Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Side 32
 best í mat, bíó, bókum, tónlist og sjónvarpi Uppáhald vikunnar hjá Birtu Ozark: HversU langt ertU tilBúinn að ganga til að vernda fjölskyldUna? sjónvarpsserían Ozark er ein af þeim nýrri á netflix. tíu þátta sería með jason Bateman og lauru linney í aðalhlutverkum. Bateman leikur fjármálaráðgjafa sem flytur með konu sinni og tveimur börnum þeirra frá úthverfi Chicago á sumardvalarstað við Ozark- vatnasvæðið í Missouri. Ástæðan fyrir flutningnum kemur í ljós í þáttunum. Bateman, sem er meðal annars þekktur fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum arrested development, hefur verið frekar mistækur í hlutverkum sínum, en er stórgóður hér. Þegar þetta er skrifað eru þættirnir með 8,7 í einkunn á imdb.com. Ég mæli mjög með þessari seríu og frábært að sjá Bateman aftur í sjónvarpi. Ég mæli líka eindregið með því að ekki sé horft á stiklu þáttanna, þar sem hún gefur of mikið upp um efni þeirra, og byrja frekar bara að horfa. bókaskOt: Hraðlesin Hasarlesning Bandaríski metsölurithöfundurinn james Patterson er best þekktur fyrir bókaflokkana um lögreglumanninn alex Cross, Women's Murder Club og Maximum rise. Í dag er hann er orðinn meira vörumerki en rithöf- undur, enda eru bækur hans orðnar nærri 200 talsins síðan sú fyrsta kom út 1976. Margar bóka hans skrifar hann með einum meðhöfundi í hvert sinn. Í fyrra hóf hann útgáfu á Bókaskotum (Bookshots), bókum sem eru um 150 blaðsíður hver og kosta innan við fimm dollara (500 íslenskar krónur). Þegar þetta er skrifað eru komnar út 53 glæpaskot og 21 ástarskot og nýjar koma út í hverjum mánuði. Bókaskotin eru frábær til að grípa í þegar mann vantar eða langar að lesa eitthvað sem tekur stutt- an tíma og reynir ekki of mikið á. Þeim má hlaða niður í síma eða spjaldtölvur og á heimasíðunni: bookshots.com má eignast eina þeirra frítt. Bókin heitir the Witnesses og fjallar um sanderson-fjölskylduna sem þarf að fara í felur eftir að einn meðlimur hennar kemst að glæpsamlegu atferli nágrannanna. eða svo halda þau. Bókin er alveg í anda Patterson: hraðlesin, hraðsoðin glæpasaga sem maður les í einum rykk. spennandi og grípandi, en auðgleymanleg. sumac: girnilegt fyrir aUga Og Maga veitingastaðurinn sumac grill + drinks var nýlega opnaður við laugaveg. Maturinn er undir áhrifum frá líbanon og Marokkó, sem er matargerð sem ég hafði aldrei smakkað áður og því var upplagt að vinkvennahópurinn færi þangað. samtals komu um tíu réttir á borðið og allar smökkuðu. Það er skemmst frá því að segja að þetta var allt gott. Í uppáhaldi er grillaða flatbrauðið með hummus og möndlupap rikukremi og bakaða blómkálið með granatepli, möndlum og cumin-jógúrtsósu, sem við gjörsamlega slefuðum yfir, hver sagði að grænmeti þyrfti að vera óspennandi til matar? svo spillti ekki fyrir að maturinn er allur litríkur og fallegur fyrir augað sem og allir diskar og tilheyrandi líka. sem betur fer er staðurinn ekki í kringlunni, þá væri ég skuggalega oft þar í hádegismat. Dunkirk: fÁ Orð, Miklar tilfinningar nýjasta mynd Christophers nolan er veisla fyrir augu og eyru: vel leikin, vel tekin, vel skrifuð, tónlistin hreint frábær. en hún er ekki veisla fyrir hjarta og sál, en nauðsynleg til áhorfs engu að síður. Þrátt fyrir að ekki sé farið ofan í kjölinn á lífi helstu sögupersóna, sem flestar eru kornungir hermenn í stríði, fær maður engu að síður samúð með þeim, áhorfandinn er gjörsamlega með þeim á ströndinni í dunkirk, í sjónum í ermarsundi og í loftinu yfir. Og maður vonar að þeir komist allir heilir heim, þó að maður viti jafnframt að dánartala bæði hermanna og óbreyttra borgara hafi hlaupið á tugum milljóna í seinni heimsstyrjöldinni. dunkirk er mynd sem er skylda að sjá í bíó og seinni heimsstyrjöldin og afleiðingar hennar er saga sem má ekki gleymast. billbOarD: HUndrað vinsælUstU lögin topplisti bandaríska listans á 59 ára afmæli í dag og því hefur hann verið í spilun á spotify síðustu vikuna. Þó að topplög listans séu oftast eitt- hvað sem mað- ur hefur hlustað milljón sinnum á (despacito er í fyrsta sætinu) og jafnvel löngu kominn með leiða á, þá má oftast finna ný lög í neðstu sætum listans. eitthvað sem maður hefur ekki heyrt áður, bæði frá þekktum og óþekktum tónlistarmönnum. Það er alltaf gaman að finna nýja gullmola í allri tónlistarflórunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.