framtíðina
Magga vinnur núna að því að klára
lokaverkefni fyrsta ársins í Lista-
háskólanum, en námið í grafískri
hönnun er þrjú ár. „Einnig er ég að
klára teikningar fyrir annað verk-
efni sem verður afhjúpað í sumar,
auk þess sem ég verð að vinna í
Hrím hönnunarhús,“ segir Magga,
sem á framtíðina fyrir sér í listinni.
„Fæ FLestar
HugMyndir
á kvöLdin
og nÓttunni“
Margrét Ósk (24)
er upprennandi
listamaður:
MAGGA
OG MIÐ-
BÆRINN:
Í lok árs
2016 málaði
Magga kort
af miðbænum
sem prýðir
veggi Kvosin
hótel sem er
á Kirkjutorgi.
„Snorri
Valsson
rekstrarstjóri
sá verkið mitt
á Frederiksen
og hringdi í
mig.“
STJÖRNUMERKIN TIL SÖLU: Magga er með
síðuna MOHH verk á Facebook og þar er hægt að panta myndir
eftir hana. Hún er til dæmis með eigin útgáfu af stjörnumerkj-
unum.
TVÍMYNDASERÍAN:
Sjö myndir eru komnar í þessari
seríu og fygldi sú fyrsta þeirra,
Lundinn, sem póstkort með fyrsta
Hús og híbýli í ár.
LEYNIVERKEFNI: Magga er núna að vinna
teikningar fyrir verkefni sem verður afhjúpað í sumar.
FYRSTA VEGGMYNDIN: „Fyrir tveimur og
hálfu ári síðan fékk Helgi Tómas Sigurðsson, vinur minn og
eigandi Frederiksen Ale House í Austurstræti, mig til að
hanna og mála lógó staðarins auk Íslandskorts og stórrar
myndar sem eru á veggjum staðarins,“ segir Magga.