Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Síða 24
24 fólk - viðtal Helgarblað 4. ágúst 2017
Þ
egar blaðamaður hitti Ingi
björgu Sólrúnu hafði hún
nýlega verið eina viku í
Varsjá en hún mun flytjast
búferlum þangað í lok mánað
arins. Þar mun hún búa næstu
þrjú árin ásamt eiginmanni sín
um, Hjörleifi Sveinbjörnssyni.
„Varsjá kemur mér skemmtilega
á óvart, er miklu fallegri, grænni
og vingjarnlegri en maður hefði
kannski ætlað,“ segir hún. „Pól
verjar eru fjölmenn þjóð sem á
óskaplega merkilega menningu
og hefur um aldir búið við þau
örlög að vera milli tveggja stór
velda sem hafa vaðið yfir hana
til skiptis. Pólverjar eiga sér ansi
merkilega og dramatíska sögu.
Mér hefur stundum fundist að við
Íslendingar séum með ákveðna
fordóma gagnvart Póllandi og
Pólverjum sem er mjög sérstakt.
Það er fráleitt að setja sig á háan
hest gagnvart þeim.“
Í vikuferð sinni til Varsjár kynnti
Ingibjörg Sólrún sér stofnunina
sem hún mun nú veita forstöðu.
„Mér finnst gríðarlega áhuga
vert að kynnast þessari stofnun,
sem ég þekkti áður bara utan frá.
Þarna starfa um 180 einstaklingar
frá 40 þjóðlöndum með mismun
andi bakgrunn. Þetta er fagfólk
sem virðist afar heilt í því sem
það er að gera og hefur brennandi
áhuga á að vinna að því að tryggja
borgaraleg réttindi fólks og gerir
sér grein fyrir mikilvægi lýð
ræðislegrar þróunar. Ég held að
það verði mjög gaman að vinna
með þessu fólki.“
Ekki hægt að refsa aðildarríkjum
Hún er spurð um hlutverk stofn
unarinnar. „Aðildarríki ÖSE eru
57 og ODIHR er sá hluti stofn
unarinnar sem fer með mál sem
snúa að þróun lýðræðislegra
stjórnarhátta og mannréttinda.
Við fylgjumst með því að ríkin
framfylgi þeim skuldbindingum
sem þau hafa undirgengist og
innleiði lýðræðislega stjórnar
hætti og virði mannréttindi. Ef
við sjáum að eitthvað er að gerast
sem er andstætt þessum grund
vallarprinsippum þá reynum við
eins og hægt er að leiða þróunina
til betri vegar.
Við reynum að vera í beinu
sambandi við stjórnvöldin og
bendum þeim á hvað rétt sé að
gera. Ef stjórnvöld virða skuld
bindingar sínar að vettugi og
sinna ekki ábendingum okkar þá
getum við hins vegar lítið gert.
Við höfum engin tæki eða tól til
að refsa aðildarríkjunum fyrir að
innleiða ekki skuldbindingar. En
með sambandi og samræðu og
góðri fagmennsku getum við haft
áhrif.“
Hversu langt getur stofnunin
gengið í afskiptum og athuga
semdum til dæmis varðandi
hatursorðræðu? Verður ekki að
virða tjáningarfrelsi fólks, jafnvel
þótt manni líki ekki það sem það
er að segja?
„Ein deild innan stofnunar
innar fjallar um það sem kallast
„tolerance and non discrim
ination“, þar er markmiðið að
stuðla að auknu umburðarlyndi
og að vinna gegn mismunun.
Hatursglæpur er það þegar lög
brot beinist að og byggist á for
dómum gagnvart tilteknum
hópum í samfélaginu. Þegar
hatursorðræða fær að grass
era lengi þá leiðir hún oft til
„Gef mig
alla í það
sem ég er
að gera“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er nýr framkvæmdastjóri Lýðræðis-
og mannréttindastofnunar ÖSE, ODIHR í Varsjá. Hlutverk ODIHR er, eins og
nafnið gefur til kynna, að standa vörð um lýðræði og mannréttindi. Ingibjörg
Sólrún segir hið nýja starf bæði spennandi og krefjandi. Áður starfaði hún
fyrir UN Women, var í Afganistan í tvö ár og þrjú ár í Tyrklandi. Kolbrún
Bergþórsdóttir hitti Ingibjörgu Sólrúnu og spurði um nýja starfið, lífið í fjarlægum
löndum, pólitíska ferilinn og fleira.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Vegna veik-
indanna
hafði ég hvorki
getu né löngun til
að verjast þegar
að mér var sótt, ég
átti einfaldlega
fullt í fangi með
sjálfa mig.