Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Qupperneq 62

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Qupperneq 62
38 menning Helgarblað 26. maí 2017 Fyrsta, annað og … þriðja þ að er hátíðleg stemning í Gallerí Fold við Rauðarár- stíg þegar síðasta listmuna- uppboð vetrarins fer fram. Klukkan er að nálgast sex á sólríkum mánudegi þann 22. maí og eftir skamma stund verða hundrað og fimm listaverk boðin upp. Þátttakendur eru að tínast inn einn af öðrum. Í móttökunni skrá þeir nöfn sín og ítarupplýsingar á blöð og fá í staðinn plastspjald með stóru svörtu númeri, sem þeir veifa svo þegar þeir vilja bjóða í verk. Í kringum hundrað svörtum plaststól- um hefur verið raðað upp í anddyr- inu með einni gangröð í miðjunni. Innar í galleríinu hefur listaverk- unum verið stillt upp við veggi, hvert þeirra merkt með gulum miða með númeri verksins. Nokkrir áhugasam- ir listunnendur ganga um og virða fyrir sér verkin sem þeir gætu hugs- að sér að kaupa. Alls konar fólk er að mæta á svæðið, heldri frúr, jakkafata- klæddir hagfræðingar, menntaskóla- kennarar og maður í skítugum iðnað- armannabuxum og stáltáarskóm. „Það er tiltölulega mikið af nýjum andlitum,“ segir Jóhann Ágúst Hansen, framkvæmdastjóri gallerísins, en hann mun stýra fyrri hluta uppboðsins. Hann er á hlaup- um fram og til baka með pappíra – enda má enn senda inn fortil- boð í verk í gegnum netið, allt þar til fimmtán mínútum áður en uppboð- ið hefst. Þegar sá tími er verður rólegra hjá Jóhanni og hann gefur sér tíma til að spjalla stuttlega við blaðamann á hálfopinni skrifstofu uppfullri af ljós- myndum af erlendum poppstjörn- um, ýmist eftir stjörnuljósmyndar- ann Janette Beckman eða eftir hann sjálfan. Hann viðurkennir að það sé spenna í loftinu en segir þó að eftir því sem maður verður reyndari í uppboðshaldinu minnki stressið, en hann hefur starfað hjá galleríinu í rúmlega 20 ár. Jóhann útskýrir að mestu vinnunni ljúki raunar tveimur vikum fyrir uppboð þegar uppboðs- skráin er tilbúin, þá sé búið að skrá, verðmeta og mynda öll verkin. Hinum megin á skrifstofunni situr Tryggvi Páll Friðriksson, hokinn af reynslu í listmunasölunni. Hann segir uppboðið vera nokkuð hefð- bundið en bendir blaðamanni þó á að verkið sem sker sig kannski helst úr í dag sé verk eftir Jón Þór Birgisson, sem er betur þekktur fyrir tónlistar- sköpun sína með Sigur Rós. Verk- ið sem nefnist Riceboy sleeps, the trees turn red er unnið með blandaðri tækni, teikning sem unnin er eftir ljósmynd er gerð á pappír sem er svo ram- maður inn með gömlum viðarglugga. Það styttist í að upp- boðið hefjist, fólk tín- ist inn og fær sér sæti. Það verður ekkert sér- staklega fjölmennt í dag – ætli það séu ekki um sjötíu manns sem mætt- ir eru í galleríið. Þegar klukkan er orðin rétt rúm- lega sex gengur jakkafataklæddur Jóhann Ágúst inn að púltinu á miðju sviðinu fyrir fram stórt dökkt olíu- málverk eftir danskan 19. aldar mál- ara í gylltum ramma. Hann festir hljóðnema á höfuðið, býður fólk velkomið og tilkynnir að það hafi orðið örlitlar breytingar, verk Nínu Tryggvadóttur verði því miður ekki boðið upp að þessu sinni af Síðasta listmunauppboð vetrarins haldið í Gallerí Fold Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Fjölbreytt verk boðin upp Jóhann Ágúst býður hér upp dúkristuna Min Husfru frá 1945 eftir Jón Engilberts- son. Mynd SiGtryGGur Ari Ekki nógu gott verð Verð sem fékkst fyrir verkið Riceboy sleeps, the trees turn red eftir Jónsa í Sigur Rós var ekki ásætt- anlegt að mati seljanda og var verkið því innkallað. Mynd JohAnn AGuSt hAnSEn „Frá Hreðavatni eftir Ásgrím jónsson var dýrasta verkið, en það fór á 1,2 milljónir sem er talsvert undir því verði sem ég teldi eðlilegt fyrir svona verk. sá sem keypti það gerði mjög góð kaup.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.