Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Page 48

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Page 48
Helgarblað 26. maí 2017KYNNINGARBLAÐ8 Útivist Fjórhjólaferðir fyrir alla Óbyggðaferðir er fjölskyldu-fyrirtæki í Fljótshlíðinni sem nú í ár fagnar 11. starfsárinu. Við bjóðum upp á skoðunarferðir á fjórhjólum allt árið um kring, hvort sem er í Fljótshlíðinni eða lengra inn á hálendið. Um síðustu áramót fluttum við aðstöðuna um þrjá kílómetra. Við erum nú staðsett með vinum okkar, Hótel Fljótshlíð, í Smáratúni, sem er svansvottað hótel og veitingastaður. Að njóta náttúru og útiveru á fjórhjólum er skemmtileg upplif- un. Við bjóðum upp á fjölbreyttar ferðir allt frá tveimur klukkustund- um til dagsferða, sem henta jafnt byrjendum sem vönum. Þórsmörk, Eyjafjallajökull, Tindfjöll og Markarfljótsgljúfur eru dæmi um staði í næsta nágrenni við okkur. Meðal áfangastaða í ferðum okkar lengra inni á hálendið eru Landmannalaugar, Hrafn- tinnusker, Heklusvæðið og fleira. Óbyggðaferðir Atv Iceland.is er með aðsetur að Hótel Fljóts- hlíð Smáratúni. Við útvegum viðskiptavinum hjálma og allan hlífðarfatnað. Fjórhjólaferðirnar með Óbyggðaferðum henta jafnt einstaklingum, fjölskyldum og hóp- um allt að 40 manns. Í samstarfi við Hótel Fljótshlíð er auðvelt að klæðskera skemmtilegt hópefli með möguleika á gistingu, sæl- keramat beint frá býli og frábærri afþreyingu, hvort sem er á fjórhjóli eða hestum, en að Smáratúni er líka starfrækt hestaleiga á sumrin. Við leggjum metnað í persónu- lega þjónustu og að ferðast um landið í sátt við umhverfið og náttúru. Við erum aðeins í 90 mín- útna akstursfjarlægð frá Reykjavík (113 km). Heimsókn í Fljótshlíðina svíkur engan. Saman getum við búið til uppskrift að góðum degi. Upp- lýsingar info@atviceland.is eða í símum 661-2503 (Unnar) og 661-2504. Óbyggðaferðir: „Við leggjum metnað í persónulega þjón- ustu og að ferðast um landið í sátt við umhverfið og nátt- úru. Við erum að- eins í 90 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík Kýlingar inn af Landmannalaugum Á leið heim úr Þórsmörk. Goðasteinn á toppi Eyjafjallajökuls.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.