Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Side 44
Helgarblað 4. ágúst 2017KYNNING
Unglingalandsmót Ung-mennafélags Íslands er vímulaus íþrótta- og
fjölskylduhátíð sem haldin er
árlega, ávallt um verslunar-
mannahelgina. Mótin eru
haldin á mismunandi stöðum
en í ár er Unglingalandsmótið
á Egilsstöðum. Í samtali við
blaðamann segist Gunnar
Gunnarsson, formaður UÍA,
búast við 1.000 keppendum.
„Við eigum þó von á að það
fari yfir 10.000 manns í gegn-
um bæinn yfir helgina. Það
eru þá keppendur, fjölskyldur
þeirra og aðrir mótsgestir,“
segir Gunnar.
Að fjölskyldan sé saman
„Í gegnum tíðina hafa mótin
tekist afskaplega vel. Við
viljum að fjölskyldan sé
saman og höfum sagt að sé
fjölskyldan ekki saman þessa
helgi, hvenær þá? Margir
töldu að hreyfingin væri að
fara í ranga átt þegar við
ákváðum að setja þetta á
verslunarmannahelgina en
þetta hefur slegið í gegn.
Í sjálfu sér erum við ekki í
samkeppni við Þjóðhátíð í
Eyjum eða nokkuð annað,
þetta er bara einn valkostur
sem fólki stendur til boða um
þessa helgi. Hér eru okkar
prinsipp um vímuefnaleysi
í gildi og þeir sem stilla sér
upp með okkur í þeim efnum
eru hjartanlega velkomnir.
Þetta gengur alltaf ótrúlega
vel fyrir sig og mótin eru
afskaplega skemmtileg,“ segir
Gunnar.
Fjölbreyttar keppnisgreinar
Keppt verður í 24 keppnis-
greinum um helgina og er
óhætt að segja að fjöl-
breytnin sé mikil, til dæm-
is boltaíþróttir og frjálsar
íþróttir, bogfimi, upplestur,
strandblak, skák og margt
fleira. „Það sem er nýtt í ár
er keppni í kökuskreytingum
og þar er þemað gleði, og
nei, Bjarni Ben er ekki að taka
þátt. Enda er hann ekki á
aldrinum 11–18 ára, en það er
aldur keppenda um helgina,“
segir Gunnar, en bætir því
við að ef einhverjir af afkom-
endum hans á þessum aldri
vilji taka þátt þá sé þeim
velkomið að skrá sig. „Svo er
auðvitað eitthvað í gangi fyrir
yngri kynslóðina sem hefur
ekki náð 11 ára aldri. Boðið
verður upp á ýmsar smiðjur
án endurgjalds. Einnig verður
kynning á skemmtilegum
greinum, kvöldvökur o.fl.
Mótsgjald er 7.000 krónur á
hvern keppanda en innifalið í
því er þátttaka í öllu öðru sem
stendur til boða á mótinu, til
dæmis leikjum, kvöldvöku og
annarri afþreyingu, auk þess
sem dvöl og afþreying fjöl-
skyldu keppenda er innifalin.
Það er því heldur betur hægt
að finna sér afþreyingu eftir
að maður hefur lokið keppni
í sinni grein og dagskráin er í
fullum gangi fram að mið-
nætti öll kvöld,“ segir Ómar.
Fólk er byrjað að mæta
Landsmótið byrjar formlega
á föstudaginn með pompi og
prakt. „Fyrsta keppnisgreinin
fór reyndar af stað á fimmtu-
dagsmorgninum, en það
er golfið. Það voru nokkrir
sem tóku þátt í því enda var
kominn slatti kvöldið áður.
Það verður heilmikil setn-
ingarhátíð á föstudeginum
og fluttum við meðal annars
inn danskan fimleikahóp
sem kallast Motus Teeter-
board. Þessi hópur sigraði í
Denmark got Talent og hefur
fengið flotta umfjöllun þarna
úti. Þau munu líka vera með
vinnusmiðjur yfir helgina þar
sem þau kenna krökkunum
listir sínar,“ segir Gunnar.
Hverjir eru að skemmta?
Þess má auk þess geta
að landsfrægir listamenn
skemmta á kvöldvökunum,
til dæmis Amabadama, Jón
Jónsson, Úlfur Úlfur, Hildur,
Emmsjé Gauti og fleiri. „Svo
kemur forsetinn, hann Guðni.
Hann fær, eins og Bjarni, ekki
að taka þátt í neinni keppni
vegna aldurs,“ segir Gunnar
spenntur.
Íþróttir fyrir alla
Gunnar ítrekar að mótið sé
fyrir alla krakka á aldursbilinu
11 til 18 ára og snúist ekki um
þá sem eru virkir í íþróttum:
„Ef til staðar er einstakling-
ur sem er ekki í fótboltaliði
eða körfuboltaliði en langar
að vera með þá getur hann
skráð sig og við setjum hann
inn í lið eða finnum lið fyrir
hann.“
Nánari upplýsingar um
Unglingalandsmótið og
skráning eru á heimasíðunni
umfi.is.
Afþreying fyrir alla á
Unglingalandsmótinu
á Egilsstöðum
DANSKUr FIMLEIKAHÓpUr
SýNIr LISTIr SÍNAr