Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Side 8
8 Helgarblað 20. október 2017fréttir
rykgrímur inni í verksmiðjunni en
ekki hlífðarhjálma með sérstakri loft
ræstingu eins og tíðkast annars stað
ar. „Hver hjálmur kostar mörg hund
ruð þúsund og þeir þóttu því of dýrir.
Í staðinn fengum við rykgrímur sem
taka allar rykagnir en aðeins brot
af mögulegum gastegundum í um
hverfinu. Þá svitna menn mikið í
þessum hita sem gerir það að verkum
að rykgrímurnar rennblotnuðu strax
og það kom niður á virkni þeirra. Við
kvörtuðum ítrekað yfir þessu og vild
um fá almennilega hjálma en það
fékkst ekki í gegn. Hins vegar kvört
uðu stjórnendur iðulega yfir því að
starfsmenn voru að nota of mikið af
rykgrímum og hlífðarhönskum,“ seg
ir Karl.
Afleiðingarnar voru óþægindi í
öndunarfærum meðal starfsmanna.
„Ég var kominn með áunninn astma
en það lagaðist sjálfkrafa á rúmu
hálfu ári eftir að ég hætti störfum,“
segir Ívar Örn. Karl segist hafa glímt
við óskilgreint „píp“ í öndurfær
um sínum sem og óþægindi í maga
en hvort tveggja lagaðist nokkrum
mánuðum eftir starfslok hans. Aðrir
voru ekki eins heppnir og að sögn tví
menninganna voru viðbrögð Norð
uráls skammarleg. „Ef maður veiktist
var maður einfaldlega rekinn. Álagið
og mengunin á vinnustaðnum gerði
það að verkum að margir sem við
þekkjum veiktust, sumir alvarlega.
Þeim var öllum bolað út,“ segir Karl.
Veikindabónus
Þeir segja að fyrirtækið hafi komið
upp allt að því fasískum starfs
reglum varðandi veikindi starfs
manna. Ingi Rafn Svansson, sem
starfaði hjá Norðuráli í sjö ár, frá
2006 til 2013, segir að um hálfgerð
an farsa hafi verið að ræða. „Þeir
komu á kerfi þar sem verkstjórar
fengu launabónus ef veikindi starfs
manna voru undir ákveðnu marki.
Afleiðingin varð sú að ef maður
hringdi sig inn veikan þá breyttist
verkstjórinn í einhvers konar útgáfu
af dr. Saxa og vildi vita nákvæmlega
hvað var að manni og hvernig ein
kennin lýstu sér. Þá var óskað eftir
alls konar frekari upplýsingum, til
dæmis um tíðni klósettferða, hversu
oft hefði verið ælt og svo framveg
is,“ segir Ingi Rafn. Karl bætir við á
þessum tímapunkti að þetta hafi
verið afleiðing þess viðhorfs hjá
framkvæmdastjóra Norðuráls á
Grundartanga að starfsmenn væru
alltaf að ljúga ef þeir væru veikir.
Flett upp í sjúkraskrám
Þeir segja að farsinn hafi náð há
marki þegar hjúkrunarkona tók til
starfa hjá fyrirtækinu en þjónustan
var keypt frá sjúkrahúsinu á Akra
nesi. Fljótlega fór að koma í ljós
að hjúkrunarkonan hafði umtals
vert meiri upplýsingar um starfs
menn en eðlilegt gat talist. „Hún
fór að benda mönnum á að hún
hefði áhyggjur af því að þeir hefðu
verið greindir þunglyndir nokkrum
árum fyrr og svo framvegis. Síðar
komst upp að hún hefði flett upp
sjúkraskrám starfsmanna í gegnum
sjúkrahúsið. Vissulega mikill metn
aður í starfi en kolólöglegt athæfi,“
segir Ívar Örn.
