Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 53
Helgarblað 4. ágúst 2017 KYNNING
Pizzugerð hjá Kaffi-Sel, á bænum Efra-Seli skammt frá Flúðum,
á sér yfir 20 ára sögu og
fullyrða má að pizzurnar hjá
Kaffi-Seli hafi sterk sérkenni
enda eru þær orðnar mjög
þekktar: „Við byrjuðum smátt
en erum núna með tvo ofna
þannig að við getum bakað
hátt í 40 pizzur á klukku-
stund, þegar mikið er að
gera. Við höfum alltaf lagt
áherslu á að nota hráefni úr
héraði, t.d. af garðyrkjustöðv-
unum í kring. Kjötafurðir, hakk
og beikon og annað, allt kem-
ur þetta úr héraðinu. Þetta
eru því mjög „local“ pizzur.
Við fáum til dæmis
deigið frá Sindra bakara
á Flúðum sem nýlega hóf
sína starfsemi hér. Síðan
er sósan algjört lykilatriði,
leyniuppskrift sem við
höfum haldið óbreyttri í
20 ár. Við gerum sósuna
alveg frá grunni.“
Þetta segir Unnsteinn
Logi Eggertsson, einn
eigenda Kaffi-Sels. Hann
bætir við að áleggið sé
ekki sparað á pizzurnar,
enda eru þær þekktar
sem sælkerapizzur með
ríkulegu og ljúffengu
áleggi.
Í sama anda hefur
hamborgaramatseðillinn
á Kaffi-Seli nýlega ver-
ið endurnýjaður. Ham-
borgararnir eru orðnir
sannkallaðir „gourmet“
sælkerahamborgarar, sem
bera örnefni úr héraðinu
og nöfn þekktra persóna á
borð við Fjalla-Eyvind.
Enn fremur er boðið upp
á nokkrar tegundir af súpum,
m.a. með hráefni úr héraði,
salöt og fleiri rétti á matseðl-
inum.
Kaffi-Sel er fjölskyldufyrir-
tæki þar sem þrjár kynslóðir
koma að rekstrinum. Hjónin
Halldór Guðnason og Ástríð-
ur G. Daníelsdóttir stofnuðu
staðinn á sínum tíma, fyrir
rúmlega 30 árum. Dóttir
þeirra, Halldóra Halldórs-
dóttir, er eiginkona Unnsteins,
en auk þessara fjögurra
vinna börn Unnsteins og
Halldóru mikið á staðnum.
Starfsemin í heild sam-
anstendur af þessum róm-
aða veitingastað, 18 holu
golfvelli og gistiaðstöðu sem
nýlega var sett á laggirnar.
Golfklúbburinn Flúðir er rek-
inn sem séreining en öll þjón-
usta við golfara fer fram á
veitingastaðnum. Að sögn
Unnsteins er vinsælt hjá
fyrirtækjahópum að panta
golfhring og grillveislu á
veitingastaðnum á eftir. Þá
eru
pizzuhlaðborð á Kaffi-Seli
mjög vinsæl, ekki síst eftir
unglinga- og krakkagolfmót.
Á hlaðborðinu eru allar pizz-
ur á matseðli í boði, gestir
borga sig inn á hlaðborðið
og fá sér pizzur eins og þeir
geta í sig látið.
Kaffi-Sel er að Efra-Seli,
í þriggja kílómetra fjarlægð
frá Flúðum. Opið er á staðn-
um alla daga yfir sumartím-
ann frá kl. 8 á morgnana til
20.30 á kvöldin.
Nánari upplýsingar,
matseðla, myndir og fleira
má skoða á heimasíðu
staðarins, www.kaffisel.is og
Facebook-síðu hans, Kaffi-
Sel á Facebook.
Sælkerapizzur með
hráefni úr héraði
„VIð SpörUm EKKI ÁLEGGIð“