Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 6
6 Helgarblað 4. ágúst 2017fréttir
lífsreynslu og þeir hafi séð mörg
mjög góð úrræði sem voru í boði
fyrir krakkana. Lögreglumenn
smíðuðu racer-hjól með þeim,
spiluðu körfubolta, sömdu tón-
list og margt fleira.
Eftir að Björn kom heim fór
hann að hugsa hvað hann gæti
gert til að aðlaga þetta íslensk-
um veruleika. Þá ákvað hann að
kom á fót hinu svokallaða hópa-
starfi. Lykillinn að því starfi var
það sem Davíð kallar „learning
by doing“. Hann fór með unga
drengi á vettvang þar sem þeir
gátu fundið fyrir afleiðingum
gjörða sinna á eigin skinni.
Davíð fékk björgunarsveitir
til samstarfs. „Þetta opnaði fyrir
þeim nýjan veruleika. Að kynnast
öðruvísi spennu. Lögbrot eru oft
á tíðum framin vegna spennunn-
ar til að byrja með og eiturlyfja-
neysla líka.“ Drengirnir voru með-
al annars látnir síga niður kletta.
Þar lærðu þeir að treysta á bún-
aðinn og sjálfa sig. „Þeir stóðu á
brúninni, nötrandi á beinunum
við að fara niður örfáa metra. Þeir
treysta engum. En sigurinn við
það að komast niður … þetta var
mögulega stærsti sigur þeirra í líf-
inu. Það var stórkostlegt að horfa
á þetta.“
Hann fór með þá á gúmmíbát
út á sjó við Seltjarnarnes. Þar voru
þeir settir út í blautbúning og
skildir eftir í svolitla stund, aleinir
í öldugangi. Þetta vakti þá til um-
hugsunar um hvað það er að vera
einsamall og hafa litla stjórn á að-
stæðunum. Þeir komu hræddir
upp í bátinn aftur en þetta fékk þá
til að hugsa um þær ógöngur sem
afbrot geta leitt mann út í.
Margt fleira í þessum dúr var
gert í hópstarfinu. Þeir fóru á
sjúkrahús til að sjá afleiðingar
ofbeldis og vímuefnaneyslu. Í
reykköfun hjá slökkviliðinu til að
læra að treysta félögum sínum.
Til fyrrverandi fanga sem sagði
þeim frá tilfinningunum sem
fylgja því að sitja á bak við lás og
slá. Til tryggingafélaga til að læra
um bótaskyldu. „Ég fékk þá alltaf
til að tengja.“
Þeim mistekst í skólakerfinu
Davíð segir hópstarfið hafa fjall-
að um það að „vera heyrður og
séður á jafningjagrundvelli“ og
hann segir árangurinn af starf-
inu vera ótvíræðan. „Ég er enn
þá að heyra í þessum drengjum,
stundum vikulega. Þeir biðja
um leiðbeiningar í lífinu eða
koma í kaffi til að spjalla um
daginn og veginn.“ Hann segir
að drengirnir hafi lært að treysta
honum og hafi sagt honum
ýmsa hluti úr lífi sínu sem þeir
hefðu aldrei sagt neinum yfir
skrifborðið á einhverjum fundi.
„Þessir strákar sem koma til
okkar eru langflestir með bók-
ina sem sinn stærsta óvin í líf-
inu. Þeim mistekst í skólakerf-
inu. Þeir eru með lágt sjálfsmat
og þeir hífa það upp með afbrot-
um og neyslu. Þar fá þeir viður-
kenningu með sínum líkum.“
Hann segir flesta þessa stráka
hafa mikla á hæfileika á vissum
sviðum en hraði samfélagsins
og kröfur, til dæmis um próf-
skírteini og tölvukunnáttu,
sé svo mikill að þeir finni sér
ekki farveg. „Ég fór einu sinni
með dreng á slökkviliðsstöð-
ina og hann stóð sig með prýði
í öllu sem við gerðum þar. Allt
í einu opnuðust nýjar dyr fyrir
honum.“ En þegar hann komst
að því hvað hann þyrfti að gera
til að verða slökkviliðsmaður,
sérstaklega varðandi bóknám,
„þá lokuðust dyrnar aftur.“
Davíð segir ekki eingöngu
hægt að kenna kerfinu um
hvernig komið er fyrir þessum
strákum, málið sé mun flóknara
en það. „En við gætum staðið
okkur svo miklu betur. Af hverju
byrjum við ekki fyrr í stað þess
að byggja nýtt fangelsi á Hólms-
heiði?“
Hann veltir því einnig fyrir
sér hvort starf, sambærilegt
hópstarfinu, ætti ekki heima
í skilorðseftirliti. Samkvæmt
hegningarlögum sé mögulegt
að dæma menn til slíkrar með-
ferðar en það sé engin hefð fyrir
því hér á landi.
