Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Síða 2
2 Helgarblað 4. ágúst 2017fréttir Spurning vikunnar Ég verð heima. Heima er best. Ég hef einu sinni farið úr bænum um verslunarmannahelgi. Það var árið 1975 og ég fór inn í Vatnsfjörð. Anna Júlíusdóttir Ég fer til Danmerkur, verð í Kaupmannahöfn í fjóra daga. Sigdís Lind Sigurðardóttir Ég hef venjulega farið á Þjóðhátíð og það er glatað að sleppa henni, en núna verð ég að vinna í bænum. Ætli ég kíki ekki á Innipúkann. Henrik Bjarnason Ég er að fara til Eyja. Ég er úr Eyjum en þetta er í fyrsta sinn sem ég er þar á Þjóðhátíð. Ágúst Óli Sigurðsson Hvað ætlarðu að gera um verslunarmannahelgina? S tefán Bachmann Karlsson og Hjördís Andrésdóttir gagn- rýna okur í veitingageiran- um. Fyrir rúmum tveimur árum stofnuðu þau veitingastað- inn Bike Cave í Skerjafirði og ný- lega opnuðu þau annan stað með sama nafni í Hafnarfirði. Þau segja sanngjarnt verð lykilinn að árangri þeirra. „Við viljum fá viðskipta- vini sem koma aftur, ekki einnota kúnna. Verðlagið hjá okkur er sam- kvæmt því. Það er hugsunin og hefur alltaf verið,“ segja þau. „Við reynum af öllum mætti að viðhalda þessu skaplega verði án þessa að það bitni á gæðunum,“ segir Hjördís. „Við erum með sér- bakað brauð, sósur sem við búum til sjálf, hreint kjöt og alvöru ost og alltaf nýtt skorið grænmeti. Það verður ekki hvikað frá þessu. Við veljum það sem við teljum vera best. Svo fikruðum við okkur fljót- lega út í veganmat sem nýtur mik- illa vinsælda.“ Nýlega fékk Bike Cave útnefn- ingu hjá Grapevine annað árið í röð sem besta ódýra máltíðin; „best cheap meal“. Íslendingar eru í meirihluta viðskiptavina en hjónin segja erlenda ferðamenn sækja staðina í auknum mæli, einmitt út af verðlaginu. „Ferðamenn hafa orð á því við okkur að það sé dýrt að borða á Íslandi og eru því verulega ánægð- ir með verðlagningu hjá okkur.“ Ofbýður ruglið Stefán og Hjördís eru áhugafólk um mat og fara reglulega út að borða, enda þurfa þau líka starfs síns vegna að fylgjast með straumum og stefnum í veitingahúsageiran- um. „Það er regla að fara einu sinni í viku út að borða og það er stöðugt að bætast við veitingahúsaflóruna svo það er úr nægu að velja,“ segir Hjördís. „Þeir eru samt teljandi á fingrum annarrar handar þeir stað- ir sem við förum á aftur því okkur ofbýður ruglið sem er í gangi sums staðar. Við sjáum svo greinilega að það er verið að okra á viðskiptavin- inum. Það er ótrúlegt að sjá þessa dýru staði fulla alla daga. Einhvern tímann hlýtur það að enda. Ég sé ekki fyrir mér að þetta geti gengið svona. Það getur til dæmis ekki talist í lagi að stakur hamborgari kosti 2.700–2.900 krónur.“ Hjördís segir sögu af viðskipta- vini: „Það kom til okkar kona með tvö börn og hún felldi bókstaflega tár yfir því að geta farið með börn- in sín út að borða. Annað barnið sagði: Mamma getum við komið hingað á hverjum degi? Það er til fólk sem getur ekki leyft sér að borða á veitingahúsum vegna þess að maturinn er svo dýr að það á einfaldlega ekki fyrir honum. Þessi kona var himinlifandi að finna stað eins og þennan.“ Nálægð við viðskiptavini Hjónin segja að í veitingageiranum viti þau af fólki sem sé sammála þeim um hátt verðlag á íslenskum veitingastöðum. Þau nefna sér- staklega Þórarin Ævarsson, fram- kvæmdastjóra IKEA sem rekur veitingastað sem selur góðan mat á sérlega sanngjörnu verði. „ Þórarinn í IKEA er snillingur og stendur fyrir sínu og græðir á tá og fingri á lægsta verði á landinu. Hann tekur þetta á magninu og það er það sem við sögðum alltaf að við vildum gera því með tíð og tíma myndi viðskiptavinunum fjölga.“ Það er nóg að gera hjá hjón- unum við að reka veitingahúsin tvö, en þau fá ríkulega aðstoð frá fjölskyldumeðlimum, börnum og tengdabörnum. „Þetta er lítið fjölskyldufyrirtæki, við erum hér öllum stundum og höfum skap- að mikla nálægð við viðskiptavini okkar,“ segja þau. „Við leggjum áherslu á góðan mat og sanngjarnt verð. Við erum ekki að reyna að finna upp hjólið en lítum á okkur sem hugsjónafólk í þessum mála- flokki.“ n Gagnrýna okur í veitingageiranum Stefán og Hjördís segja sanngjarnt verð lykilinn að árangri þeirra „Okkur ofbýður ruglið sem er í gangi sums staðar Aðstoð frá fjölskyldumeðlimum „Við erum hér öllum stundum.“ Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is „Það kom til okkar kona með tvö börn og hún felldi bókstaflega tár yfir því að geta farið með börnin sín út að borða. M y N d ir S ig tr y g g u r A r i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.