Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Síða 8
8 Helgarblað 26. maí 2017fréttir
T
ómar hillur og tómir kassar
merktir með skilti sem á
stendur „vara uppseld“
mæta örvæntingarfullum
foreldrum sem ráfa leit-
andi um leikfangaganga verslana. Á
samfélagsmiðlum berast neyðarköll
unnvörpum þar sem þessir sömu
buguðu foreldrar bera saman bækur
sínar og samræma fýluferðir í leit að
litlu leikfangi sem öll börn verða víst
að eiga í dag. Í þessum sömu versl-
unum hlaupa starfsmenn með síma
við eyra að hillunum til þess eins
að færa viðmælendum þær sorgar-
fregnir að allt sé þar búið, þrátt
fyrir orðróm í netheimum um að
ný sending væri komin. Óþreyjufull
börnin færast með hverri klukku-
stundinni nær brún fullkominnar
örvinglunar meðan foreldrar reyna
að finna spunavél hinna eirðarlausu.
Fidget Spinner, eða snerlar, heitir
græjan og er nýjasta æðið á Íslandi.
Verslanir hafa ekki við að endur-
nýja birgðir sínar áður en upplag-
ið er horfið í innkaupakerrur hinna
heppnu. Eins og svo oft áður í gegn-
um tíðina, þegar nýtt æði grípur um
sig, hafa margir skólar þurft að grípa
til þess ráðs að banna þessar litlu
græjur sem hringsnúast í lófum ung-
menna um allar trissur. DV kynnti
sér þetta sérkennilega leikfang.
Snúningur á streituna
Fidget Spinner-leikföng hafa verið
til frá því á tíunda áratugnum og eru
auglýst sem streitulosandi verkfæri
fyrir hina eirðarlausu. Rætur vin-
sælda þessa tækis um víða veröld nú,
árið 2017, má rekja til nokkurra tíma-
punkta. Fyrir það fyrsta þá birtist fyrir
síðustu jól grein eftir James Plafke í
Forbes þar sem spunavélunum var
lýst sem „skrifstofuleikfanginu sem
allir yrðu að eiga árið 2017.“
Á YouTube og spjallborðum
Reddit fóru síðan í mars síðastliðn-
um að birtast myndbönd frá not-
endum þar sem þeir léku listir sínar
með græjurnar. Samkvæmt tölfræði
Google fyrir apríl rauk leitarorðið
„fidget spinner“ upp alla lista þann
mánuð og í byrjun maí voru Fidget
Spinner-leikföng orðin eitt mest
selda leikfang
vefverslunar-
innar Amazon.
Þessi leikföng
hafa verið nær
ófáanleg undan-
farnar vikur
og æðið lét Ís-
lendinga ekki
ósnortið. Hér
á landi standa
ungmenni í
hópum með farsíma í annarri hendi
og Fidget Spinner-leikföng í hinni.
Eftirspurnin er mikil og enginn
virðist vilja vera útundan. Eins og
jójó-in, körfuboltamyndirnar, Pog‘s-
leikurinn og Pokémon er Fidget
Spinner-leikfangið æði sem heltekið
hefur íslensk ungmenni.
Selt af ADHD-samtökunum
Leikfangið sem slíkt er sáraein-
falt, oftast nær ódýrt og eins konar
eilífðarvél í tilgangsleysi sínu. Í miðj-
unni er hjólalega sem mismargir
og margvíslegir angar leikfangs-
ins snúast síðan í kringum. Miðju-
svæðinu með legunni er haldið milli
tveggja fingra og því síðan snúið.
Leikfangið snýst síðan um öxul sinn
á ógnarhraða og fast að því dáleiðir
notendur.
Leikfangið var markaðssett sem
tæki til að hjálpa fólki sem átti í
erfið leikum með að einbeita sér eða
glímdi við handaóeirð. Hefur því
verið haldið fram
að þetta gagnist
fólki sem glímir
við ofvirkni með
athyglisbrest
(ADHD), kvíða og
jafnvel einhverfu.
