Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Qupperneq 32
best
í mat, bíó,
bókum,
tónlist og
sjónvarpi
Uppáhald vikunnar hjá Birtu
Ozark: HversU langt ertU
tilBúinn að ganga til að
vernda fjölskyldUna?
sjónvarpsserían Ozark er ein af þeim nýrri á netflix.
tíu þátta sería með jason Bateman og lauru linney
í aðalhlutverkum. Bateman leikur fjármálaráðgjafa
sem flytur með konu sinni og tveimur börnum þeirra
frá úthverfi Chicago á sumardvalarstað við Ozark-
vatnasvæðið í Missouri. Ástæðan fyrir flutningnum
kemur í ljós í þáttunum. Bateman, sem er meðal annars
þekktur fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum arrested
development, hefur verið frekar mistækur í hlutverkum
sínum, en er stórgóður hér. Þegar þetta er skrifað eru
þættirnir með 8,7 í einkunn á imdb.com. Ég mæli mjög
með þessari seríu og frábært að sjá Bateman aftur í
sjónvarpi. Ég mæli líka eindregið með því að ekki sé
horft á stiklu þáttanna, þar sem hún gefur of mikið upp
um efni þeirra, og byrja frekar bara að horfa.
bókaskOt: Hraðlesin
Hasarlesning
Bandaríski metsölurithöfundurinn james
Patterson er best þekktur fyrir bókaflokkana
um lögreglumanninn alex Cross, Women's
Murder Club og Maximum rise. Í dag er
hann er orðinn meira vörumerki en rithöf-
undur, enda eru bækur hans orðnar nærri
200 talsins síðan sú fyrsta kom út 1976.
Margar bóka hans skrifar hann með einum
meðhöfundi í hvert sinn. Í fyrra hóf hann útgáfu á Bókaskotum
(Bookshots), bókum sem eru um 150 blaðsíður hver og kosta
innan við fimm dollara (500 íslenskar krónur). Þegar þetta er
skrifað eru komnar út 53 glæpaskot og 21 ástarskot og nýjar
koma út í hverjum mánuði. Bókaskotin eru frábær til að grípa í
þegar mann vantar eða langar að lesa eitthvað sem tekur stutt-
an tíma og reynir ekki of mikið á. Þeim má hlaða niður í síma
eða spjaldtölvur og á heimasíðunni: bookshots.com má eignast
eina þeirra frítt. Bókin heitir the Witnesses og fjallar um
sanderson-fjölskylduna sem þarf að fara í felur eftir að einn
meðlimur hennar kemst að glæpsamlegu atferli nágrannanna.
eða svo halda þau. Bókin er alveg í anda Patterson: hraðlesin,
hraðsoðin glæpasaga sem maður les í einum rykk. spennandi
og grípandi, en auðgleymanleg.
sumac: girnilegt
fyrir aUga Og Maga
veitingastaðurinn sumac grill + drinks var
nýlega opnaður við laugaveg. Maturinn
er undir áhrifum frá líbanon og Marokkó,
sem er matargerð sem ég hafði aldrei
smakkað áður og því var upplagt að
vinkvennahópurinn færi þangað. samtals
komu um tíu réttir á borðið og allar
smökkuðu. Það er skemmst frá því að
segja að þetta var allt gott. Í uppáhaldi
er grillaða flatbrauðið með hummus
og möndlupap rikukremi og bakaða
blómkálið með granatepli, möndlum og
cumin-jógúrtsósu, sem við gjörsamlega
slefuðum yfir, hver sagði að grænmeti
þyrfti að vera óspennandi til matar? svo
spillti ekki fyrir að maturinn er allur litríkur
og fallegur fyrir augað sem og allir
diskar og tilheyrandi líka. sem betur fer
er staðurinn ekki í kringlunni, þá væri ég
skuggalega oft þar í hádegismat.
Dunkirk: fÁ Orð, Miklar tilfinningar
nýjasta mynd Christophers nolan er veisla fyrir augu og eyru: vel leikin, vel tekin, vel skrifuð, tónlistin hreint frábær. en hún er ekki veisla fyrir hjarta og sál, en nauðsynleg til
áhorfs engu að síður. Þrátt fyrir að ekki sé farið ofan í kjölinn á lífi helstu sögupersóna, sem flestar eru kornungir hermenn í stríði, fær maður engu að síður samúð með þeim,
áhorfandinn er gjörsamlega með þeim á ströndinni í dunkirk, í sjónum í ermarsundi og í loftinu yfir. Og maður vonar að þeir komist allir heilir heim, þó að maður viti jafnframt að
dánartala bæði hermanna og óbreyttra borgara hafi hlaupið á tugum milljóna í seinni heimsstyrjöldinni. dunkirk er mynd sem er skylda að sjá í bíó og seinni heimsstyrjöldin og
afleiðingar hennar er saga sem má ekki gleymast.
billbOarD:
HUndrað
vinsælUstU lögin
topplisti bandaríska listans á 59
ára afmæli í dag og því hefur hann
verið í spilun á
spotify síðustu
vikuna. Þó að
topplög listans
séu oftast eitt-
hvað sem mað-
ur hefur hlustað
milljón sinnum
á (despacito er
í fyrsta sætinu)
og jafnvel löngu
kominn með
leiða á, þá má oftast finna ný lög
í neðstu sætum listans. eitthvað
sem maður hefur ekki heyrt áður,
bæði frá þekktum og óþekktum
tónlistarmönnum. Það er alltaf
gaman að finna nýja gullmola í
allri tónlistarflórunni.