Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Síða 42
1967 Kvenaðdáandi Monkees faldi sig
um borð í flugvél sveitarinnar, sem var á
leið frá Minneapolis til St. Louis, þar sem
sveitin var með tónleika. Faðir stúlkunnar
hótaði að kæra sveitina fyrir flutning á
einstaklingi undir lögaldri á milli fylkja.
1975 Robert
Plant, söngvari
Led Zeppelin,
og eiginkona
hans, slösuðust
bæði alvarlega
þegar Plant ók út
af á bílaleigubíl
þeirra á grísku
eyjunni Rhodos.
Plant braut báða
ökkla og annan
olnbogann og
var því hætt
við áætlaðan
Ameríkutúr
sveitarinnar.
1967 Fyrsta plata Pink Floyd, The Piper
At the Gates of Dawn, kom út. Platan
var tekin upp í Abbey Road-stúdíóinu,
á sama tíma og Bítlarnir voru þar að
taka upp plötuna Sgt. Pepper's. Plata
Pink Floyd, sem fór hæst í sjötta sæti
breska listans, en náði ekki sæti á lista
í Bandaríkjunum, hefur af mörgum
gagnrýnendum verið viðurkennd sem
ein áhrifamesta sýrurokkplata sjöunda
áratugarins og fengið fjórar stjörnur af
fimm mögulegum.
1984
Prince hóf 24 vikna setu á bandaríska plötulistanum með
Purple Rain. Platan, sem var sjötta stúdíóplata hans, innihélt
meðal annars smellina When Doves Cry og Let's Go Crazy,
auk titillags plötunnar, hefur selst í meira en 20 milljónum
eintaka á heimsvísu og er í dag sjöunda mest selda plata
allra tíma.
Hvað gerðist
4. ágúst?
Eftirminnilegir atburðir í tónlistarsögunni
Fjölmargir viðburðir eiga sér stað í tónlistarsögunni alla daga, sumt eftirminnilegra en
annað. Hér eru nokkrir viðburðir sem gerðust í erlendri tónlistarsögu þann 4. ágúst.
1996 Rótari Oasis, James Hunter, lést
á tónleikum sveitarinnar í Balloch Castle
Country Park í Loch Lomand í Skotlandi
þar sem sveitin lék á tvennum uppseldum
tónleikum. Hunter lenti á milli lyftara og
vörubíls og kramdist til bana.