Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Side 40
Dirty
Dancing
30 ára í
lok ágúst
Ein ástsælasta mynd níunda áratugarins og síðar
Þann 21. ágúst næstkomandi verður kvikmyndin Dirty
Dancing 30 ára. Dirty Dancing, gerð eftir handriti
Eleanor Bergstein, í leikstjórn Emilie Ardolino, var gerð
fyrir lítið fé („low budget), gefin út af nýju stúdíói og
skartaði engum stjörnum, nema Orbach, sem leikur
föður Baby, en Orbach, sem lést 2004, var þekktur
sviðs- og kvikmyndaleikari. Patrick Swayze og Jennifer
Grey, sem þá voru frekar óþekkt, eru í aðalhlutverkum.
Dirty Dancing sló hins vegar rækilega í gegn og í lok árs 2009 var innkoma hennar
214 milljónir dollara á heimsvísu.
Yfir milljón eintök hafa verið seld á
VHS og DVD. Lögin úr myndinni
hafa komið út á tveimur geisladisk-
um, sem náð hafa margfaldri
platínusölu. Lagið (I´ve Had) The
Time of My Life vann bæði Óskars-
og Grammy-verðlaun sem besta
frumsamda lagið og Grammyverð-
laun fyrir besta dúettinn. Árið 2004
kom Dirty Dancing: Havana Nights
út, sem er eins konar forsaga
myndarinnar, en enginn sem kom
að Dirty Dancing er í þeirri mynd.
Samnefndur söngleikur hefur
verið settur upp í Ástralíu, Evrópu
og Bandaríkjunum við miklar
vinsældir. Nokkrum sinnum hafa
viðræður verið um að kvikmynda
framhaldsmynd, en það hefur ekki
orðið að veruleika. Sjónvarpsstöðin
ABC sýndi hins vegar sjónvarps-
mynd 24. maí síðastliðinn.
Hér eru 13 atriði sem þú vissir
kannski ekki um Dirty Dancing.
Það er því alveg tilvalið að setja
myndina í tækið, horfa á og rifja
myndina upp (sem aðdáendur
myndarinnar, sem horfa á hana
reglulega þurfa samt ekki að gera):
1 Í lokadanssenu myndarinnar
þegar Swayze hoppar niður af
sviðinu og byrjar að dansa, þá fer
hann niður á hnén, og þegar hann
lyftir öðru þeirra eru buxurnar
hans skítugar á hnénu. Í næsta skoti
eru þær hins vegar tandurhreinar
aftur!
2 Senan með laginu How Do You
Call Your Lover Boy? var ekki í
handritinu. Grey og Swayze voru
að hita upp og fíflast, en leikstjór-
anum fannst þetta svo skemmtilegt
að hann hafði það með í myndinni.
Þetta kallar maður að spinna.
3 Swayze og Grey höfðu unnið
saman áður og þeim kom ekki
alltaf saman. Swayze þurfti að
sannfæra Grey um að vera með því
hún hataði hann meðan þau unnu
að myndinni Red Dawn.
4 Val Kilmer var fyrst boðið
aðalhlutverkið, en hann afþakkaði.
Hann lék síðar meðal annars Jim
Morrison í The Doors (1991) og
Bruce Wayne/Batman í Batman
Forever (1995).
5 Swayze voru boðnar sex milljónir
dollara fyrir að endurtaka hlutverk
Johnny í framhaldsmynd. Hann var
ekki hrifinn af framhaldsmyndum
og hafnaði því boðinu.
6 Hlátur/kitlsenan var ekki leikin.
Grey var mjög kitlin og Swayze var
ofurpirraður.
7 Ástarsenan milli Johnny og
Baby var klippt úr myndinni, en er
með í 20 ára DVD-afmælisútgáfu
myndarinnar.
8 Swayze krafðist þess að leika í
eigin áhættuatriðum og í timbur-
senunni datt hann ítrekað. Hann
slasaði sig illa á hné og þurfti að
tappa vökva af því vegna bólgu.
9 Engar nærmyndatökur eru af
upplyftisenunni sem tekin var úti
í vatni. Ástæðan er sú að senan var
tekin í október og Grey og Swayze
voru blá af kulda.
10 Sarah Jessica Parker reyndi
við aðalhlutverkið og mætti í
áheyrnarprufur. Sem betur fer
fékk hún ekki hlutverkið, maður
sér enga aðra en Grey fyrir sér
í hlutverki Baby. Parker er best
þekkt fyrir hlutverk sitt sem Carrie
Bradshaw í sjónvarpsþáttunum Sex
and the City.
11 Swayze hataði línuna „No one
puts Baby in the corner“ og þurfti
að bíta á jaxlinn til að koma henni
frá sér.
12 Prufuáhorfendur hötuðu
myndina og upphaflega stóð
til að gefa hana eingöngu út á
myndbandi. Grey sagði á sínum
tíma: „Þegar við vorum að gera
myndina, þá leit út fyrir að hún
væri svo öðruvísi, að enginn myndi
koma og sjá hana og við værum
bara að pína okkur fyrir ekkert.“
13 Í lokasenu myndarinnar þegar
Baby er undirbúa sig, þá er hún
í saumlausum brjóstahaldara í
eitísstíl, en í lokadansinum þá er
hún í baklausum kjól og enginn
brjóstahaldari sjáanlegur.