Skiptar skoðan-
ir eru þó meðal
sérfræðinga um
ágæti þessa verk-
færis í þeim fræð-
um enda margir
sem telja að þetta
sé hreinlega enn
einn athyglis-
þjófurinn í hönd-
um fólks.
Engu að síður
þá virðast ADHD-
samtökin á Ís-
landi hafa tek- ið Fidget Spinner
opnum örmum. Samtökin eru meira
að segja að selja leikföngin í fjáröfl-
unarskyni og eru átján mismunandi
tegundir til sölu á vef þeirra. En þar
eins og annars staðar eru þau að
sjálfsögðu uppseld – en væntanleg.
Þúsundir stykkja
seljast samdægurs
Þessar nær fordæmalausu vin sældir
snerlanna litlu komu kaupmönn-
um líka í opna skjöldu. Það var ekki
fyrr en þeir fóru að selja upp undir
þúsund eintök á augaabragði sem
þeir áttuðu sig á hvað þeir voru með
í höndunum.
„Þetta kom skemmtilega á óvart.
Ég fór sjálfur á YouTube til að sjá
hvað væri í gangi,“ segir Gunnar Ingi
Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hag-
kaupa, sem sjálfur kveðst vera með
eitt stykki Fidget Spinner á skrif-
borðinu sínu, sem gott sé að grípa í
öðru hverju.
Hann segir að Hagkaup hafi feng-
ið þúsundir stykkja inn í þar síðustu
viku en leikföngin stöldruðu stutt
við í hillunum. Þau hreinlega flugu
út.
„Sú sending seldist upp sam-
dægurs. Síðan fengum við sendingu
fyrir síðustu helgi og náðum að
senda út en hún kláraðist líka. “
DV ræddi við Gunnar Inga á
mánudag og þá var von á annarri
stórri sendingu, sem hann bjóst við
að færi í sölu í vikulok.
Líkt og erlendis hafa íslenskir
skólar þurft að bregðast við þessum
vinsældum enda dæmi um að heilu
bekkirnir séu undirlagðir af snúandi
fiktsnerlum með tilheyrandi raski
á kennslu. Hefur DV upplýsingar
um að margir skólar hafi neyðst
til að banna eða takmarka veru-
lega notkun á þessum leikföngum á
skólatíma.
Hvers kyns æði á það sameigin-
legt með öðru að líftími þess er
mislangur. Af eftirspurninni og vin-
sældum snerlanna litlu virðist sum-
arleikfangið á Íslandi í ár vera fundið.
Hvort örvæntingarfullum foreldrum
tekst að uppfylla óskir barna sinna á
næstunni, kemur væntanlega ekki í
ljós fyrr en rykið sest í kringum rekk-
ana í leikfangaverslunum. n
„Ég fór
sjálfur á
YouTube til að sjá
hvað væri í gangi
Spunavél hinna eirðar-
lausu er nær ófáanleg
n Fidget Spinner-æði gengur nú yfir n Verslanir hafa ekki undan n Leikföngin bönnuð í skólum
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Ótal gerðir Fidget Spinner-leikföngin, eða
snerlar, kom í ýmiss konar útfærslu, stærðum
og gerðum. Í einfaldleika sínum hafa þessar litlu
tilgangslausu eilífðarvélar slegið í gegn og er
vandkvæðum bundið að komast yfir eintak. MynD EPA
Læra brellur á netinu Eins og með jójó-in á sínum tíma þá eru spinner-
aðdáendur að framkvæmda hinar ýmsu kúnstir með snerlunum sem þeir
læra á netinu. Vinsælt er að láta þá snúast á nefbroddinum. MynD EPA
Algeng sjón í verslunum Skakkt
skiltið og bjagaður kassinn ber þess vitni
að barist hafi verið um innihaldið. MynD SMJ