Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Page 70
46 fólk Helgarblað 4. ágúst 2017
Þeir Þóttu ekki
hafa hæfileika
n Stórstjörnur sem voru ekki taldar líklegar til stórverka n Sýndu staðfestu og slógu í gegn
Elvis Presley Presley, sem hér sést með eiginkonu sinni Pricillu og Lisu dóttur þeirra, var alls óþekktur
árið 1954 þegar hann steig á svið á þekktri sveitatónlistarhátíð. Framkvæmdastjóri hátíðarinnar sagði við hann, eftir að
hafa fylgst með honum syngja eitt lag: „Þú ert ekki að fara að gera neitt merkilegt, sonur sæll. Þú ættir að halda þig við
það að vera vörubílstjóri.“
Fred Astaire Leikstjóri skrifaði minnisblað eftir fyrstu
prufumyndatöku Fred Astaire. Þar stóð: „Getur ekki leikið. Getur ekki sungið.
Er að fá skalla. Getur dansað smávegis“. Astaire er einn frægasti dansari
sögunnar. Hann geymdi alla tíð þetta minnisblað á heimili sínu í Beverly Hills.
Steven
Spielberg
Spielberg er talinn
meðal bestu leikstjóra
kvikmyndasögunnar.
Þrisvar var umsókn
hans um skólavist í
virtum kvikmynda-
háskóla í Kaliforníu
hafnað. Hann hóf nám
í öðrum kvikmynda-
háskóla en hætti námi
til að einbeita sér að
leikstjórn. Framhaldið
þekkja allir.
Jerry Seinfeld
Í fyrsta sinn sem hinn ungi gamanleikari
gekk á svið til að skemmta leit
hann á áhorfendur, fraus og
var púaður af sviðinu.
Seinfeld vissi að hann
gæti slegið í gegn
svo hann sneri
aftur næsta
kvöld og vakti
gríðarlega
lukku. Við
tók sigur-
ganga.
Sidney
Poitier
Eftir að hafa farið í
fyrstu prufutöku sína
sagði leikstjórinn við
Poitier: „Af hverju
hættirðu ekki að
eyða tíma fólks til
einskis? Farðu og vertu
uppvaskari einhvers
staðar“. Poitier hét
sjálfum sér því að ná
árangri og varð virtur
og vinsæll leikari. Hann
var fyrstur svartra
karlleikara til að vinna
til Óskarsverðlauna.