Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Blaðsíða 31
segja mér líka að þeir séu svo ánægðir að eiga þennan valkost í stað þess að vera alltaf í hefðbundnu næturklúbba- stemningunni.“ Áhugamál og atvinna „Ég er starfandi sjúkraþjálfari í fullu starfi, rek Salsa Ísland og er tveggja barna móðir. Ég sef afar lítið og á engan frítíma en ég er mjög rík í hjart- anu. Þetta er svolítið „kreisí“, en þetta er alveg þess virði, ég er umkringd vinum mínum sem elska þetta með mér,“ segir Edda. Salsa Ísland er frumburður hennar, en hún stofnaði það áður en hún kynntist manninum sínum og eignaðist börn. „Maðurinn minn er dæmigerður íslenskur karlmaður, hann er smiður. Við ákváðum að fara til Kúbu þegar við vorum nýbúin að taka saman og þar sá hann upprunalegu útgáfuna af salsa og féll jafnmikið og ég fyrir dansinum,“ segir Edda. „Ég er algjör dellumanneskja og held áfram minni ástríðu í dansinum, hann fer með mér að dansa, við kennum saman og við hlustum á salsa heima. Börnin okkar dilla sér við tón- listina líka.“ Saman eiga Edda og Páll Sigurðsson, maðurinn hennar, son sem er fjögurra ára og dóttur sem er átta ára. Fyrir átti Páll sautján ára dóttur. Edda segir að stundum á kvöldin, þegar hún tilkynni að hún þurfi að vinna, heyri hún börnin segja: „Nei mamma, þú ert bara að fara að dansa.“ „Salsa er bæði vinnan mín og áhugamál, en ég myndi gera þetta hvort sem er sem áhugamál,“ segir Edda. „Það er stærsti lúxusinn að vera að leika sér í áhugamálinu sínu allan daginn.“ Salsa gefur manni breyttan lífsstíl Aðspurð hvort salsa sé bara fyrir Reykvíkinga svarar Edda að það sé systraklúbbur á Akureyri. „Við höfum fengið fyrirspurnir frá landsbyggðinni og höfum haldið nám- skeið þar. Við erum ekki með námskeið fyrir börn eða unglinga, meðalaldurinn hjá okkur er 35 ár. Ég heyri mitt fólk oft hafa orð á hvað salsa hefur gefið því mikið. Þetta fjallar um breyttan lífsstíll, fara út og dansa í stað þess að horfa á sjónvarp enn eitt kvöldið. Svo mætir maður bara ferskur í vinnu daginn eftir.“ Salsa Ísland er með nemendasýn- ingarhópa sem fá að læra rútínu og dansa á sviði. „Við erum komin með nokkrar kynslóðir af sýningarhópum og síðastliðið haust tókum við þátt í Stargate-keppninni, þar sem haldnar eru fimm undankeppnir, og gerðum okkur lítið fyrir og unnum undankeppnina í Berlín. Síðan tókum við þátt í úrslitakeppninni í Dusseldorf og urðum þar í þriðja sæti. Við bara tókum þetta alla leið og komum sjálf- um okkur örlítið á óvart, en með þessu settum Ísland á kortið og þetta hjálpar auðvitað til við að auglýsa okkur og halda hátíð af þeirri stærðargráðu sem hún er núna um helgina. Það er svo jákvætt fyrir Reykjavík þegar gefst tækifæri til að upplifa eitthvað nýtt,“ segir Edda. „Það er fjölmarga iðkendur salsa að finna í stórborgum þar sem latín- samfélagið er stórt, þannig að það telst óvenjulegt að okkur hér hafi tekist að byggja upp svona öflugt samfélag hér, jafn einangruð og við erum. Það þarf svona klikkaðan hamstur í hjóli eins og mig til að halda þessu gangandi,“ segir Edda og hlær. „Sá er síðan alltaf með gott fólk í kringum sig og það hef ég.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.