Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Síða 53

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Síða 53
Helgarblað 4. ágúst 2017 KYNNING Pizzugerð hjá Kaffi-Sel, á bænum Efra-Seli skammt frá Flúðum, á sér yfir 20 ára sögu og fullyrða má að pizzurnar hjá Kaffi-Seli hafi sterk sérkenni enda eru þær orðnar mjög þekktar: „Við byrjuðum smátt en erum núna með tvo ofna þannig að við getum bakað hátt í 40 pizzur á klukku- stund, þegar mikið er að gera. Við höfum alltaf lagt áherslu á að nota hráefni úr héraði, t.d. af garðyrkjustöðv- unum í kring. Kjötafurðir, hakk og beikon og annað, allt kem- ur þetta úr héraðinu. Þetta eru því mjög „local“ pizzur. Við fáum til dæmis deigið frá Sindra bakara á Flúðum sem nýlega hóf sína starfsemi hér. Síðan er sósan algjört lykilatriði, leyniuppskrift sem við höfum haldið óbreyttri í 20 ár. Við gerum sósuna alveg frá grunni.“ Þetta segir Unnsteinn Logi Eggertsson, einn eigenda Kaffi-Sels. Hann bætir við að áleggið sé ekki sparað á pizzurnar, enda eru þær þekktar sem sælkerapizzur með ríkulegu og ljúffengu áleggi. Í sama anda hefur hamborgaramatseðillinn á Kaffi-Seli nýlega ver- ið endurnýjaður. Ham- borgararnir eru orðnir sannkallaðir „gourmet“ sælkerahamborgarar, sem bera örnefni úr héraðinu og nöfn þekktra persóna á borð við Fjalla-Eyvind. Enn fremur er boðið upp á nokkrar tegundir af súpum, m.a. með hráefni úr héraði, salöt og fleiri rétti á matseðl- inum. Kaffi-Sel er fjölskyldufyrir- tæki þar sem þrjár kynslóðir koma að rekstrinum. Hjónin Halldór Guðnason og Ástríð- ur G. Daníelsdóttir stofnuðu staðinn á sínum tíma, fyrir rúmlega 30 árum. Dóttir þeirra, Halldóra Halldórs- dóttir, er eiginkona Unnsteins, en auk þessara fjögurra vinna börn Unnsteins og Halldóru mikið á staðnum. Starfsemin í heild sam- anstendur af þessum róm- aða veitingastað, 18 holu golfvelli og gistiaðstöðu sem nýlega var sett á laggirnar. Golfklúbburinn Flúðir er rek- inn sem séreining en öll þjón- usta við golfara fer fram á veitingastaðnum. Að sögn Unnsteins er vinsælt hjá fyrirtækjahópum að panta golfhring og grillveislu á veitingastaðnum á eftir. Þá eru pizzuhlaðborð á Kaffi-Seli mjög vinsæl, ekki síst eftir unglinga- og krakkagolfmót. Á hlaðborðinu eru allar pizz- ur á matseðli í boði, gestir borga sig inn á hlaðborðið og fá sér pizzur eins og þeir geta í sig látið. Kaffi-Sel er að Efra-Seli, í þriggja kílómetra fjarlægð frá Flúðum. Opið er á staðn- um alla daga yfir sumartím- ann frá kl. 8 á morgnana til 20.30 á kvöldin. Nánari upplýsingar, matseðla, myndir og fleira má skoða á heimasíðu staðarins, www.kaffisel.is og Facebook-síðu hans, Kaffi- Sel á Facebook. Sælkerapizzur með hráefni úr héraði „VIð SpörUm EKKI ÁLEGGIð“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.