Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Side 48
Helgarblað 26. maí 2017KYNNINGARBLAÐ8 Útivist
Fjórhjólaferðir fyrir alla
Óbyggðaferðir er fjölskyldu-fyrirtæki í Fljótshlíðinni sem nú í ár fagnar 11.
starfsárinu. Við bjóðum upp
á skoðunarferðir á fjórhjólum
allt árið um kring, hvort sem er
í Fljótshlíðinni eða lengra inn á
hálendið. Um síðustu áramót
fluttum við aðstöðuna um þrjá
kílómetra. Við erum nú staðsett
með vinum okkar, Hótel Fljótshlíð,
í Smáratúni, sem er svansvottað
hótel og veitingastaður.
Að njóta náttúru og útiveru á
fjórhjólum er skemmtileg upplif-
un. Við bjóðum upp á fjölbreyttar
ferðir allt frá tveimur klukkustund-
um til dagsferða, sem henta jafnt
byrjendum sem vönum.
Þórsmörk, Eyjafjallajökull,
Tindfjöll og Markarfljótsgljúfur eru
dæmi um staði í næsta nágrenni
við okkur. Meðal áfangastaða í
ferðum okkar lengra inni á hálendið
eru Landmannalaugar, Hrafn-
tinnusker, Heklusvæðið og fleira.
Óbyggðaferðir Atv Iceland.is
er með aðsetur að Hótel Fljóts-
hlíð Smáratúni. Við útvegum
viðskiptavinum hjálma og allan
hlífðarfatnað. Fjórhjólaferðirnar
með Óbyggðaferðum henta jafnt
einstaklingum, fjölskyldum og hóp-
um allt að 40 manns. Í samstarfi
við Hótel Fljótshlíð er auðvelt að
klæðskera skemmtilegt hópefli
með möguleika á gistingu, sæl-
keramat beint frá býli og frábærri
afþreyingu, hvort sem er á fjórhjóli
eða hestum, en að Smáratúni er
líka starfrækt hestaleiga á sumrin.
Við leggjum metnað í persónu-
lega þjónustu og að ferðast um
landið í sátt við umhverfið og
náttúru. Við erum aðeins í 90 mín-
útna akstursfjarlægð frá Reykjavík
(113 km).
Heimsókn í Fljótshlíðina svíkur
engan. Saman getum við búið til
uppskrift að góðum degi. Upp-
lýsingar info@atviceland.is eða
í símum 661-2503 (Unnar) og
661-2504.
Óbyggðaferðir:
„Við leggjum
metnað í
persónulega þjón-
ustu og að ferðast
um landið í sátt við
umhverfið og nátt-
úru. Við erum að-
eins í 90 mínútna
akstursfjarlægð
frá Reykjavík
Kýlingar inn af Landmannalaugum
Á leið heim úr Þórsmörk. Goðasteinn á toppi Eyjafjallajökuls.