Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Blaðsíða 2
2 Helgarblað 26. maí 2017fréttir Okkar kjarnastarfssemi er greiðslumiðlun og innheimta. Hver er þín? 515 7900 | alskil@alskil.is | alskil.is Síðan 2006 „Taldi ekki að það væru mikil verðmæti þessari heyhrúgu“ n Játar að hafa kveikt í jólageit IKEA en hafnar bótakröfu n Blaðamaður var viðstaddur réttarhöldin É g taldi ekki að það væru mikil verðmæti fólgin í þessari hey- hrúgu,“ sagði sakborningur fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Blaðamaður var viðstaddur forvitnileg réttarhöld þar sem réttað var yfir karlmanni og tveimur konum, öllum á þrítugsaldri, fyrir að hafa kveikt í IKEA-jólageitinni þann 26. nóvember í fyrra. Við þingfestingu málsins neituðu þremenningarnir sök en sú afstaða breyttist við aðal- meðferð málsins. Karlmaðurinn játaði að hafa kveikt í geitinni en öll höfnuðu þau bótakröfu IKEA, sem hljóðar upp á 1,8 milljónir króna auk vaxta. Öll báru þau við minnisleysi. Töldu sig vera að gera IKEA greiða Ástæðu íkveikjunnar má rekja til þeirrar þjóðsögu sem gengið hefur á einhverjum stöðum að IKEA á Íslandi sjái sér sérstakan hag í að jólageit fyrir tækisins verði eldi að bráð. Aug- lýsingagildið sem felist í umfjöllun fréttamiðla um skíðlogandi geitina geri slíkt skemmdarverk beinlínis eftirsóknarvert. Slíkar samsæris- kenningar fengu byr undir báða vængi í októberlok árið 2015 þegar bilun í ljósaseríu varð til þess að geitin fuðraði upp á þremur mín- útum um miðjan dag. Fjölmiðlar landsins gerðu málinu góð skil og einhverjir töldu að um þaulskipulagt markaðsplott væri að ræða. Við réttar höldin mátti ætla að þetta væri skoðun sakborninga. Lögreglumaður, sem var í hópi þeirra sem komu að handtöku þre- menninganna, sagði fyrir dómi að sakborningarnir hefðu ekki botnað neitt í harkalegum viðbrögðum lög- reglu enda beinlínis talið sig vera að gera IKEA greiða. Öryggisráðstafanir og lífstíðarbann Það mat er greinilega ekki á rökum reist því að sögn er forsvarsmönn- um IKEA á Íslandi mikið í mun að jólageitin fái að standa óáreitt, enda er heildarkostnaðurinn við upp- setningu hennar um tvær milljónir króna. Hún er rúmir sex metrar á hæð, nokkur tonn að þyngd og fagurlega skreytt ljósum og borð- um. Vegna skemmdarverka síðustu ára hefur eftirlit með geitinni verið hert til muna. Öryggismyndavélum hefur verið komið fyrir og rafmagns- girðing reist í kringum geitina. Stefna IKEA í málinu þarf ekki að koma neinum á óvart. Í byrjun árs 2016 greindi DV frá því að 45 Íslendingar væru í lífstíðarbanni frá versluninni vegna þjófnaðar í versluninni. Reglan er einfaldlega sú að þeir sem eru staðnir að verki við hnupl eru settir í slíkt bann. Í því ljósi er rökrétt að IKEA hafi sótt jólageitar-varganna til saka. Vissi ekki neitt Við réttarhöldin kom fram að karlmaðurinn og önnur konan hefðu verið úti að skemmta sér á skemmtistaðnum Húrra aðfara- nótt mánudagsins 14. nóvember. Eftir lokun staðarins sótti þriðja konan parið við 10-11 á Hverfis- götu og síðan keyrðu þau út í nóttina. Þau mundu ekki eftir neinu við yfirheyrslur í réttarsal og báru við ölvun. Þá afsökun gat „flóttabílstjórinn“ ekki notað enda hafði hún ekki bragðað dropa af áfengi samkvæmt mælingu lög- reglu. Minni hennar var þó líka afar gloppótt. Hún vissi ekki hvernig hugmyndin var tilkomin, áttaði sig í raun ekki á hvað var að gerast þegar hún sá geitina skíð- loga og hafði ekki hugmynd um hvernig númersplata bílsins, að minnsta kosti að framan verðu, varð hulin með límbandi. Þremenningarnir gátu því með engu móti varpað ljósi á það fyrir dómi af hverju jólageit IKEA fuðraði skyndilega upp þessa nótt. Það var öryggisvörður hjá IKEA sem sá hvað var að gerast í öryggis myndavél fyrirtækisins. Tvær ógreinilegar mannverur sáust nálgast geitina og skyndilega fór allt í bál og brand. Ör- yggisvörðurinn þusti út til að stöðva för skemmdarvarganna. Stúlkan sem ók bílnum bar við hræðslu þegar hún var spurð af hverju hún hefði sveigt tvisvar framhjá bíl starfs- mannsins og brunað út í nóttina. Megn bensínstækja í bílnum Öryggisvörðurinn lét hins vegar ekki deigan síga og hélt í humátt á eftir flóttabílnum. Á meðan var hann í símasambandi við lögreglu og leið- beindi henni hvert skyldi halda. Bíllinn var stöðvaður við Grímsbæ á Bústaðavegi og þremenningarnir handteknir. Vitnisburður lögreglu- manna var á þá leið að farþegar bíls- ins hefðu verið ölvaðir og þá sérstak- lega konan. Megn bensínstækja hafi verið í bílnum. Sú sem keyrði bíllinn var yfirheyrð þá um nóttina en far- þegarnir látnir sofa úr sér. Lögreglu- maður sem bar vitni fyrir dómi sagði að farþegarnir hefðu ekkert skilið í af hverju þeir voru handteknir og þeim hefði fundist gjörðir sínar afar kómískar. Hafi þeim þótt prakkarastrikið fyndið í nóvember þá var húmorinn að engu orðinn í réttarsal. Það var afar undarlegt að fylgjast með þremur vel gerðum ungum einstaklingum útskýra heimsku- pör eins og þessa íkveikju fyrir framan dómara, tvo fulltrúa sak- sóknara og að viðstöddum þremur skikkjuklæddum verjendum. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Rústir einar Sótsvört grind var það eina sem eftir var af jólageitinni eftir íkveikjuna í fyrra. Í ljósum logum Árið 2015 kviknaði eldur í jólageitinni út frá ljósaseríu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.