Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Síða 18
18 sport Helgarblað 4. ágúst 2017
F
yrstu vikurnar hjá Reading
hafa verið flottar, ég er að
venjast nýju liði, nýjum
leikstíl, nýjum þjálfara og
nýjum liðsfélögum. Það hefur
tekið merkilega stuttan tíma fyrir
mig að koma mér inn í hlutina,
maður er bara spenntur fyrir fram-
haldinu,“ sagði landsliðsframherj-
inn Jón Daði Böðvarsson sem
hefur um helgina leik með Read-
ing í næstefstu deild Englands.
Championship-deildin hefst
um helgina en Jón Daði og félagar
heimsækja QPR í Lundúnum.
Framherjinn gekk í raðir Reading
í sumar frá Wolves þar sem hann
stoppaði aðeins í eitt ár. Árið þar
reyndist Jóni erfitt og vildi félagið
losa sig við hann, það var þó ekki
slæmt fyrir þennan öfluga Sel-
fyssing því Reading er frábær
klúbbur sem var með talsvert öfl-
ugra lið en Wolves á síðustu leik-
tíð.
„Fyrstu kynni af klúbbnum eru
góð, þetta er stór klúbbur og síð-
asta tímabil hjá þeim var virkilega
gott. Liðið var grátlega nálægt því
að fara upp í úrvalsdeildina og hér
er mikill metnaður, væntingarnar
eru líka miklar fyrir næsta tímabil.
Mér fannst þetta mjög spennandi,
leikstíllinn er heillandi og þjálf-
arinn hefur reynslu af þessu.
Heildarmyndin sem er hjá Read-
ing er flott.“
Hissa þegar Wolves vildi selja hann
Jón Daði mætti til æfinga hjá
Wolves í upphafi sumars en þá
höfðu orðið miklar breytingar hjá
klúbbnum, nýr þjálfari og fjöldi
nýrra leikmanna. Jón fékk þau
skilaboð að hann mætti fara frá fé-
laginu, það kom honum á óvart.
„Það kom mér virkilega á óvart,
þetta kom mér í opna skjöldu og
var smá sjokk ef ég á að vera al-
veg heiðarlegur. Ef maður horfir til
baka þá eru rosalegar breytingar
hjá Wolves, það eru 8–9 nýir leik-
menn, nýtt þjálfarateymi og í raun
allt nýtt. Breytingarnar eru svo
miklar og ég var ekki eini leik-
maðurinn sem fékk þessi skila-
boð og fór, svona er fótboltinn og
þetta er ekkert persónulegt. Mað-
ur má ekki taka þessu persónu-
lega, áhuginn frá Reading kom svo
strax fram og ég var afar spenntur
fyrir því og það gekk fljótt í gegn.“
Fyrsta árið getur verið erfitt
Jón Daði kom til Englands frá
Þýskalandi og það er þekkt stærð
að það getur tekið tíma að venj-
ast enskum fótbolta, mikil harka
og í næstefstu deild Englands eru
allir leikir erfiðir. „Þetta voru mikl-
ar breytingar fyrir mig, deildin er
öðruvísi en ég hafði vanist. Það er
mikil keyrsla og margir leikir, hver
einasti leikur er erfiður. Það var
flott að fá þetta fyrsta ár og læra
af því, ég var mjög spenntur fyrir
öðru tímabili með Wolves. Það var
ekki í stöðunni og þá kom Reading
inn í myndina og er markmiðið að
komast fljótt inn í hlutina hérna
og læra inn á þeirra leikstíl. Það er
mikil harka í þessari deild, þetta er
enskur fótbolti alveg 100 prósent.
