Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Side 2
2 Helgarblað 26. maí 2017fréttir
Okkar kjarnastarfssemi er
greiðslumiðlun og innheimta.
Hver er þín?
515 7900 | alskil@alskil.is | alskil.is
Síðan 2006
„Taldi ekki að það væru mikil
verðmæti þessari heyhrúgu“
n Játar að hafa kveikt í jólageit IKEA en hafnar bótakröfu n Blaðamaður var viðstaddur réttarhöldin
É
g taldi ekki að það væru mikil
verðmæti fólgin í þessari hey-
hrúgu,“ sagði sakborningur
fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Blaðamaður var viðstaddur
forvitnileg réttarhöld þar sem réttað
var yfir karlmanni og tveimur konum,
öllum á þrítugsaldri, fyrir að hafa
kveikt í IKEA-jólageitinni þann 26.
nóvember í fyrra. Við þingfestingu
málsins neituðu þremenningarnir
sök en sú afstaða breyttist við aðal-
meðferð málsins. Karlmaðurinn
játaði að hafa kveikt í geitinni en öll
höfnuðu þau bótakröfu IKEA, sem
hljóðar upp á 1,8 milljónir króna auk
vaxta. Öll báru þau við minnisleysi.
Töldu sig vera að gera IKEA greiða
Ástæðu íkveikjunnar má rekja til
þeirrar þjóðsögu sem gengið hefur á
einhverjum stöðum að IKEA á Íslandi
sjái sér sérstakan hag í að jólageit
fyrir tækisins verði eldi að bráð. Aug-
lýsingagildið sem felist í umfjöllun
fréttamiðla um skíðlogandi geitina
geri slíkt skemmdarverk beinlínis
eftirsóknarvert. Slíkar samsæris-
kenningar fengu byr undir báða
vængi í októberlok árið 2015 þegar
bilun í ljósaseríu varð til þess að
geitin fuðraði upp á þremur mín-
útum um miðjan dag. Fjölmiðlar
landsins gerðu málinu góð skil og
einhverjir töldu að um þaulskipulagt
markaðsplott væri að ræða. Við
réttar höldin mátti ætla að þetta væri
skoðun sakborninga.
Lögreglumaður, sem var í hópi
þeirra sem komu að handtöku þre-
menninganna, sagði fyrir dómi að
sakborningarnir hefðu ekki botnað
neitt í harkalegum viðbrögðum lög-
reglu enda beinlínis talið sig vera að
gera IKEA greiða.
Öryggisráðstafanir og lífstíðarbann
Það mat er greinilega ekki á rökum
reist því að sögn er forsvarsmönn-
um IKEA á Íslandi mikið í mun að
jólageitin fái að standa óáreitt, enda
er heildarkostnaðurinn við upp-
setningu hennar um tvær milljónir
króna. Hún er rúmir sex metrar
á hæð, nokkur tonn að þyngd og
fagurlega skreytt ljósum og borð-
um. Vegna skemmdarverka síðustu
ára hefur eftirlit með geitinni verið
hert til muna. Öryggismyndavélum
hefur verið komið fyrir og rafmagns-
girðing reist í kringum geitina.
Stefna IKEA í málinu þarf ekki
að koma neinum á óvart. Í byrjun
árs 2016 greindi DV frá því að 45
Íslendingar væru í lífstíðarbanni
frá versluninni vegna þjófnaðar í
versluninni. Reglan er einfaldlega
sú að þeir sem eru staðnir að verki
við hnupl eru settir í slíkt bann. Í
því ljósi er rökrétt að IKEA hafi sótt
jólageitar-varganna til saka.
Vissi ekki neitt
Við réttarhöldin kom fram að
karlmaðurinn og önnur konan
hefðu verið úti að skemmta sér á
skemmtistaðnum Húrra aðfara-
nótt mánudagsins 14. nóvember.
Eftir lokun staðarins sótti þriðja
konan parið við 10-11 á Hverfis-
götu og síðan keyrðu þau út í
nóttina. Þau mundu ekki eftir
neinu við yfirheyrslur í réttarsal
og báru við ölvun. Þá afsökun gat
„flóttabílstjórinn“ ekki notað enda
hafði hún ekki bragðað dropa af
áfengi samkvæmt mælingu lög-
reglu. Minni hennar var þó líka
afar gloppótt. Hún vissi ekki
hvernig hugmyndin var tilkomin,
áttaði sig í raun ekki á hvað var að
gerast þegar hún sá geitina skíð-
loga og hafði ekki hugmynd um
hvernig númersplata bílsins, að
minnsta kosti að framan verðu,
varð hulin með límbandi.
Þremenningarnir gátu því með
engu móti varpað ljósi á það fyrir
dómi af hverju jólageit IKEA fuðraði
skyndilega upp þessa nótt. Það var
öryggisvörður hjá IKEA sem sá hvað
var að gerast í öryggis myndavél
fyrirtækisins. Tvær ógreinilegar
mannverur sáust nálgast geitina og
skyndilega fór allt í bál og brand. Ör-
yggisvörðurinn þusti út til að stöðva
för skemmdarvarganna. Stúlkan
sem ók bílnum bar við hræðslu
þegar hún var spurð af hverju hún
hefði sveigt tvisvar framhjá bíl starfs-
mannsins og brunað út í nóttina.
Megn bensínstækja í bílnum
Öryggisvörðurinn lét hins vegar ekki
deigan síga og hélt í humátt á eftir
flóttabílnum. Á meðan var hann í
símasambandi við lögreglu og leið-
beindi henni hvert skyldi halda.
Bíllinn var stöðvaður við Grímsbæ
á Bústaðavegi og þremenningarnir
handteknir. Vitnisburður lögreglu-
manna var á þá leið að farþegar bíls-
ins hefðu verið ölvaðir og þá sérstak-
lega konan. Megn bensínstækja hafi
verið í bílnum. Sú sem keyrði bíllinn
var yfirheyrð þá um nóttina en far-
þegarnir látnir sofa úr sér. Lögreglu-
maður sem bar vitni fyrir dómi sagði
að farþegarnir hefðu ekkert skilið
í af hverju þeir voru handteknir og
þeim hefði fundist gjörðir sínar afar
kómískar.
Hafi þeim þótt prakkarastrikið
fyndið í nóvember þá var húmorinn
að engu orðinn í réttarsal. Það
var afar undarlegt að fylgjast
með þremur vel gerðum ungum
einstaklingum útskýra heimsku-
pör eins og þessa íkveikju fyrir
framan dómara, tvo fulltrúa sak-
sóknara og að viðstöddum þremur
skikkjuklæddum verjendum. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Rústir einar Sótsvört grind var það eina sem eftir var af jólageitinni eftir íkveikjuna í fyrra.
Í ljósum logum
Árið 2015 kviknaði
eldur í jólageitinni
út frá ljósaseríu.