Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Síða 20
20 sport Helgarblað 20. október 2017
A
landslið kvenna dvelur
nú í Wiesbaden í Þýska-
landi þar sem undirbún-
ingur fer fram fyrir leik-
ina tvo sem fram undan eru í
undankeppni HM. Leikið verð-
ur gegn Þýskalandi í Wiesbaden
í dag, föstudag, og gegn Tékk-
landi í Nojmo þriðjudaginn 24.
október. Ísland er sem stendur í
öðru sæti riðilsins með 3 stig eft-
ir einn leik en Þýskaland, sem
hefur spilað tvo leiki er í efsta
sætinu með 6 stig. Lokakeppni
HM fer fram í Frakklandi sumar-
ið 2019 en undankeppninni lýk-
ur í september 2018. Verkefnið
verður afar erfitt enda á Þýska-
land eitt allra sterkasta landslið
í kvennaknattspyrnu í dag líkt og
síðustu ár.
Úr hverju eru stelpurnar gerðar
Það var mikið högg sem kvenna-
landsliðið fékk á Evrópumótinu í
Hollandi í sumar þegar liðið ætl-
aði sér stóra hluti, væntingarn-
ar voru talaðar upp en liðið tap-
aði öllum leikjum sínum og
höggið var því mikið. Stelpurnar
hafa hrist þessi vonbrigði af
sér og byrjuðu með látum gegn
Færeyjum, mótspyrnan var þó lítil
sem engin.
Flestir gera ráð fyrir sigri Þýska-
lands í fyrri leiknum en stelpurn-
ar þurfa helst sigur í seinni leikn-
um gegn Tékklandi því baráttan
um að komast á HM er afar hörð.
„Óskhyggja er að ná í sex stig, það
væri stórkostlegur árangur, við
förum mjög sátt heim með fjögur
stig. Við megum ekki tapa í Tékk-
landi, það væru vond úrslit. Við
þurfum að hitta á toppleik til að fá
þrjú stig í Tékklandi svo ég tali nú
ekki um gegn Þýskalandi, þeim
risa. Þetta er búið að vera tilfinn-
ingaríkt ár og leikmenn komu vel
gíraðir inn í verkefnið gegn Fær-
eyjum og gáfu allt í það. Þá átti ég
góð samtöl við leikmenn um að
gera betur, við erum á réttri leið
hvað það varðar,“ sagði Freyr Al-
exandersson þjálfari um verk-
efnið. n
hoddi@433.is
Stórt próf fyrir stelpurnar okkar
W
illum Þór Þórsson,
frambjóðandi Fram-
sóknar í alþingiskosn-
ingunum, leggur til að
virðisaukaskattur af mannvirkja-
gerð tengdri íþrótta- og æsku-
lýðsstarfi verði endurgreiddur.
Þetta myndi hafa í för með sér að
kostnaður við byggingu íþrótta-
mannvirkja myndi lækka um 24,5
prósent. Willum var þingmaður
þangað til á síðasta ári en hann er
oddviti Framsóknar í Suðurvest-
urkjördæmi. Willum hefur mikla
innsýn inn í íþróttastarfið og mik-
ilvægi þess í gegnum störf sín í
kringum fótboltann og einnig í
kringum börnin sín en hann er
fimm barna faðir og er því mikið
í kringum það starf í íþróttahreyf-
ingunni.
„Ég er með hugmyndir varð-
andi byggingu og viðhald íþrótta-
mannvirkja; að endurgreiða
virðisaukaskattinn af slíkum fram-
kvæmdum, starfsemin er víðast
hvar sprungin utan af sér og þetta
eru í dag bara nútíma félagsmið-
stöðvar. Ég sem foreldri barna í
íþróttum sé þetta víða, foreldrar
eru að koma með börnunum sín-
um og samvistir foreldra og barna
eru mikilvægur liður í uppeldi
barna. Það má svo ekki gleyma því
mikilvæga hlutverki sem íþróttir
hafa á heilbrigðiskerfið, þetta
dregur úr álagi á það. Við þurfum
að efla forvarnarhliðina sem
tengist heilbrigðismálum,“ sagði
Willum þegar DV leitaði eftir út-
skýringum hjá honum varðandi
þessar hugmyndir.
