Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Blaðsíða 10
10 Helgarblað 20. október 2017fréttir Tíu stjórnmálaflokkar bjóða fram í öllum kjördæmum, auk tveggja flokka sem bjóða fram í einstaka kjördæmum. Alls eru 1.370 manns á framboðslistum flokkanna og þar innan um er fólk sem skarað hefur fram úr á ýmsum sviðum öðrum en stjórnmálum. DV tók hús á nokkrum frambjóðendum. kristinn@dv.is Edda Björgvinsdóttir – leikkona Samfylkingin – 11. Reykjavík norður Sigurjón Kjartansson – Handritshöfundur, tónlistarmaður og leikari Björt framtíð – 24. SuðvesturkjördæmiJón Sigurðsson – Tónlistarmaður og markaðsstjóri Miðflokkurinn – 6. Reykjavík norður Edda hefur lengi hrærst á vinstri væng stjórnmálanna. „Ég er úr MH, gamla hippa- skólanum. Þar var skylda að hafa mjög vinstri sinnaða pólitíska afstöðu.“ Hún hefur áður verið á framboðslistum hjá Vinstri græn- um en var beðin um að taka sæti hjá Samfylkingunni að þessu sinni. Hún segist hafa samþykkt það að miklu leyti vegna oddvit- ans, Helgu Völu Helgadóttur. „Ég hef mikla trú á henni og ég veit að þar fer manneskja sem mun berjast fyrir því sama og brennur á mér. Þess vegna sagði ég já við því að taka sætið. En ég tek það fram að ég hlakka einnig til þess að sjá Katrínu (Jakobsdóttur) stjórna landinu.“ Þrátt fyrir að sitja á listanum segist Edda vera algerlega óvirk í baráttunni og varla vita hvernig hún gangi. „Það er eðlileg skýr- ing á því. Ég er að frumsýna núna eftir nokkra daga og er gjörsam- lega ósýnileg og föst inni í leik- húsinu 24 tíma sólarhringsins.“ Edda leikur aðalhlutverkið í leik- ritinu Risaeðlurnar sem frum- sýnt verður þann 20. október í Þjóðleikhúsinu. Hún segist aldrei hafa hugsað sér að verða þing- maður. „En aftur á móti ein- ræðisherra, svakalega myndi ég vilja það og það finnst mér heill- andi tilhugsun. Ekkert að vesen- ast með öðru fólki heldur ráða þessu öllu sjálf.“ Sigurjón segist ekki geta komist hjá pólitíkinni. „Að taka þátt í lífinu er það sama og að taka þátt í stjórnmálum.“ Hann segist þó ekki hafa verið flokkspólitískur í gegnum tíðina og aldrei hafi hon- um hugnast að setjast á þing. Sig- urjón hreifst þó af Besta flokkn- um á sínum tíma sem rann inn í Bjarta framtíð. „Ég er mjög óvirk- ur í baráttunni. Þetta er heiðurs- mannasæti, algjört aumingjasæti sem ég samþykkti að vera á að gamni mínu.“ Sigurjón er stoltur af framgöngu flokksins á undanförnum vikum. „Þessar kosningar ættu að snúast um endalok leyndarhyggjunnar. Ég er ánægður með Bjarta fram- tíð að hafa sprengt þessa stjórn og lagt líf sitt undir. Ef þetta verður til þess að pólitíkin breytist, þó að Björt framtíð komi ekki inn manni, þá finnst mér flokkurinn samt hafa sýnt mikið pólitískt hugrekki og lagt sitt af mörkum til að breyta hlutunum til batnaðar. Krafan núna eru betri stjórnmál.“ En tak- mark flokksins? „Að koma fjórum mönnum inn á þing.“ Idol-stjarnan var í Framsóknar-flokknum í um áratug og var á framboðslista þar fyrir síð- ustu borgarstjórnarkosningar. En hann hefur ávallt verið einangr- aður í sinni fjölskyldu og nán- asta vinahópi. „Flestir í kringum mig eru annaðhvort vinstrisinn- aðir eða blákaldir Sjálfstæðis- menn.“ Hann segir að síðasta ár hafi verið erfitt og þau vinnubrögð sem uppi voru höfð innan flokks- ins hafi ekki heillað hann. Hann fylgdi því Sigmundi úr flokknum fyrir skemmstu. „Þetta var síðasta hálmstráið. Ég hef alltaf haft trú á Sigmundi sem leiðtoga og stað- festunni hjá honum. Ég bauð fram krafta mína því ég hef alltaf haft áhuga á að fara í framboð. Mér var boðið sæti og ég tók því.“ Jón segir að mesta vinnan undanfarna daga hafi farið í að byggja upp flokkinn en nú séu frambjóðendur farnir að reyna að ná til almennings. „Við not- um samfélagsmiðlana mikið en við reynum eftir fremsta megni að hitta fólk augliti til auglits eða í gegnum síma. Þessar kosningar snúast um það í hvaða átt þjóð- in vill fara í ákveðnum málum til dæmis varðandi fjármálakerf- ið, húsnæðismálin og heilbrigð- ismálin og hverjum treystum við best til að framfylgja þeirri stefnu.“ Hann segir skoðanakann- anir lofa góðu en auðvitað vilji hann meira fylgi. „Guðfinna (Jóh. Guðmundsdóttir) er týpa sem á heima á Alþingi. Hún er skynsöm og skelegg. Það yrði bónus ef við næðum sex og ég dytti inn líka, en Reykjavík er nú reyndar ekki okk- ar sterkasta vígi.“ Bergur, sem lamaðist eft-ir vinnuslys árið 1999, segist mjög virkur í kosningabaráttunni. „Ég er formaður velferðarnefnd- ar flokksins og á sæti í kjör- dæmisráði og flokksráði. Við reynum að hringja í sem flesta en einnig spjalla við fólk maður á mann.“ Honum var boðið að taka 17. sætið í fyrra og tók því ekki þátt í prófkjöri. „Ég sóttist eftir því að vera ofar í ár en allir voru hækkaðir um eitt sæti sem var mjög sanngjarnt.“ Hann gekk í flokkinn 22 ára gamall en er ekki alltaf sammála forystunni. „Ég vil að flokkurinn minn geri bet- ur í mannréttindamálum og horfi sérstaklega til sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ég er á öndverðum meiði við marga flokksfélaga mína í því máli, til að mynda dómsmálaráð- herra og forsætisráðherra.“ Hann segir skýrt ákall koma frá eldri borgurum og öryrkj- um um aðgerðir. „Ég þekki þetta sjálfur og hef þurft að lifa af örorkulífeyri í ansi mörg ár. Það er erfitt og svo að segja ekki hægt. Ef við förum að taka einhverja kúvendingu í stjórnarskrármálum eða sækja um aðild að Evrópu- sambandinu, kemur það kjör- um öryrkja nákvæmlega ekk- ert við.“ Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið í sögulegri lægð í skoðanakönnunum undan- farið en Bergur er viss um hvaða fylgi yrði ásættanlegt: „27,5 prósent“. Bergur Þorri Benjamínsson – Formaður Sjálfsbjargar Sjálfstæðisflokkurinn – 16. Suðvesturkjördæmi „Þetta er algjört aumingjasæti“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.