Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Qupperneq 8
8 Helgarblað 26. maí 2017fréttir T ómar hillur og tómir kassar merktir með skilti sem á stendur „vara uppseld“ mæta örvæntingarfullum foreldrum sem ráfa leit- andi um leikfangaganga verslana. Á samfélagsmiðlum berast neyðarköll unnvörpum þar sem þessir sömu buguðu foreldrar bera saman bækur sínar og samræma fýluferðir í leit að litlu leikfangi sem öll börn verða víst að eiga í dag. Í þessum sömu versl- unum hlaupa starfsmenn með síma við eyra að hillunum til þess eins að færa viðmælendum þær sorgar- fregnir að allt sé þar búið, þrátt fyrir orðróm í netheimum um að ný sending væri komin. Óþreyjufull börnin færast með hverri klukku- stundinni nær brún fullkominnar örvinglunar meðan foreldrar reyna að finna spunavél hinna eirðarlausu. Fidget Spinner, eða snerlar, heitir græjan og er nýjasta æðið á Íslandi. Verslanir hafa ekki við að endur- nýja birgðir sínar áður en upplag- ið er horfið í innkaupakerrur hinna heppnu. Eins og svo oft áður í gegn- um tíðina, þegar nýtt æði grípur um sig, hafa margir skólar þurft að grípa til þess ráðs að banna þessar litlu græjur sem hringsnúast í lófum ung- menna um allar trissur. DV kynnti sér þetta sérkennilega leikfang. Snúningur á streituna Fidget Spinner-leikföng hafa verið til frá því á tíunda áratugnum og eru auglýst sem streitulosandi verkfæri fyrir hina eirðarlausu. Rætur vin- sælda þessa tækis um víða veröld nú, árið 2017, má rekja til nokkurra tíma- punkta. Fyrir það fyrsta þá birtist fyrir síðustu jól grein eftir James Plafke í Forbes þar sem spunavélunum var lýst sem „skrifstofuleikfanginu sem allir yrðu að eiga árið 2017.“ Á YouTube og spjallborðum Reddit fóru síðan í mars síðastliðn- um að birtast myndbönd frá not- endum þar sem þeir léku listir sínar með græjurnar. Samkvæmt tölfræði Google fyrir apríl rauk leitarorðið „fidget spinner“ upp alla lista þann mánuð og í byrjun maí voru Fidget Spinner-leikföng orðin eitt mest selda leikfang vefverslunar- innar Amazon. Þessi leikföng hafa verið nær ófáanleg undan- farnar vikur og æðið lét Ís- lendinga ekki ósnortið. Hér á landi standa ungmenni í hópum með farsíma í annarri hendi og Fidget Spinner-leikföng í hinni. Eftirspurnin er mikil og enginn virðist vilja vera útundan. Eins og jójó-in, körfuboltamyndirnar, Pog‘s- leikurinn og Pokémon er Fidget Spinner-leikfangið æði sem heltekið hefur íslensk ungmenni. Selt af ADHD-samtökunum Leikfangið sem slíkt er sáraein- falt, oftast nær ódýrt og eins konar eilífðarvél í tilgangsleysi sínu. Í miðj- unni er hjólalega sem mismargir og margvíslegir angar leikfangs- ins snúast síðan í kringum. Miðju- svæðinu með legunni er haldið milli tveggja fingra og því síðan snúið. Leikfangið snýst síðan um öxul sinn á ógnarhraða og fast að því dáleiðir notendur. Leikfangið var markaðssett sem tæki til að hjálpa fólki sem átti í erfið leikum með að einbeita sér eða glímdi við handaóeirð. Hefur því verið haldið fram að þetta gagnist fólki sem glímir við ofvirkni með athyglisbrest (ADHD), kvíða og jafnvel einhverfu. Skiptar skoðan- ir eru þó meðal sérfræðinga um ágæti þessa verk- færis í þeim fræð- um enda margir sem telja að þetta sé hreinlega enn einn athyglis- þjófurinn í hönd- um fólks. Engu að síður þá virðast ADHD- samtökin á Ís- landi hafa tek- ið Fidget Spinner opnum örmum. Samtökin eru meira að segja að selja leikföngin í fjáröfl- unarskyni og eru átján mismunandi tegundir til sölu á vef þeirra. En þar eins og annars staðar eru þau að sjálfsögðu uppseld – en væntanleg. Þúsundir stykkja seljast samdægurs Þessar nær fordæmalausu vin sældir snerlanna litlu komu kaupmönn- um líka í opna skjöldu. Það var ekki fyrr en þeir fóru að selja upp undir þúsund eintök á augaabragði sem þeir áttuðu sig á hvað þeir voru með í höndunum. „Þetta kom skemmtilega á óvart. Ég fór sjálfur á YouTube til að sjá hvað væri í gangi,“ segir Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hag- kaupa, sem sjálfur kveðst vera með eitt stykki Fidget Spinner á skrif- borðinu sínu, sem gott sé að grípa í öðru hverju. Hann segir að Hagkaup hafi feng- ið þúsundir stykkja inn í þar síðustu viku en leikföngin stöldruðu stutt við í hillunum. Þau hreinlega flugu út. „Sú sending seldist upp sam- dægurs. Síðan fengum við sendingu fyrir síðustu helgi og náðum að senda út en hún kláraðist líka. “ DV ræddi við Gunnar Inga á mánudag og þá var von á annarri stórri sendingu, sem hann bjóst við að færi í sölu í vikulok. Líkt og erlendis hafa íslenskir skólar þurft að bregðast við þessum vinsældum enda dæmi um að heilu bekkirnir séu undirlagðir af snúandi fiktsnerlum með tilheyrandi raski á kennslu. Hefur DV upplýsingar um að margir skólar hafi neyðst til að banna eða takmarka veru- lega notkun á þessum leikföngum á skólatíma. Hvers kyns æði á það sameigin- legt með öðru að líftími þess er mislangur. Af eftirspurninni og vin- sældum snerlanna litlu virðist sum- arleikfangið á Íslandi í ár vera fundið. Hvort örvæntingarfullum foreldrum tekst að uppfylla óskir barna sinna á næstunni, kemur væntanlega ekki í ljós fyrr en rykið sest í kringum rekk- ana í leikfangaverslunum. n „Ég fór sjálfur á YouTube til að sjá hvað væri í gangi Spunavél hinna eirðar- lausu er nær ófáanleg n Fidget Spinner-æði gengur nú yfir n Verslanir hafa ekki undan n Leikföngin bönnuð í skólum Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Ótal gerðir Fidget Spinner-leikföngin, eða snerlar, kom í ýmiss konar útfærslu, stærðum og gerðum. Í einfaldleika sínum hafa þessar litlu tilgangslausu eilífðarvélar slegið í gegn og er vandkvæðum bundið að komast yfir eintak. MynD EPA Læra brellur á netinu Eins og með jójó-in á sínum tíma þá eru spinner- aðdáendur að framkvæmda hinar ýmsu kúnstir með snerlunum sem þeir læra á netinu. Vinsælt er að láta þá snúast á nefbroddinum. MynD EPA Algeng sjón í verslunum Skakkt skiltið og bjagaður kassinn ber þess vitni að barist hafi verið um innihaldið. MynD SMJ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.