Hjálpar til við bygginu nýs
þjóðarleikvangs
Mikil krafa er í knattspyrnuhreyf-
ingunni um að nýr Laugardals-
völlur verði byggður upp og er
það í plönum að gera slíkt. Ríkið,
Reykjavíkurborg og KSÍ þurfa að
komast að samkomulagi um þetta.
Willum segir að leiðin með virðis-
aukaskattinn hjálpi þar mikið til.
„Þessi umræða um nýjan þjóðar-
leikvang hefur fengið byr undir
báða vængi, þessi völlur er löngu
komin á tíma. Það er búið að byggja
upp vesturstúkuna og það er hægt
að nota hana, það er öllum ljóst að
það þarf nýjan leikvang. Leikurinn
gegn Kósóvó þar sem strákarn-
ir tryggðu sig inn á HM staðfestir
það. Það var fjöldi fólks sem komst
ekki á völlinn því hann hefur ekki
verið stækkaður. Með því að setja
í gang að virðisaukaskatturinn
verði endurgreiddur þá virkar það
sem 25 prósenta styrkur frá ríkinu
inn í þá hugmynd að byggja nýjan
þjóðarleikvang. Þetta yrði almenn
aðgerð sem myndi nýtast öllum.
Íþróttahreyfingin þarf að koma
saman, ásamt borgaryfirvöldum
og ríki, og fara yfir öll þessi mál,
það er mikilvægt að finna lausnir
fyrir alla hreyfinguna.“
Íþróttir eru forvarnarstarf
Willum segir það vera lýðheilsu-
mál að hlúa vel að öllu íþróttastarfi
enda sé það stór hluti af forvörnum
fyrir unga krakka, hann segir það
sannað að íþróttir og æskulýðsstarf
hjálpi ungu fólki að fóta sig betur
í lífinu. „Mikilvægi forvarna sem
koma í gegnum íþróttastarf verð-
ur seint talið í krónum, það er hægt
að fullyrða það. Það eru fjölmargar
rannsóknir sem sýna að skipulagt
íþrótta- og æskulýðsstarf vinnur
með ungu fólki. Þetta kemur líka
oft og tíðum í veg fyrir að unglingar
leiðist út í vandræði og vesen,
þetta styrkir sjálfsmynd hjá krökk-
um og styrkir þá í námi. Seinna
meir dregur svona starf úr töpuð-
um vinnustundum og styrkir fé-
lagslega færni. Það sem rannsókn-
ir um skipulagt íþróttastarf sýna er
að þetta sé besta forvörnin sem er
í boði,“ segir Willum. „Við búum að
frábæru barna- og unglingastarfi í
íþróttahreyfingunni um allt land,
svo eru það líka æskulýðsfélögin,
Skátarnir og KFUM og KFUK.“
Keppnisskapið kviknar
Nú þegar stutt er í kosningar kemur
keppnisskapið upp í Willum sem
hann hafði bæði sem íþróttamaður
og síðar þjálfari. Willum þjálfaði
KR í Pepsi-deild karla síðasta sum-
ar, hann ákvað hins vegar að láta
af störfum þegar þrýst var á hann
í Framsóknarflokknum að leiða
flokkinn í Suðurvesturkjördæmi.
„Gamla keppnisskapið kemur upp
í manni, þetta er virkilega gaman.
Frambjóðendur eru á hlaupum á
milli staða, það vaknar allt þjóð-
félagið. Það vakna allir til lífsins
og berjast fyrir sínum málefnum,
þetta er skemmtilegur tími. Maður
eflist í svona keppni, eitt sem mað-
ur lærir í íþróttum er að halda ein-
beitingu í svona verkefni. Maður
hugsar þetta ekki í of stóru sam-
hengi, heldur einn dag í einu, það
eru allir að leggja sitt af mörkum.
Við í Framsókn erum með mjög
góða stefnu, þessar kosningar snú-
ast um að fá hér stöðugt stjórnar-
far; ríkisstjórn sem stendur næstu
fjögur ár. Þessir síðustu dagar fyrir
kosningar eru skemmtileg barátta
að taka þátt í.“ n
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
„Mikilvægi forvarna
í gegnum íþróttastarf
seint talið í krónum“
n Vill endurgreiða virðisaukaskatt af íþróttamannvirkjum n Keppnisskapið nýtist vel
Hörð barátta Miðað við kannanir er tvísýnt
hvort Willum Þór nái inn á þing. Mynd Sigtryggur Ari