Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Síða 36
Kynnir
á Secret
SolStice
Eigin
hönnun Jóel
Bjarni situr fyrir
í eigin hönnun,
móðir hans er
myndasmiðurinn.
Jóel Bjarni, þrettán ára fatahönnuður
Þrátt fyrir að hönnuðurinn Jóel Bjarni sé ungur að árum, aðeins
þrettán ára, hefur fatalína hans, Coldest, sem byrjaði með der-
húfum selst eins og heitar lummur, bæði á Íslandi og erlendis.
Jóel Bjarni, sem búsettur er í Suður-London, verður með
fatnað sinn til kynningar og sölu á Secret Solstice.
Ég byrjaði að hanna föt af því að ég hafði verið að leita að töff derhúfu en fann engar nema
með barnalegum myndum eins og
Spiderman og slíku svo ég ákvað að
hanna mína eigin. Viðtökur voru
frábærar svo ég ákvað að bæta við
fötum í merkið. Ég hef mikinn áhuga
á tísku og tónlist,“ segir Jóel Bjarni, en
hann á ekki langt að sækja áhugann
og hæfileikana, en móðir hans, Marlín
Birna, hannar skart undir eigin nafni.
Fatalínan, sem fékk nafnið Coldest, sem
er götuslangur og þýðir „sá allra besti“,
er til sölu á heimasíðu hans coldest
clothing.com. Fatalínan byrjaði með
derhúfum, en í dag er hægt að kaupa
peysur, buxur, boli, húfur, bakpoka og
sundtöskur og hentar fatalínan báðum
kynjum.
Frægum líkar Coldest
Í fyrrasumar kom Jóel Bjarni ásamt
móður sinni og systur, RósuFlorence,
í sumarfrí til Íslands og fóru þau meðal
annars á Secret Solstice. Derhúfurnar
hans vöktu þar mikla athygli og
margir spurðust fyrir um hvar
hægt væri að kaupa þær. Þar voru
þó nokkrir frægir sem nældu sér
í húfu, til dæmis Gísli Pálmi sem í
dag klæðist nær eingöngu Coldest,
Lady Leshurr, Tini í Quarashi, DJ
Yamaho, Section Boys og fleiri.
Síðan þá hafa fleiri
frægir sést í Coldest: Giggs,
DJ Strike úr De La Soul,
Aron Can, Helgi í Úlfur Úlfur, Orri í
Sigur Rós, DJ Agzilla, Emmsjé Gauti,
YouTuberinn TBJZL og fleiri.
Í ár mætir Jóel Bjarni því aftur á
Secret Solstice og að þessu sinni með
eigin sölubás. „Fyrir ári var Coldest
aðeins með svartar og bleikar derhúfur
en núna ári seinna eru tæplega 40
vörutegundir til í vörumerkinu,“ segir
Jóel Bjarni.
Coldest merkið fæst á vefsíðunni
www.coldestclothing.com. Coldest er
líka á samfélagsmiðlunum: Instagram:
coldestofficial, Facebook: coldestofficial
og Youtube: JBMHD.
SEcrEt SolSticE
Jóel Bjarni mætir á
tónlistarhátíðina.
SyStirin mEð Systir Jó-
els Bjarna, Rósa-Florence,
situr oft fyrir.
ingibjörg
AnnA Coldest
er fyrir alla.
töff Þægileg
og töff föt.
SvErrir
frEyr
Ferskur í
Coldest