Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Page 63
menning 39Helgarblað 26. maí 2017
óviðráðan legum ástæðum.
Og þá hefst uppboðið. Uppboðs
haldarinn kynnir inn verkin eitt á
fætur öðru, inn ganga svartklæddar
ungar konur og halda á verkunum
fyrir framan sig svo mögulegir kaup
endur geti virt þau fyrir sér – en
auk þess sjást verkin á skjá sem er
til hliðar við sviðið. Jóhann kynnir
verkið stuttlega, listamann og nafn
verksins.
„Við byrjum í hundrað þúsundum.
Fæ ég hundrað þúsund króna boð?“
Einhver lyftir upp spjaldi.
„Hundrað þúsund eru boðin, fæ
ég hundrað og tuttugu? Hundrað og
tuttugu eru boðin, fæ ég hundrað
og fjörtíu? Hundrað og fjörtíu eru
boðin, fæ ég hundrað og sextíu?
Hundrað og sextíu eru boðin, fæ ég
hundrað og áttatíu?“
Þannig gengur þetta áfram þar til
engin hærri boð koma.
„Tvö hundruð og fjörtíu, fæ ég tvö
hundruð og sextíu? Tvö hundruð
og fjörtíu eru boðin fyrsta … Tvö
hundruð og fjörtíu eru boðin fyrsta
annað og …“ Hann slær hamrinum
niður í púltið með hvelli. „… þriðja.
Kærar þakkir.“
Athygli uppboðshaldarans er
eitur skörp, á sama tíma og hann
þylur upp síðasta boðið og spyr
hvort einhver bjóði hærra, fylgist
hann bæði með salnum og hliðar
herberginu þar sem tveir starfs
menn taka við tilboðum í gegnum
síma. Þegar hraðinn eykst breytist
tónninn í rödd í uppboðshaldarans.
Unga konan með litaða bláa hár
ið sem situr við skrifborðið við hlið
uppboðshaldarans skráir skilmerki
lega niður númerin á spjöldum
hæstbjóðenda. Eftir um klukkustund
hefur rúmlega helmingur verkanna
verið boðinn upp og þá skipta upp
boðshaldararnir um stað – Tryggvi
tekur við.
Verkin eru fjölbreytt, flest eru
málverk eftir íslenska listamenn,
en þarna eru þó nokkrir skúlptúr
ar, vefnaðarverk, grafíkverk, teikn
ingar og ein Guðbrandsbiblía, þarna
eru Kjarval og Stórval, Gunnlaugur
Blöndal og Karen Agnete, Samúel
Jónsson og Ásgrímur Jónsson, Tolli
og meira að segja lítil teikning eftir
Mugg.
Snyrtilega klætt og myndarlegt
par í kringum fertugt býður í verk
eftir Karólínu Lárusdóttur. Ein
hver býður hærra. Þau horfa djúpt í
augu hvort annars, ræða saman með
augnaráðinu og svo lyftir maðurinn
spjaldinu öðru sinni. Þetta endurtek
ur sig einu sinni enn – en þá er kom
ið að fjárhagslegum þolmörkum.
Keppinauturinn býður hærra en þau
treysta sér. Vonbrigðin leyna sér ekki.
Seinna ná þau þó að næla sér í annað
verk og taka gleði sína á ný.
Sumir gestanna skrá samvisku
samlega verðið sem fæst fyrir hvert
verk í uppboðsskrána. Eftir því sem
líður á uppboðið hækkar verðið. Boð
in hlaupa ekki lengur á þúsundum
króna heldur tugum og hundruðum
þúsunda. Met eru slegin í sölu á ljós
myndaverki eftir Ólaf Magnússon
sem fer á 200 þúsund krónur og
abstrakt verki eftir Valtý Pétursson
sem fer á yfir 700 þúsund krónur –
en eflaust spilar inn í endurnýjaðan
áhuga á verkum hans nýleg yfirlits
sýning í Listasafni Íslands.
Dýrustu verkin á uppboðinu
fara á rúmlega eina milljón króna.
Flest verkin fara þó á nokkru lægra
verði en verðmatið í skránni segir til
um, einhver fara á hærra verði og í
örfá þeirra býður enginn lágmarks
verðið – þau eru send aftur baksviðs
óseld. Þetta á meðal annars við um
verk Jónsa í Sigur Rós og það verk
sem metið er dýrast í skránni: olíu
málverkið Börn að leik eftir Þorvald
Skúlason (1906–1984), en verðmatið
er 3,5 til 4 milljónir króna. Rétt um
klukkan 20.00 lýkur svo uppboðinu
og hæstbjóðendur flykkjast að mót
tökuborðinu til að klára viðskiptin.
„Hvað varðar veltu þá var þetta
aðeins miðlungsgott uppboð,“ segir
Jóhann Ágúst blaðamanni síðar, en
verkin seldust á um 18,5 milljónir við
hamarshögg. „Þetta helgast kannski
fyrst og fremst af því að við vorum
ekki með mjög mikið af dýrum
verkum. Í svona ártíð eins og er núna
er erfiðara að fá inn góð, það er að
segja dýr verk. Það er enginn sér
stakur söluþrýstingur hjá fólki, það
er því framboðsskortur. Það kom
mér hins vegar á óvart að nokkur af
dýrustu verkunum seldust ekki – til
dæmis verkið eftir Þorvald Skúlason.
Síðast þegar við fengum sambærilegt
verk eftir hann seldist það á sex millj
ónir. Og dýrustu verkin sem seldust
þó, seldust á lágu verði. Frá Hreða
vatni eftir Ásgrím Jónsson var dýrasta
verkið, en það fór á 1,2 milljónir sem
er talsvert undir því verði sem ég
teldi eðlilegt fyrir svona verk. Sá sem
keypti það gerði mjög góð kaup.“ n
Fjölmenni Nokkrir tugir listunnenda mættu á síðusta listmunauppboð vetrarins í Gallerí Fold. Mynd Sigtryggur Ari
Frá Hreðavatni eftir Ásgrím Jónsson
Mynd JoHAnn AguSt HAnSen
tekið við símatilboðum Það er hamagangur baksviðs þar sem starfsmenn Gallerís Foldar taka við símtölum frá fólki sem vill bjóða í verk.
Mynd Sigtryggur Ari
Síðustu fyrirframboðin Jóhann Ágúst tekur við síðustu fyrirframboðunum sem bárust í
verkin í gegnum heimasíðu Gallerís Foldar fimmtán mínútum áður en uppboðið hefst.
Hringur, Kjarval, eiríkur Listaverk eftir Hring Jóhannesson, Jóhannes Kjarval og Eirík
Smith bíða þess að vera boðin upp. Mynd Sigtryggur Ari