Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Síða 52
28 sakamál Helgarblað 26. maí 2017
( 893 5888
Persónuleg
og skjót
þjónusta
þú finnur
okkur á
facebook
Tilkynnti
um fyrir-
hugað rán
Gáfnafar og glæpahneigð fara
ekki alltaf saman. Það sannaðist
í apríl 2015 þegar Andrew nokk-
ur Hennels ákvað að láta greipar
sópa um Tesco-stórmarkaðinn
í Norfolk á Englandi. Áður en
Andrew lagði upp í þá frægðar-
för upplýsti hann um áform sín á
Facebook; „Doing. Tesco. Over.“
Um fimmtán mínútum síðar
greip lögreglan Andrew glóð-
volgan skammt frá Tesco í King's
Lynn í Norfolk. Hann var vopn-
aður hnífi og með ránsfenginn
úr Tesco; 410 sterlingspund.
Andrew fékk fjögurra ára dóm.
Á
rið 2013 braust Ashley Ke-
ast, ásamt vini sínum Ant-
hony Hunt, inn í hús í Rother-
ham. Tvímenningarnir höfðu
upp úr krafsinu rafmagnstæki,
skartgripi og Audi-bifreið, sam-
tals að verðmæti 27.000 punda.
Inni á heimilinu, nánast með þýf-
ið í fanginu, fannst Ashley þjóð-
ráð að taka eina sjálfsmynd (e. sel-
fie) á vettvangi glæpsins og notaði
til þess snjallsíma og SIM-kort sem
hann hafði fundið á heimilinu. Fyr-
ir mistök sendi hann myndina, í
gegnum Whatsapp-skilaboðafor-
ritið, á vini húseigendanna. Árið
2014 fékk Ashley tveggja ára og átta
mánaða dóm fyrir innbrotið og Ant-
hony 18 mánuði. Ljóst er að ekki var
snjallræði að grípa til snjallsímans. n
Ekkert snjallræði
„Ég vil helsT
fara heim“
n fórnarlamb axels var á morgunskokki n fannst níu tímum síðar
É
g vil helst fara heim til foreldra
minna, því það er ferming
framundan hjá okkur á Græn-
landi. Ég vil helst fara heim,“
sagði þrítugur Grænlendingur,
Axel Otto Berthel Paaviannguaq
Christiansen, rétt áður en dómur var
kveðinn upp yfir honum í undirrétti í
Kaupmannahöfn, 22. maí 2017. Axel
Otto var ákærður fyrir sérlega hrotta-
lega nauðgun og morðtilraun sem átti
sér stað árla morguns 16. ágúst 2016.
Fórnarlambið var 39 ára kona sem í
mesta grandaleysi hafði ákveðið að
hreinsa hugann í morgunsárið með
því að skokka á stíg við Sporsløjfen á
Austurbrú í Kaupmannahöfn.
Engin heimför í bráð
Orðin lét Axel Otto falla rétt áður en
hluti landsréttar dró sig í hlé til að
ákvarða lyktir í máli hans. En það
átti ekki fyrir Axel Otto að liggja að
komast heim í föðurhús og áður-
nefnda fermingu á Grænlandi
því meðlilmir landsréttar voru á
einu máli; Axel Otto skyldi sæta
ótímabundnu varðhaldi.
Fátt um viðbrögð
Þegar dómurinn var kveðinn upp
sýndi sá dæmdi engin viðbrögð, en
leit á túlk sinn og muldraði „hmm“
nokkrum sinnum. Úrskurðinn
byggði rétturinn á þeirri staðreynd
að Axel Otto hefði látið til skarar
skríða snemma morguns, klukkan
sex nánar til tekið, þegar, eðli máls-
ins samkvæmt, fáir voru á ferli og
skilið fórnarlamb sitt eftir illa farið,
hjálparlaust og í lífshættu.
Ógeðfelldar aðfarir
Axel Otto dró konuna inn í kjarr,
nauðgaði henni, gekk í skrokk á
henni með höggum og spörkum og
reyndi síðan að kyrkja hana með
bandi eða hennar eigin fatnaði. Að
þessu loknu huldi hann konuna
í kjarrinu en það varð henni til
happs að mörgum tímum síðar fór
fjölskylda hennar að undrast um
hana. Um níu klukkustundum síð-
ar fundu ættingjar konunnar hana,
hjálparvana og við dauðans dyr
vegna áverka og ofkælingar.
Óvíst með áfrýjun
Einnig tók rétturinn tillit til mats
læknaráðsins sem taldi Axel Otto
glíma við alvarlega persónuleika-
röskun og því afar líklegt að hann
myndi fremja fleiri glæpi sem stofn-
að gætu lífi og limum fólks í veru-
lega hættu. Axel Otto var að auki
dæmdur til að greiða fórnarlambi
sínu 153.040 danskar krónur, sem
samsvarar 2,3 milljónum íslenskra
króna. Í samráði við verjanda
sinn ákvað Axel Otto að taka ekki
ákvörðun um áfrýjun að svo stöddu.
Færslur á Facebook
Rúmum hálftíma eftir ódæðið setti
Axel Otto færslur á Facebook-síðu
sína. Þar skrifaði hann, á græn-
lensku, klukkan 7.42: „Ég fer brátt
í búð. Ég vil ekki verða edrú. Ég vil
alltaf vera hífaður. Hver vill láta sér
leiðast? Ég segi bara: Hver vill ekki
vera í glasi og stytta þannig dag-
ana?“ Sjö mínútum síðar skrifar
hann: „Ég elska hana of mikið og
vil vera með henni. Hún veit að
ég elska hana og hefur vitað lengi.
Ég vil fara með henni til Sisimut
(heimabær hans á Grænlandi) […]
saman getum við komist í gegn-
um gott og slæmt í lífinu. Það er allt
hluti af lífinu.“ Fyrir rétti vildi Axel
Otto þó ekki upplýsa til hvaða konu
hann skrifaði ástarjátninguna. n
Sporsløjfen Á þessum slóðum réðst Axel Otto á fórnarlamb sitt. „Ég vil helst fara
heim til foreldra
minna, því það er ferming
framundan hjá okkur á
Grænlandi.
„vopnað“
rán hjá veð-
mangara
Gary Rough hugðist ræna veð-
mangara í Glasgow. „Vopn-
aður“ agúrku sem sett var í
svartan sokk sneri hann sér
að afgreiðslustúlku Ladbrokes
og krafðist fjárins, en stúlkan,
merkilegt nokk, varð ekki við
kröfum Garys. Þetta varð ekki
ferð til fjár hjá þessum lánlausa
ræningja því aðvífandi lögreglu-
þjónn á frívakt sneri hann nið-
ur á staðnum og handtók hann.
Gary fullyrti að um grín hefði
verið að ræða og sagði: „Fer
ég í grjótið fyrir þetta?“ Þetta
reyndist dýrt „spaug“ því Gary
fékk fangelsisdóm fyrir vikið
árið 2014.