Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Side 46
Helgarblað 26. maí 2017KYNNINGARBLAÐ6 Útivist
Fyrir einfaldan ferðamáta
og skemmtilega útiveru
Himintjöld er fyrirtæki sem hóf starfsemi sína vegna löngunar stofnenda þess til
að ferðast með þaktjald um Ísland.
Benedikt Þ. Sigurjónsson og Björn
Hákon Sveinsson hófu innflutning
á þaktjöldum frá Gordigear í maí
2015. Við stofnun fyrirtækisins var
sú ákvörðun tekin að fá ekkert utan-
aðkomandi fjármagn, heldur vinna
fyrirtækið upp frá grunni, eitt skref í
einu á eigin verðleikum og elju. Í dag
flytja þeir félagar inn fjölbreytt úrval
útivistarvöru ásamt því að selja og
leigja þaktjöld frá bæði Gordigear
og iKamper.
Þaktjöldin, sem eru fest við
þakboga á bílum, eru einstaklega
þægilegur og meðfærilegur
gistikostur á ferðalögum í náttúru
Íslands. Að sögn Benedikts og Björns
eru þaktjöld farin að ryðja sér til
rúms hér á landi en áður fyrr sáust
bara erlendir ferðamenn með slíkan
búnað: „Þó svo að Gordigear tjöldin
séu hönnuð fyrir ástralska náttúru
henta þau einkar vel til ferðalaga á
Íslandi. Kuldinn frá jörðinni nær ekki
upp í gegnum dýnuna og þú kemst
hvert sem er með tjöldin á þakinu,
misgóðir malarvegir og ár eru ekkert
vandamál. Það hafa ríkt efasemdir
um að þessi tjöld þyldu vindasama
veðráttu hér. En reynslan síðustu tvö
árin hefur sýnt okkur að þaktjöldin
þola bæði rokið og rigninguna betur
en hefðbundin tjöld,“ segja þeir
félagar.
Önnur merkileg nýjung sem
Himintjöld býður upp á eru svokall-
aðar bálpönnur frá UMAS í Noregi.
Fyrir utan afar fallegt útlit bjóða
bálpönnurnar upp á notalegan yl
ef kveikt er upp í þeim við sumar-
bústaðinn eða á sólpallinum heima,
einnig er hægt að grilla á þeim,
hita sér kaffi og margt fleira með
þeim aukahlutum sem í boði eru.
Eitt dæmi um bálpönnu er sú sem
hefur hlotið heitið Höfðingi. Um er
að ræða nýjustu gerðina frá UMAS
og jafnframt þá stærstu. Pannan
sjálf er 80 sentimetrar í þvermál en
þrífóturinn er 180 sentimetra hár.
Hægt er að nota hvort tveggja við
og kol til að kveikja upp í bálpönnun-
um og einnig er hægt að breyta
hæð grillgrindarinnar yfir eldinum til
að stjórna hitanum. Öllum bálpönn-
um fylgir öskuskál og keðja með króki
til að hengja kaffikönnur yfir bálinu.
Óðinn, önnur bálpanna og sú vin-
sælasta, er með stillanlegum fótum
og því stöðug hvar sem er. Hægt er
að fá alls konar aukahluti með Óðni,
til dæmis kaffikönnur, steikarpönnu,
hliðarborð, vindhlífar, lok, yfirbreiðslu
ásamt vöfflu-, samloku- og pylsu-
járnum úr burstuðu pottstáli sem
nota má með öllum bálpönnunum.
Meðal annarrar útivistarvöru
sem Himintjöld býður upp á eru ým-
iss konar handhægar ferðagræjur
frá BioLite fyrir útileguna sem allar
miða að því að framleiða rafmagn úr
hita eða sólarorku á meðan þú eldar
mat yfir eldinum. Himintjöld rekur
netverslun og netleigu þannig að
yfirbygging er í lágmarki. Þetta gerir
fyrirtækinu kleift að bjóða vörurnar
á mjög hagstæðu og sanngjörnu
verði, hvort sem er leigt eða keypt.
Allar upplýsingar, pöntunarform og
annað sem skiptir máli, er að finna
á vefsíðunni himintjold.is og frekari
spurningum er svarað á tölvupóst-
fanginu: upplysingar@himintjold.is.
Himintjöld:
Mynd Ívar SælandMynd Ívar Sæland
Mynd Fotokompaniet AS