Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Side 70
46 fólk Helgarblað 26. maí 2017
Mér fannst ég aldrei vera
sérstaklega góður leikari
n Roger Moore er látinn n Stormasamt einkalíf n Hafði andstyggð á byssum
M
ér fannst ég aldrei
vera sérstaklega góður
leikari,“ sagði leikarinn
Roger Moore eitt sinn.
Hann sagði líka að hann
hefði alltaf fengið vonda dóma. Það
var enginn biturleiki í þessum orð-
um hans, hann gerði sér mæta vel
grein fyrir takmörkunum sínum, en
vissi örugglega einnig af styrkleik-
unum. Moore var ekki í hópi sterk-
ustu dramaleikara heims, en hann
hafði mikla persónutöfra og húmor
sem heillaði heimsbyggðina. „Ef
maður hefur ekki húmor þá getur
maður neglt naglann í líkkistuna,“
sagði hann.
Hafði andstyggð á byssum
Moore sem lést nýverið, 89 ára
gamall úr krabbameini, fæddist
árið 1927, sonur lögregluþjóns og
húsmóður. Leikarinn sagði: „Faðir
minn hafði trú á því að maður ætti
að vera harður af sér, heiðarlegur,
kurteis og stundvís. Allt eru þetta
mikilvægir eiginleikar.“ Seint á
lífsleiðinni sagði Moore: „Ég hef
ekki tíma til að sjá eftir einhverju en
ég óska þess samt stundum að ég
hefði séð meira af foreldrum mínum
meðan þau voru á lífi og vildi hafa
gert meira fyrir þau.“
Moore hóf ferilinn sem fyrirsæta
en fékk síðan samning hjá MGM-
kvikmyndaverinu en vakti enga sér-
staka athygli á hvíta tjaldinu. Hann
sneri sér síðan að sjónvarpsleik með
misgóðum árangri. Árið 1962 varð
hann heimsfrægur fyrir leik sinn
í sjónvarpsþáttunum The Saint,
Dýrlingnum, en þeir voru sýndir
víða um heim, þar á meðal hér á
landi. Þættirnir urðu alls 118 og eftir
það tók við leikur í öðrum sjónvarps-
þáttum, The Persuaders með Tony
Curtis. Moore og Curtis samdi ekki
ýkja vel, en Curtis vildi ekki eyða of
miklum tíma við kvikmyndatökur
meðan Moore var ætíð tilbúinn að
vinna utan hefðbundins vinnutíma.
Allir ættu að þekkja Moore sem
James Bond, en hann lék njósnar-
ann í sjö myndum. Hann var allt
öðruvísi Bond en Sean Connery,
ekki nándar nærri jafn mikill harð-
haus, heldur glaumgosi með húmor.
Árið 2004 var Moore kosinn besti
James Bond í atkvæðagreiðslu hjá
Óskarsverðlaunanefndinni og í
annarri kosningu, árið 2008, fékk
hann 62 prósent atkvæða. Þeir Sean
Connery, sem margir telja hinn eina
sanna Bond, voru góðir vinir. Moore
sagði eitt sinn að hann sæi ekki eftir
að hafa tekið að sé hlutverk James
Bond en bætti við: „Mér finnst leitt
að hetjur eru yfirleitt sýndar með
byssur í hendi og satt að segja hef ég
alltaf haft andstyggð á byssum og því
sem þær standa fyrir.“
Stormasamt einkalíf
Einkalíf leikarans var á köflum
með ósköpum. Sjálfur sagði hann:
„Ég hef verið giftur fjórum sinnum
og orðið valdur að miklum sárs-
auka og uppnámi.“ Átján ára gamall
kvæntist hann leikkonunni Doorn
Van Steyn. Sex árum síðar varð
Moore ástfanginn af söngkonunni
Dorothy Squires, sem var þrettán
árum eldri en hann. Hann skildi við
konu sína og gekk að eiga Squires.
Squires missti nokkrum sinnum
fóstur og Moore sagði seinna að
hjónaband þeirra hefði orðið annað
og betra ef þau hefðu eignast barn.
Moore átti í ástarsambandi við
ítölsku leikkonuna Luisu Mattioli en
Squires harðneitaði að veita honum
skilnað og braut rúður á heimili elsk-
endanna. Það var ekki fyrr en Moore
hafði búið með Mattioli í sjö ár að
Squires veitti honum loks skilnað.
Mörgum árum seinna þegar Squires
var þjáð af krabbameini borgaði
Moore sjúkrahúsreikninga hennar
og hélt því áfram fram að láti hennar
rúmum tveimur árum síðar.
Ástríkt fjórða hjónaband
Moore kvæntist Mattioli árið 1969
og þau eignuðust þrjú börn. Árið
1993 greindist Moore með krabba-
mein í blöðruhálskirtli. Hann
sagði að eftir þá greiningu hefði
hann farið að endurskoða líf sitt og
hjónaband. Moore varð ástfanginn
af vinkonu eiginkonu sinnar,
Kristinu Tholstrup, og hjónin
skildu. Mattioli skrifaði síðar
bók um samband sitt við Moore,
Nothing Lasts Forever, þar sem
hún lýsti því hvernig henni
fannst Tholstrup hafa svikið sig
og sagði Moore hafa kastað sér
burt,eins og ónýtum hlut. Hún
lýsti Tholstrup sem konu sem
hefði átt tvo eiginmenn og farið
í þrjár andlitslyftingar. Moore
neitaði að ræða skilnaðinn og
sagðist ekki vilja særa börn sín
með því að skattyrðast við fyrr-
verandi eiginkonu sína. Börn
þeirra hjóna töluðu ekki við
föður sinn í nokkurn tíma eftir
skilnaðinn, en jöfnuðu sig svo
og þar féll allt í ljúfa löð.
Leikarinn kvæntist Tholstrup
árið 2002. Hann lýsti henni sem
rólegri og ástríkri konu og sagð-
ist leggja allt sitt traust á hana.
Ólíkt fyrri hjónaböndum hans
einkenndist það síðasta ekki af
rifrildum eða tilfinningalegum upp-
hlaupum.
Moore vann ötullega fyrir Barna-
hjálp Sameinuðu þjóðanna og sagði
að vinnan þar hefði gert sig full-
orðinn. Hann sagði: „ Við höfum þá
skyldu í lífinu að gera það sem við
getum til að hjálpa þeim sem eru
ekki eins lánsamir og við.“ n
„Ég hef verið giftur
fjórum sinnum og
orðið valdur að miklum
sársauka og uppnámi.
Roger
Moore Þessi
ástsæli leikari
er fallinn frá.
Roger Moore og
Dorothy Squires
Hjónaband þeirra
var stormasamt.
Leikarinn við kvikmyndatöku Heims-
byggðin heillaðist af honum.
Með fjórðu
eiginkonunni,
Kristinu
Tholstrup
Einkalífið var
sviptingasamt
en síðasta hjóna-
bandið var afar
hamingjuríkt.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is