Mjög mikið af erfiðum leikjum og
mismunandi lið, varnarlega eru
liðin sterk og það er ekki mikið um
færi. Maður lærir af þessu, mað-
ur hefur meiri reynslu. Núna setur
maður sér markmið fyrir tímabilið
því maður veit út í hvað er verið
að fara. Það var aldrei spurning
að fara í neitt annað félag þegar
Reading kom upp, Ipswich hafði
áhuga en Reading var spennandi
eftir árangurinn í fyrra. Hér er
hugarfar sigurvegarans og markið
er sett hátt, sem leikmaður þá viltu
svona umhverfi og maður lærir af
því. Um leið og Reading kom upp
þá var hugsunin bara „Hvar á ég
að skrifa undir?““
Stjóri sem veit hvað
þarf til að ná árangri
Knattspyrnustjóri Reading er Hol-
lendingurinn Jaap Stam. Sá var
á sínum tíma einn besti varnar-
maður í heimi fótboltans þegar
hann lék með Manchester United
og hann veit hvað þarf til að ná ár-
angri. „Stam er virkilega flottur og
hann er með flotta menn með sér,
tveir aðstoðarþjálfarar eru með
honum og þeir eru rosalega öflugir
í að reyna bæta þig sem leikmann.
Það er ekki oft þannig í fótboltan-
um í dag að þjálfarar ætli sér að
bæta hvern einast leikmann, það
eru allt of fáir þannig í dag. Þeir
hafa í raun ekki tíma til að hjálpa
þér því það snýst allt um úrslit og
þjálfararnir hugsa um sitt starf.
Þeir eru virkilega metnaðarfullir
í að bæta einstaklinga sem bæta
þá liðið, ég finn það strax hérna
í byrjun að maður er að læra
heilmargt. Það finnst mér mjög já-
kvætt. Stöðugleiki virðist einkenna
Reading. Þeir trúa á verkefnið sem
þeir standa frammi fyrir. Hér vita
menn að það geta komið slæmar
tímar í bland við þá góðu, á síð-
ustu leiktíð byrjaði liðið illa en
menn gáfust ekki upp og hugsað
er til lengri tíma. Síðan blómstraði
liðið og var nálægt því að fara upp,
þetta er klúbbur sem gefur þjálfur-
um og leikmönnum tíma. Það er
mjög jákvætt, en sjaldgæft í dag.
Markmiðið á þessu ári er að vera á
meðal þeirra klúbba sem geta far-
ið upp, menn setja stefnuna þang-
að. Liðið ætlar sér að komast upp
en það vita allir sem horfa á þessa
deild að það er virkilega erfitt.
Deildin er svakalega erfið og er
það ótrúlegur fjöldi af liðum sem
telur sig geta farið upp og horf-
ir til þess að ná árangri. Það segj-
ast mörg lið ætla upp en reynslan
sannar að það er ekkert gefins í
Championship-deildinni.“
Pressa að vera Íslendingur þarna
Reading hefur mikla og góða reynslu
af Íslendingum, Ívar Ingimarsson
og Brynjar Björn Gunnarsson voru
lykilmenn í Read ing þegar liðinu
gekk hvað best og áttu með félaginu
góð ár í ensku úrvalsdeildinni. Gylfi
Þór Sigurðsson var svo stjarna hjá
félaginu í næstefstu deild og hefur
Reading grætt háar fjárhæðir á
Gylfa, félagið seldi hann fyrst til
Þýskalands og síðan hefur hann far-
ið á milli liða. „Það er rætt við mann
um Íslendingana og hversu vel þeir
hafa staðið sig hérna, maður finnur
fyrir smá pressu að vera Íslending-
ur. Þeir tala mikið um Brynjar og
Ívar Ingimarsson. Sérstaklega ræða
þeir svo um Gylfa sem átti góðan
tíma hérna, klúbburinn hefur góða
reynslu af Íslendingum og maður
finnur aukna hlýju frá fólkinu hérna
vegna þess,“ sagði þessi geðþekki
sóknarmaður að lokum í samtali
við DV. n
Fékk sjokk
þegar honum
var sagt að fara
n Jón Daði ætlar sér langt hjá Reading n Pressa að vera Íslendingur
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
„Ég finn
það strax
hérna í byrjun að
maður er að læra
heilmargt
EM hetja sem ætlar sér stóra hluti
Jón Daði var ein af hetjum Íslands á EM
í Frakklandi árið 2016 og ætlar að finna
sitt gamla form í Reading. Myndir EPA