Hjúkrunarkonunni var vikið
frá störfum að lokum en þá hafði
átt sér stað atvik varðandi meiðsli
Inga Rafns. „Ég fékk lítinn glóandi
mola inn undir hlífðargleraugun
mín. Hann rann niður eftir auganu
þannig að ég brenndi mig nokk
uð illa. Ég leitaði mér læknishjálpar
utan fyrirtækisins og fékk þann úr
skurð að ég væri með blöðrur innan
á auganu og ætti að taka því rólega,“
segir Ingi Rafn. Þegar hann tilkynnti
stöðuna til verkstjóra var honum
skipað að koma í vinnuna og hjúkr
unarkonan ætlaði að rannsaka mál
ið. „Hún stendur síðan fyrir framan
mig með vasaljós og stækkunargler
og grandskoðar augað. Síðan segist
hún ekki sjá neinar blöðrur,“ segir
Ingi Rafn. Honum var því skipað að
fara að vinna en fékk að vera inni á
skrifstofunni þann daginn.
Beittur líkamlegu ofbeldi
Annað ámælisvert í stjórn fyrir
tækisins segja þeir að hafi verið
mismunandi og allt að því handa
hófskennd viðbrögð við ýmsum
uppákomum. Það hafi kristallast í
ofbeldi sem Ingi Rafn að sögn varð
fyrir af hálfu yfirmanns síns. Hann
hafi fengið fyrirmæli um að inna
ákveðið verkefni af hendi sem hann
var í óðaönn að ljúka. Hann fram
kvæmdi verkið ekki í þeirri röð sem
verkstjórinn hafði fyrirskipað og
það orðið til þess að skyndilega var
rifið í hnakkadrambið á honum og
hann dreginn úr einu bili yfir í ann
að. Síðan hafi verkstjórinn struns
að til baka og tekið samstarfsmann
Inga Rafns út úr bilinu með sama
hætti.
„Ég var í áfalli eftir þessa með
ferð. Það hafði oft verið öskrað á
mann og skammast en þarna var
farið út yfir öll velsæmismörk.
Þetta var hreint ofbeldi,“ segir Ingi
Rafn. Hann talaði við Karl, trúnað
armann sinn, og síðan þáverandi
starfsmannastjóra. „Hún var sam
mála mér í því að þetta væri ólíð
andi ofbeldi,“ segir Ingi Rafn. Fram
kvæmdastjóri kerskálans var ekki á
sama máli. „Hans fyrstu viðbrögð
voru að spyrja hvort verkstjórinn
hefði ekki verið að vinna vinnuna
sína,“ segir Ingi Rafn.
Ekkert var gert í málinu og verk
stjórinn fékk ekki svo mikið sem
áminningu. Stuttu síðar var starfs
mannastjórinn látinn fara. „Mér
leið aldrei vel í vinnunni eftir
þessa uppá komu og hvernig mál
ið var höndlað,“ segir Ingi Rafn. Níu
mánuðum síðar sagði hann upp
störfum hjá Norðuráli.
Allt önnur viðbrögð voru viðhöfð
þegar verkamanni einum og næsta
yfirmanni hans varð sundurorða.
Í pistli frá Vilhjálmi Birgissyni um
ástandið í Norðuráli í apríl á þessu
ári var minnst á atvikið sem for
kastanlega framkomu við starfs
fólk fyrir tækisins. „Starfsmaðurinn
vildi meina að verkstjórinn hefði
talað niður til hans. Starfsmaður
inn reiddist og sló fingrum í ör
yggishlíf framan á hjálmi verkstjór
ans þannig að hún datt af,“ segir Ívar
Örn. Deiluaðilarnir sættust stuttu
síðar og tókust í hendur en hart var
tekið á atvikinu. „Starfsmanninum
var þegar sagt upp störfum. Þetta
var einn allra besti verkamaður sem
við höfðum unnið með og var með
langan starfsaldur hjá fyrirtækinu,“
segir Ívar Örn.