Frumkvæði kæft innan
kerfisins
Davíð segist hafa fengið tölu-
verða andspyrnu frá barna-
verndinni vegna hópstarfsins og
það sé erfitt að hafa frumkvæði í
þessu kerfi. „Það er fjöldi hæfs
og mjög góðs fólks að vinna í
þessu kerfi en það þorir engu
vegna ótta um að verða rekið.
Fólkið sem stjórnar þessu kerfi
hefur ekki talað við ungling í 10–
15 ár. Það er í engum tengslum
við þennan veruleika.“
Þann 14. nóvember var Davíð
boðaður á fund hjá Barnastofu
þar hann var sakaður um að
hafa valdið hagsmunaárekstri
í sínum störfum. Davíð hafði
spurt starfsmann á neyðar-
vistun barnaverndar Reykja-
víkur hvort ekki væri þörf á hóp-
starfi fyrir stúlkur, sambærilegu
því sem hann stýrði fyrir drengi.
„Henni leist vel á þetta. Ég
hafði samband við Vilborgu
Gissurardóttur pólfara til þess
að fá hana með okkur í lið. Það
er fullt af flottum fyrirmyndum
þarna úti fyrir stúlkur í vanda.
Þetta fór svo mikið fyrir brjóstið
á fólkinu í barnavernd Reykja-
víkur að þetta var tilkynnt til
Barnastofu. Ég var tekinn á
teppið og fékk áminningu.“
„Af hverju var hópstarf með
stelpum svona hættulegt? Þetta
eru stelpur sem hafa sjálfs-
myndina í klessu, þær strjúka af
heimilum sínum og hvar finnast
þær svo? Í einhverju greni með
fullorðnum síglæpamönnum.
Af hverju mátti ekki reyna eitt-
hvað annað?“ spyr Davíð.
Davíð segist ekki sjá hags-
munaáreksturinn í þessu
„fagleikriti fáránleikans“. „Þau
sögðu að ég væri að notfæra
mér hópstarfið í hagnaðar-
skyni.“ Hann fékk lítið borgað
fyrir starfið, 222 þúsund krónur
fyrir skatt fyrir mikla vinnu sem
fór aðallega fram á kvöldin.
Starfið hafi fyrst og fremst verið
unnið af hugsjón.
Hann segist hafa velt því fyrir
sér að leita til umboðsmanns
Alþingis til að fá áminningunni
hnekkt en hann hefur einfald-
lega ekki trú á kerfinu og vill
ekki eyða meiri tíma og orku í
þetta. Hann ákvað því í febrúar
á þessu ári að segja upp störfum
hjá Stuðlum og snúa sér alfarið
að öðru, það væri ekki hægt
að starfa áfram undir þessum
þrýstingi.
„Helsti dragbítur kerfisins er
kerfið sjálft.“ Í dag er enginn að
sinna hópstarfinu sem Davíð
finnst mjög miður. Hann hefur
þó ekki alfarið sagt skilið við það
að vinna fyrir börn í vanda því
hann situr nú við skriftir að bók
sem mun bera titilinn „ Bókin
er óvinur minn.“ Hún fjallar
um olnbogabarn í skólakerf-
inu sem hífir upp sjálfsmyndina
með afbrotum og neyslu, byggð
á reynslu hans úr starfinu en
skrifuð í skáldsagnastíl. n
„Hvar finnast þær
svo? Í einhverju
greni með fullorðnum
síglæpamönnum.
Sá árangur af hópastarfinu „Það var stórkostlegt að horfa á þetta.“ Mynd Brynja
Glæsibæ • www.sportlif.is
PróteinPönnukökur
Próteinís Próteinbúðingur