Rekinn fyrir meinta
kynferðislega áreitni
Karl fékk reisupassann eftir meinta
kynferðislega áreitni sem síðar
reyndist ekki vera fótur fyrir. Síðar
fékk hann þau skilaboð að stjórn
endur Norðuráls hefðu viðurkennt
að uppsögnin hefði verið á gráu
svæði. Á svipuðum tíma var ann
ar starfsmaður sakaður um slíka
áreitni en fyrirtækið bauðst til þess
að leysa málið með því að færa
starfsmanninn á aðra vakt. „Þeir
vildu losna við mig með öllum til
tækum ráðum því ég lét ekki vaða
yfir mig,“ segir Karl. Hann hafði
sent smáskilaboð til samstarfskonu
þar sem hann hrósaði útliti hennar
og það var notað sem grundvöllur
fyrir tafarlausa uppsögn. „Skeyta
sendingin innihélt engar kynferðis
legar tilvísanir. Það er ekki hægt að
kalla eitthvað slíkt áreiti nema við
takandinn hafi beðið sendandann
um að hætta og hann virt það að
vettugi,“ segir Karl.
Honum var því sagt upp störfum
og hann fékk litla hjálp frá Verkalýðs
félagi Akraness við að verja hend
ur sínar. „Þeir buðu mér 200 þúsund
króna styrk upp í lögfræðikostnað. Sá
peningur kaupir aðeins stuttan tíma
hjá lögfræðingi,“ segir Karl.
Hann lauk störfum í október
2013 og skömmu síðar sagði Ívar
Örn upp störfum. „Ég fann fyrir
óvildinni í minn garð og ég var al
gjörlega búinn að fá upp í kok,“
segir Ívar Örn, sem einnig glímdi
við áðurnefndan áunninn astma
vegna vinnu sinnar. Hann var tek
inn á teppið hjá starfsmannastjóra
fyrir meinta kynþáttafordóma.
„Það var algjörlega úr lausu lofti
gripið. Ég benti henni á að ég væri
fæddur í suðausturhluta Tyrklands
og væri af kúrdískum ættum. Ef
einhverjir fordómar væru til staðar
þá beindust þeir yfirleitt gegn mér.
Þá varð starfsmannastjórinn kjaft
stopp og málið var strax látið niður
falla,“ segir Ívar Örn. Hann stundar
nú meistaranám í lögfræði við Há
skólann í Reykjavík og saknar ekki
Norðuráls.
Engir misbrestir hjá Norðuráli
Vegna handvammar hjá blaðamanni
fékk Sólveig Kr. Bermann, yfirmaður
samskipta hjá Norðuráli, skamman
tíma til þess að bregðast við ásökun
um fyrir prentun blaðsins.
„Í tölvupósti frá DV er látið að því
liggja að ýmsir misbrestir séu í starf
semi Norðuráls. Það er rangt og fjöl
margar rangfærslur koma fram í
þeim efnisatriðum sem tínd eru til.
Hjá Norðuráli starfa um 600 manns
og eru öryggismál í forgangi. Jafn
framt eru öryggisstjórnunarkerfi fyr
irtækisins vottuð samkvæmt alþjóð
lega OHSAS 18001 staðlinum,“ segir
í skriflegu svari hennar. Áskildi Sól
veig sér rétt til þess að fara yfir efnis
atriði málsins og svara þeim síðar. n
„Ef maður hringdi
sig inn veikan þá
breyttist verkstjórinn í
einhvers konar útgáfu af
dr. Saxa og vildi vita ná-
kvæmlega hvað var að
manni.
www.bjarmaland.is sími 770 50 60
bjarmaland@bjarmaland.is
FRAMHALD JÓLA Í MOSKVU
4. - 8. janúar I 4 nætur
Gullni þríhyrningurinn og strandir GOA
14. - 25. nóvember I 11 nætur
INDVERSKT SUMAR UM HAUST
339 000
VERÐ
kr.
166 300
VERÐ
kr.
ÚT Í HEIM MEÐ OKKUR!
Sölvi Arnar Arnórsson Var rekinn frá Norðuráli
á Grundartanga eftir að hafa kvartað yfir einelti
yfirmanns og óskað eftir flutningi á aðra vakt.